Fréttablaðið - 28.04.2012, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGFjármál fyrirtækja LAUGARDAGUR 28. APRÍL 20122
1. CARLOS SLIM HELÚ
Ríkasti maður heims þriðja
árið í röð, þrátt fyrir að hafa
tapaði miklum auðævum
milli ára. Fallandi hlutabréfa-
verð í helstu eign hans,
fjarskiptarisanum American
Movil, er helsta ástæðan
fyrir tapinu en helmingur
eigna hans er bundinn
í fyrirtækinu. Foreldrar Carlos eru bæði af
líbönskum uppruna. Hann býr í Mexíkóborg
og á sex börn.
Land: Mexíkó | Aldur: 72 ára | Uppspretta
auðs: Fjarskipti | Eign: 8714 milljarðar króna
8. STEFAN PERSSON
Auðugasti maður Norður-
landa er Stefan Persson,
sonur stofnenda verslunar-
keðjunnar H&M. Faðir hans
setti fyrstu H&M-verslunina á
fót í Svíþjóð árið 1947. Í dag
eru H&M-verslanir um 2.500
talsins í 53 löndum um allan
heim. Persson getur þakkað
Íslendingum að hluta til enda verslunin ein
sú vinsælasta í verslunarferðum Íslendinga
undanfarna áratugi. Hann býr í Stokkhólmi og
spilar golf og tennis í frístundum.
Land: Svíþjóð | Aldur: 64 | Uppspretta auðs:
Verslunarrisinn H&M | Eign: 3280 milljarðar
9. LI KASHING
Ríkasti maður Asíu, og um
leiðs einn sá valdamesti, er
Hong Kong-búinn Li Ka-
shing. Hann hefur stundað
margs konar viðskipti um
ævina og er meðal annars
umsvifamikill bygginga-
verktaki. Fyrirtæki hans hafa
byggt sjö af hverjum tíu
íbúðum í Hong Kong. Veldi hans nær til 53
landa og 270.000 starfsmenn starfa hjá fyrir-
tækjum hans.
Land: Hong Kong | Aldur: 83 | Uppspretta
auðs: Ýmis rekstur | Eign: 3217 milljarðar
NOKKUR NÖFN Á LISTANUM
28. ALISHER USMANOV
Alisher Usm-
anov er ríkasti
Rússinn á listan-
um í ár. Hann
er umsvifamikill
í stál- og járn-
framleiðslu auk
þess að eiga
hlut í leikja-
fyrirtækinu Zynga og Groupon.
Auður hans mun væntanlega
vaxa mikið í ár þegar Facebook
fer á markað en hann á hlut í
fyrirtækinu. Hann á auk þess
stærsta viðskiptablað Rússlands.
Land: Rússland | Aldur: 58 ára |
Uppspretta auðs: Stál og fjar-
skipti | Eign: 2371 milljarðar króna
11. CHRISTY WALTON
Ríkasta kona
veraldar er
Christy Walton,
einn meðlima
Walton-fjöl-
skyldunnar.
Tengdafaðir
hennar, Sam
Walton, stofnaði
Walmart-verslunarkeðjuna í
Bandaríkjunum árið 1962. Hún
var áður gift einum af sonum
hans, John T. Walton, sem lést
árið 2005. Eftir lát hans erfði hún
eignir hans.
Land: Bandaríkin | Aldur: 57 ára
| Uppspretta auðs: Verslun |
Eign: 3191 milljarðar króna
19. MUKESH AMBANI
Ríkasti maður
Indlands er hinn
54 ára Mukesh
Ambani. Veldi
hans byggist
á vinnslu á
olíu og gasi í
gegnum eitt
verðmætasta fyrirtæki Indlands,
Reliance Group. Fjölskylda hans
býr í 27 hæða húsi í borginni
Bombay sem talið er vera dýrasta
íbúðarhús sögunnar.
Land: Indland | Aldur: 54 ára |
Uppspretta auðs: Olía og stál |
Eign: 2813 milljarðar króna
35. MARK ZUCKERBERG
Yngstur á
listanum er einn
stofnenda sam-
skiptavefsins
Facebook,
aðeins 27 ára
gamall. Í apríl
2012 voru not-
endur síðunnar
rúmlega 900 milljónir. Fyrirtækið
fer bráðlega á markað og má
búast við að auður hans marg-
faldist í ár. Zuckerberg hætti í
Harvard til að geta einbeitt sér að
fyrirtækinu og sér varla eftir því.
Land: Bandaríkin | Aldur: 27 ára
| Uppspretta auðs: Facebook |
Eign: 2207 milljarðar króna
Með kjörorðinu viljum við undirstrika að í kjölfar stefnumótunar hlut-hafanna sem endurfjármögnuðu
bankann fyrir ári þá hefur bankinn tekið þá
ákvörðun að leggja fyrst og fremst áherslu á
það að vera banki atvinnulífsins. MP banki
verður þannig eini bankinn sem sérhæf-
ir sig í bankaþjónustu fyrir minni og með-
alstór fyrirtæki ásamt því sem veitum ein-
staklingum í atvinnulífinu og tengdum að-
ilum bankaþjónustu, svo sem eigendum og
stjórnendum,“ segir Lárus.
Hver er sérstaða fyrirtækjaþjónustu
bankans?
„Við finnum að viðskiptavinir okkar eru
mjög ánægðir með hversu mikill fókus er á
fyrirtækjaþjónustu hjá okkur og kjörin góð.
Boðleiðir eru stuttar og viðskiptastjórar hafa
skýrt umboð til ákvarðanatöku. Við fáum
líka talsvert oft þau viðbrögð að viðskipta-
vinir líti á okkur sem samstarfaðila og er það
ólíkt því sem þeir eiga að venjast með fyrri
viðskiptabanka. Við lítum svo á að árangur
okkar felist í árangri viðskiptavina okkar,“
segir Ólafur.
Sérstakt fyrirtækjaútibú og eignaleigu-
sviðið Lykill
„Við höfum einnig skipulagt okkur betur
til að geta veitt fyrirtækjum skjóta en um-
fram allt faglega og persónulega þjónustu,“
segir Ólafur. „Þá höfum við lagt áherslu á að
kynna okkur vel þarfir viðskiptavina okkar.
Við höfum einnig byggt upp sérhæft fyrir-
tækjaútibú með reynslumiklum starfsmönn-
um í Ármúla. Að auki geta fyrirtæki nýtt sér
útibú okkar í Borgartúni, þjónustuver og net-
banka. Þá hefur verið sett á laggirnar eigna-
leigusvið sem starfar undir vörumerkinu
Lykill. Lykill býður bílasamninga, bílalán og
kaupleigusamninga vegna ýmissa atvinnu-
tækja og þar starfar reynslumikið starfsfólk.“
Veitir MP banki alla bankaþjónustu fyrir
fyrirtæki?
„Já, við bjóðum allar helstu tegundir fjár-
mögnunar, veltureikninga, fyrirtækjakort
og greiðslumiðlun svo sem innheimtu-
þjónustu. Þá höfum við komið að endur-
fjármögnun fjölmargra fyrirtækja. Einnig
höfum við sérhæft okkur í kröfu- og birgða-
fjármögnun. Þess má geta að bankinn er
eini bankinn sem hefur staðið að fullu við
allar skuldbindingar sínar við erlendar
fjármálastofnanir og við veitum alla þjón-
ustu sem tengist erlendum viðskiptum svo
sem gjaldeyrisreikninga, gjaldeyrismiðl-
un, ábyrgðir og þess háttar. Svo er bank-
inn í fremstu röð í fyrirtækjaráðgjöf en þar
starfar öflugt teymi að kaupum og sölu fyr-
irtækja og sinnir ráðgjöf,“ segir Lárus.
Hvað ráðleggið þið fyrirtækjum sem vilja
skoða viðskipti við MP banka?
„Það er einfalt. Ég hvet þau til að hafa sam-
band við mig eða einhvern af viðskipta-
stjórum fyrirtækjaútibúsins í Ármúla. Allir
starfsmenn bankans eru á starfsmannalista
á mp.is með mynd, netfangi og beinu síma-
númeri. Við bjóðum viðkomandi á fund og
kynnumst fyrirtækinu og skoðum hvern-
ig við getum best aðstoðað. Í framhaldinu
er gert tilboð um kjör og skilmála,“ segir
Lárus.
MP-banki, banki atvinnulífsins
MP banki hefur auglýst undir kjörorðinu „banki atvinnulífsins“. Er það til marks um aukna áherslu bankans á fyrirtækjaþjónustu? Lárus Sigurðsson,
útibússtjóri fyrirtækjaútibús MP banka og Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs voru teknir tali og spurðir út í sérstöðu bankans.
Lárus Sigurðsson, útibússtjóri fyrirtækjaútibús MP banka og Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans. Þeir eru með yfir 25 og 30 ára banka-
reynslu og þekkja því vel þarfir íslenskra fyrirtækja. MYND/STEFÁN
Aldarfjórðungur er síðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hóf að birta lista yfir ríkasta fólk verald-
ar. Tímaritið miðar við eign upp á lágmark
milljarð króna og fyrsta árið voru millj-
arðamæringarnir 140 talsins. Nýjasti list-
inn, sem birtur var í mars, inniheldur 1.226
manns sem er nýtt met. Þriðja árið í röð er
Mexíkóinn Carlos Slim Helú ríkasti maður
heims. Auðævi hans eru metin á rúmlega
8700 milljarða íslenskra króna. Næstur á
listanum er Bill Gates, annar stofnenda
Microsoft. Auður hans er metinn á rúm-
lega 7700 milljarða króna. Þriðji á listanum
er bandaríski fjárfestirinn Warren Buffett.
Auður hins 81 árs gamla Buffett er metinn
á rúmlega 5550 milljarða króna. Sjöunda
árið í röð er Christy Walton ríkasta kona
heims. Hún er dóttir Sams Walton, stofn-
anda Walmart-verslunarkeðjunnar. Afkom-
endur hans eiga 48% hlut í keðjunni í dag.
Flestir milljarðamæringar eru Banda-
ríkjamenn
Sem fyrr eiga Bandaríkjamenn flesta millj-
arðamæringa á listanum eða 425 talsins.
Næstir koma Rússar og Kínverjar með tæp-
lega 100 hvor þjóð. Á listanum er að finna
128 nýliða en sautján féllu af listanum frá
fyrra ári. Milljarðamæringarnir koma frá
58 löndum en enginn Íslendingur er á list-
anum. Indverski stálkóngurinn, Lakshmi
Mittal, sem á stærsta stálfyrirtæki heims, er
sá sem tapar mestum peningum milli ára
samkvæmt lista Forbes. Auður hans er met-
inn á rúmlega 2600 milljarða króna í dag en
hann tapaði rúmlega 1300 milljörðum milli
ára. Elsti milljarðamæringurinn í hópnum
er 101 árs Svisslendingur, Walter Haefner.
Hann á stóran hlut í hugbúnaðarfyrirtæk-
inu CA. Alls eru sautján manns á listanum
90 ára og eldri.
Ríkasta fólk veraldar árið 2012
Metfjöldi komst inn á nýjasta lista Forbes yfir milljarðamæringa í heiminum í dag. Mexíkóinn Carlos Slim Helú er ríkasti maður heims þriðja árið í röð.