Fréttablaðið - 23.08.2012, Síða 2

Fréttablaðið - 23.08.2012, Síða 2
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR2 ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA SPURNING DAGSINS SAKAMÁL Íslenskur notandi vef- sölutorgsins Bland.is var nærri því búinn að láta leiða sig í gildru þegar hann auglýsti eftir kaup- anda að gamalli smábifreið á vefnum. Kaupandinn þóttist vera norskur en var í raun glæpa- m a ð u r e i n - hvers staðar úti í heimi. „Ég held að hann sé ekki í Noregi,“ segir Einar Skúlason, en hann aug- lýsti gamlan Volkswagen til sölu á vefnum. Kaupandinn reynd- ist hins vegar ekki allur þar sem hann var séður. „Hann gæti verið hver sem er. Hann kynnti sig með mjög norsku nafni svo ég efaðist ekkert um hann. Til að byrja með grunaði mig ekki neitt. Það var bara í lokin sem ég áttaði mig á að eitthvað væri í gangi.“ Auglýsing Einars hafði verið á vefnum í nokkra daga áður en fyr- irspurn kom frá manni sem sagð- ist vera Norðmaður. „Hann vildi hafa samskiptin í tölvupóstformi því það tæki styttri tíma,“ segir Einar. „Við fórum þá að skiptast á bréfum og hann vildi fá fleiri myndir af bílnum. Ég sendi honum þær en svo vildi hann alltaf meiri og meiri upplýsingar svo þetta tók svolítinn tíma. Ætli ég hafi ekki verið í á aðra viku að ræða við hann.“ Sá „norski“ ákvað á endanum að kaupa bílinn og flytja hann til Noregs. Einari þótti það strax skjóta skökku við enda þarfnast bíllinn töluverðs viðhalds og kom- inn til ára sinna. „Hann vildi svo fá að vita nákvæmt verð í norsk- um krónum og nota PayPal.“ Kaupandinn sagðist ætla að greiða inn á biðreikning hjá Pay- Pal sem er greiðsluþjónusta á ver- aldarvefnum. Greiðsluna fengi Einar svo um leið og hann borg- aði flutningsgjaldið. „Ég átti að borga inn á einhvern reikning hjá skipafélagi í Barce- lona,“ segir Einar. „Þá náttúrulega runnu á mig tvær grímur svo ég hafði samband við PayPal en þeir könnuðust ekki við neina biðreikn- inga. Ég áframsendi á þá tölvupóst sem átti að vera frá PayPal. Það var bara svindl, bara afrit af útlit- inu á pappírum frá PayPal.“ PayPal sagði Einari að hann hefði hjálpað til að við að upp- ræta skipulagða glæpastarfsemi. Greiðsluþjónustan hefur síðan rannsakað málið. Ekki náðist í forsvarsmann Bland.is við vinnslu fréttarinnar. birgirh@frettabladid.is ÞEKKIR ÞÚ TIL? Sendu okkur ábendingu á meira@frettabladid.is Féll næstum í gildru alþjóðlegra þrjóta Auglýsing á íslensku vefsölutorgi rataði fyrir augu erlendra glæpamanna sem reyndu að ræna fé af Einari Skúlasyni, notanda á sölutorginu. Glæpamaðurinn þóttist vera norskur en vildi að Einar borgaði flutningskostnað til Barcelona. EINAR SKÚLASON AUGLÝSINGIN Glæpamennirnir ráku augun í þessa auglýsingu og höfðu samband við Einar og reyndu að hafa af honum fé. NEYTENDUR Nýjar skólabækur fyrir framhaldsskóla eru ódýrastar í ritfangaversluninni A4 - Office 1, samkvæmt nýrri könnun ASÍ. Eymundsson í Kringlunni er oft- ast með hæst verð á nýjum bókum. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skóla- bókum í bókaverslunum á höfuð- borgarsvæðinu á þriðjudag. Farið var í átta verslanir. Mál og menn- ing á Laugavegi neitaði þátttöku. Mestur munur var á sögubók- inni „Nýir tímar“, sem var dýrust hjá Eymundsson á 5.499 krónur en ódýrust á 2.999 krónur hjá Griffli. Þar munar 83 prósentum. Flestir titlar á lista ASÍ voru til í Bókabúð Iðnú, eða 31 af 33. A4 – Office 1 og Bóksala stúdenta áttu til 27 titla og Eymundsson 25. Í þeim þremur verslunum þar sem boðið er upp á skiptibóka- markað, var A4 – Office 1 oft- ast með lægsta verðið á notuðum skólabókum eða á 22 af 23 titl- um. Griffill var oftast með hæsta verðið, eða á 19 titlum. Í tilkynn- ingu frá ASÍ segir að hafa beri í huga að verð á algengum bóka- titlum breytist oft ört í verslunum við upphaf skólaárs. - sv A4 - Office 1 oftast með ódýrustu skólabækurnar fyrir framhaldsskóla: 2.500 króna verðmunur á sögubók HRAÐAR VERÐBREYTINGAR ASÍ bendir á að verð á bókatitlum breytist oft ört hjá verslunum við upphaf skólaársins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti fyrstu fimm mánuði ársins er rúmum þrettán milljörðum krón- um meira en á sama tímabili í fyrra. Þá fengust rúmir 57 millj- arðar fyrir aflann frá janúar til maí en í ár fékkst tæplega 71 milljarður og því nemur aukning- in rúmum 23 prósentum. Mestur er munurinn á milli ára í verðmætum uppsjávarafla en hann nam rúmum sau tján millj- örðum í ár. Þar gerir loðnuaflinn í ár gæfumuninn en verðmæti hans var 13 milljarðar samanbor- ið við tæpa níu milljarða í fyrra. Meira fékkst einnig fyrir þorsk- inn en 24 milljarðar fengust fyrir hann sem er rúmlega ellefu pró- sentum meira en í fyrra. - jse Aflaverðmætið eykst: Sóttum sjötíu milljarða úr sjó DÓMSMÁL Óþekktur maður frá Pakistan situr nú í gæsluvarð- haldi, en talið er næsta víst að hann hafi framvísað fölsuðu vegabréfi í Leifsstöð í síðustu viku þegar hann hugðist fara með flugi til Toronto í Kanada. Lögregla reynir nú að komast að því hver maðurinn er í raun og veru og fór fram á það að á meðan mundi hann sæta gæslu- varðhaldi eins og lög gera ráð fyrir að sé mögulegt í tilvikum sem þessum. Á það féllust bæði héraðsdómur og Hæstiréttur. - sh Framvísaði fölsku vegabréfi: Óþekktur Pak- istani í haldi NÁTTÚRA Vísbendingar eru um að nokkuð sé að birta yfir lundastofninum í Vestmannaeyjum. Pysjan er ekki að drepast í stórum stíl eins og undangengin ár og þær sem hafa komist upp virð- ast sprækar. Dr. Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri vistfræði- rannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir þetta mikinn viðsnúning enda hafi lítið sem ekk- ert af lunda komist á legg síðustu tvö ár. „Pysj- urnar eru ekki að fá mikið að éta en ekki það lítið að þær veslist upp. Þetta eru verulega góðar fréttir. Þetta er svipað og 2008 og 2009, sem þóttu reyndar ekki merkileg, en eftir langt tímabil þar sem varpárangur er lélegur þá skiptir þetta máli,“ segir Erpur en árið í ár er það áttunda þar sem varp er langt fyrir neðan meðallag. Erpur Snær segir að ungar hafi fundist í 18% af lundaholum í Eyjum. Góður hluti þess virðist ætla að komast á legg. Fullorðni fuglinn er að éta ljósátu en bera kokteil af síli, síld og loðnu í pysj- una. Erpur segir að fullorðni fuglinn bæti sér upp hallærið á þennan hátt, en ljósátan er ekki orku- rík. Erpur segir athyglisvert að þrátt fyrir töluvert magn af rauðátu sé sandsíli, ein aðalfæða lunda, rýrt. Það veki upp hugmyndir um að makríll, sem gengur nú hvert sumar í miklu magni við landið, sé að éta sílið út á gaddinn með tilheyrandi áhrif- um á fuglastofna. - shá Mest af lundapysjunni í Vestmannaeyjum virðist ætla að komast á legg: Aðeins að birta yfir lundanum RÝNT Í LUNDAHOLU Erpur Snær notar sérhannaða holumynda- vél með innrauðu ljósi til að valda ekki styggð hjá fuglinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR LÖGREGLUMÁL Einn var handtek- inn í Garðabæ á fimmta tímanum í gær eftir að hafa hleypt af skot- vopni í einbýlishúsi við Sunnuflöt. Engan sakaði og málið var leyst farsællega. Lögreglan hafði mikinn viðbún- að eins og venja er þegar hleypt er af byssu og alls tóku um þrjátíu lögreglumenn þátt í aðgerðinni, þeirra á meðal hópur sérsveitar- manna. Loka þurfti nærliggjandi götum í hverfinu um tíma á meðan maðurinn var sóttur í húsið. - sh Sérsveitin kölluð í Garðabæ: Hleypti af skoti í einbýlishúsi SPÁNN Íbúar í smábæ nærri Zara- goza á Spáni sýta nú rúmlega ald- argamla fresku – mynd málaða á kalk – í kirkju bæjarins. Freskan var illa farin af raka- skemmdum og því tók eitt sókn- arbarnið, kona á níræðisaldri, sig til og ákvað að flikka upp á hana án þess að spyrja kóng eða prest. Niðurstaðan er herfileg. BBC hefur eftir fréttaritara sínum að í stað Jesú Krists líkist verkið nú vaxlitamynd af mjög loðnum apa í illa sniðnum kyrtli. Freskan var ekki talin verðmæt en hafði tölu- vert tilfinningalegt gildi. Konan hafði sjálf samband við menning- arfulltrúa bæjaryfirvalda þegar henni varð ljóst að tilraunin hefði misheppnast og mun hafa verið í öngum sínum. - sh Gömul kona í öngum sínum: Breytti Jesú í kafloðinn apa MISHEPPNAÐ Lagfæringin gekk ekki alveg sem skyldi. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Enginn slasaðist alvarlega í hörðum árekstri á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Þar skullu þrír bílar saman, fjórir voru fluttir á slysa- deild og loka þurfti Miklubraut- inni um skeið. Fimm sjúkrabílar og dælubíll slökkviliðs voru sendir á vettvang, auk lögreglubíla. Hinir meiddu voru fluttir á slysadeild Land- spítalans. Búið var að opna fyrir umferð fyrir klukkan átta. - sh Þrír bílar skullu saman: Fjórir á spítala eftir árekstur LEIT ILLA ÚT Sjónarvottar töldu að fólk hefði slasast alvarlega en svo virðist sem betur fer ekki vera. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hafa orðið þáttaskil í málinu? Nei, en við erum á leiðinni til hafnar. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, telur að framúrkeyrsla við þáttagerð RÚV í bænum sé alvarlegt mál þó myndefnið gæti nýst bæjarfélaginu í framtíðinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.