Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 62
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR50
„Tökurnar gengu vel fyrir sig og
það slasaðist enginn,“ segir grín-
istinn Steinþór Steinþórsson, eða
Steindi jr. eins og hann er oftast
nefndur, um tökur á þriðju þátta-
röð Steindans okkar. Fyrsti þátt-
urinn verður frumsýndur á Stöð 2
í kvöld.
Í þáttaröðinni fá áhorfendur að
kynnast fjölda nýrra persóna, þar
á meðal spýtustráknum Gosa sem
glímir við þunglyndi og áfengis-
fíkn og skrollara með ofurkrafta.
Tónlistarmyndböndin skipa enn
veigamikinn sess í þáttunum og
er eitt þeirra tekið upp í fjórum
löndum.
„Ég held að myndbandið gæti
verið einn metnaðarfyllsti skets í
heimi. Við flugum á milli Íslands,
Danmerkur, Englands og Spánar
fyrir tuttugu sekúndur í hverju
landi. Í Danmörku klifraði ég
meðal annars upp á Hafmeyjuna
og leið ógeðslega illa með það.“
Í öðru tónlistarmyndbandi
bregður Steindi sér í gervi gamals
manns og tók það sminkuna fjór-
ar klukkustundir að klára verk-
ið. Útkoman var svo góð að móðir
Ágústs Bents Sigbertssonar leik-
stjóra, sem fór með lítið hlutverk
í þættinum, þekkti Steinda ekki í
sjón.
Inntur eftir því hvort hann eigi
sér uppáhaldspersónu í nýju þátta-
röðinni segist Steindi halda mikið
upp á skrollarann með ofurkraft-
ana.
„Hann býr til hljóðbylgjur með
skrollinu og lifir í hálfgerðum
ævintýraheimi. Í þáttunum tekst
hann á við óvini á borð við mor-
móna, hjólamann sem hjólar á
miðri götunni, bloggara og „beat-
boxara“. Allt óþolandi týpur úr
okkar þjóðfélagi.“
Steindi horfir á fyrsta þáttinn í
góðra vina hópi og kveðst alls ekki
kvíðinn enda er hann meðvitaður
um að húmorinn kitli ekki alla.
„Um leið og þú reynir að geðjast
öllum ertu að gera eitthvað rangt.
Einu áhyggjurnar eru að útsend-
ingin rofni,“ segir hann að lokum.
sara@frettabladid.is
GOTT Á GRILLIÐ
Í Danmörku klifraði
ég meðal annars upp
á Hafmeyjuna og leið ógeðs-
lega illa með það.
STEINÞÓR STEINÞÓRSSON
HÖFUNDUR STEINDANS OKKAR
„Ferskur silungur úr Útey,
bara með sítrónusalti og smá
ólífuolíu með bakaðri kartöflu
með svakalega miklu smjöri
og grænu salati með mangói,
jarðarberjum, höfðingja og
furuhnetum. Sósan með þessu er
sýrður rjómi með eplabitum.“
Kamilla Ingibergsdóttir, kynningarstjóri
Iceland Airwaves.
STEINÞÓR STEINÞÓRSSON: ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÚTSENDINGIN ROFNI
Tók upp tónlistarmynd-
band í fjórum löndum
SPENNTUR FYRIR KVÖLDINU Steindi jr. kveðst spenntur
fyrir frumsýningunni í kvöld. Nýjar persónur munu skjóta upp kollinum,
þar á meðal þessi gamli herramaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Vikan hefur verið blanda af kvíða
og spenningi. Það eru náttúrlega
alveg fjögur ár síðan ég kom fram
með Jakobínurínu en það verður
gaman að missa sig aftur á sviði.
Baldur vinur minn hefur samt
ekki gert neitt þessu líkt svo hann
er enn þá stressaðri,“ segir söngv-
arinn Gunnar Ragnarsson.
Hann syngur með nýstofn-
uðu rokksveitinni Grísalappalísu
ásamt Baldri Baldurssyni í fyrsta
sinn í dag og á laugardaginn eftir
nokkurra ára fjarveru frá rokkinu.
Áður gerði hann garðinn fræg-
an með Jakobínurínu sem vakti
nokkra athygli á heimsvísu.
Sveitin var stofnuð í janúar og er
fyrsta platan næstum tilbúin. „Ég
og Baldur vildum semja rokk og
ról á íslensku og í janúar fengum
við hina til liðs við okkur,“ segir
Gunnar og heldur áfram. „Við
erum að gera þetta svolítið öfugt
eða að taka upp plötu og koma svo
fram.“ Að þessu sögðu fer hann
inn í lýsingu á rokkinu. „Það er
mjög fjölbreytt. Eitt lag er tíu mín-
útna eyðimerkurganga og annað
er einnar og hálfrar mínútu gleði-
pönk. Yfirleitt er þetta samt kraft-
mikið og svolítið „in your face“.“
Nafnið Grísalappalísa á rætur
að rekja til tónsmíða Megasar en
eitt laga hans ber þennan titil.
En af hverju þetta nafn? „Baldur
lét graffa „Hey Grísalappalísa“
á húsið sitt við mynd af Megasi
fyrir stuttu og eftir það var nafn-
ið ákveðið.“
Sveitina skipa auk Gunnars og
Baldurs þeir Albert Finnbogason,
Bergur Thomas Anderson, Sig-
urður Möller Sívertsen, sem var
trommari Jakobínurínu, og Tumi
Árnason. Þeir frumflytja íslenska
rokkið í 12 Tónum klukkan sex í
dag og á tónleikum með sveitinni
Skelk í bringu á Hemma og Valda
klukkan níu á laugardagskvöldið.
- hþt
Syngur á ný eftir Jakobínurínu
GRÍSALAPPALÍSA Gunnar Ragnarsson
stígur aftur á svið eftir fjögurra ára
fjarveru frá rokkinu. Með honum í fram-
línunni verður Baldur Baldursson.
Handbæ
kur 15.–21.08.2012
Ítalski hryllingsmyndaleikstjórinn,
kvikmyndaframleiðandinn og hand-
ritshöfundurinn Dario Argento er
heiðursgestur á RIFF í ár. Þar hlýt-
ur hann verðlaun fyrir framlag sitt
til kvikmyndalistarinnar og verður
úrval kvikmynda hans á dagskrá.
Argento er hvað frægastur fyrir
að vera einn af handritshöfund-
um Once Upon a Time in the West
(1968), myndina The Bird with
the Crystal Plumage (1970) sem
var hans fyrsta í leikstjórastóln-
um og Profondo Rosso (1975) eða
Deep Red sem er af mörgum kvik-
myndaáhugamönnum talin ein
besta „giallo“ mynd allra tíma. Hún
er bæði blóðug og stíliseruð en það
er eitt af sérkennum leikstjórans.
Það var þó með myndinni Suspiria
(1977) sem Argento stimplaði sig
endanlega inn í kvikmyndasöguna
en myndin þykir ein magnaðasta
hrollvekja allra tíma. Suspiria virð-
ist rata aftur og aftur í miðnætur-
bíó víða um heim en hún nýtur mik-
ils fylgis meðal költ-áhugamanna,
kvikmyndafræðinga, gagnrýnenda
og almennings.
Argento, sem er faðir leikkon-
unnar Asiu Argento, er enn að fást
við kvikmyndagerð og er duglegur
að tileinka sér nýja tækni. Á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni frumsýndi
hann myndina Dracula 3D. Arg-
ento mun ávarpa gesti RIFF í sér-
stökum masterklassa sem verður
innan hátíðarinnar en hún fer fram
dagana 27. september til 7. október
næstkomandi.
Argento heiðursgestur á RIFF
HROLLVEKJUR Ítalski leikstjórinn Dario
Argento hefur komið víða við.
NORDICPHOTOS/GETTY