Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 18
18 23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Meirihluti kjósenda veitti ríkisstjórn-arflokkunum brautargengi í síðustu
Alþingiskosningum til þess að breyta
þjóðfélaginu. Vinstri flokkunum var ætlað
að koma böndum á græðgina og siðleysið
sem nýfrjálshyggjan leysti úr læðingi þar
sem fámennur hópur manna sópaði til sín
miklum auðævum í skjóli ranglátra laga
og leiddi á fáum árum til bankahrunsins.
Flokkarnir sögðu kjósendum að eitt allra
stærsta umbótamálið væri að umbylta
löggjöfinni um sjávarútveginn og lögðu
fram skýra stefnu um áform sín. Nú þegar
dregur að lokum kjörtímabilsins er orðið
ljóst að þeir hafa guggnað. Félagshyggju-
flokkarnir virðast á valdi hagsmunaaðila
og hugmyndafræðilega gjaldþrota. Þeir
boða opinskátt áfram sömu frjálshyggj-
una og nærði græðgina fyrir hrun.
Samfylkingin og Vinstri grænir sögðust
ætla að úthluta nýtingarréttinum á jafn-
ræðisgrundvelli til hóflegs tíma gegn
fullu gjaldi. Þeir sögðu báðir að kvóta-
kerfið stæðist ekki jafnræðisreglu samn-
ings um borgaraleg og stjórnmálaleg
réttindi. Þeir sögðu báðir að núverandi
kvótaúthlutun samræmdist ekki kröfunni
um sanngjarnar og réttlátar leikreglur.
En nú ætla vinstri flokkarnir að úthluta
áfram sömu mönnum 94% af kvótanum.
Þeir ætla áfram að úthluta ótímabundið og
þeir ætla áfram að afhenda réttinn fyrir
brot af því verði sem kvótagreifarnir hafa
sjálfir búið til og láta borga sér. Þeir ætla
áfram að leyfa þessum fáu kvótahöfum
að selja kvótann og hirða allar tekjurnar.
Græðgin fær áfram sitt.
Árið 2007 var allur kvóti á Flateyri
seldur burt. Seljandinn er 9. ríkasti maður
landsins skv. tekjublaði Frjálsrar versl-
unar. Það verður áfram þannig að sjó-
menn og landverkafólk ráða engu um það
hvað verður um kvótann. Áfram verð-
ur allur kvótinn óbundinn sjávarbyggð-
unum. Áfram verður engin samkeppni
um veiðiheimildir og engin aðkoma fyrir
nýja aðila á jafnræðisgrundvelli. Áfram
verður fiskverð og ráðstöfun aflans einka-
mál kvótahafans. Áfram verður hægt að
veðsetja kvótann og taka út framtíðartekj-
urnar. Áfram verður hugarfarið drekkum
í dag og iðrumst á morgun. Áfram munu
fáir græða mikið og margir tapa. Til þess
að svikamyllan geti örugglega haldið
áfram ætla vinstri flokkarnir í góðri sam-
vinnu við gömlu kvótaflokkana að sjá til
þess að þessu verði ekki breytt næstu 20
árin. Áfram verður ranglætið.
Græðgi frjálshyggjunnar áfram
Sjávar-
útvegsmál
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
Frá aðeins kr. 89.900 í 14 nætur
14 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum 28. ágúst
í 14 nætur til Benidorm. Þú bókar flugsæti og gistingu og 3 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur hækkað
án fyrirvara.
Kr. 89.900 - 14 nátta ferð
Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Sértilboð 28. ágúst.
Stökktu til
Benidorm
28. ágúst
Blind gróðahyggja
Björn Jón Bragason er framkvæmda-
stjóri samtaka sem kalla sig Samtök
kaupmanna og fasteignaeigenda við
Laugaveg. Þau hafa barist gegn lokun
Laugavegar fyrir bílaumferð, en sam-
kvæmt þeim mun hún ekki aðeins
leggja miðborgina í auðn, heldur
er það einnig brot á
réttindum aldraðra og
fatlaðra. Nú er komin
út skýrsla um aðstæður
á Laugaveginum með
hliðsjón af aðgengi fyrir
blinda og sjónskerta.
Niðurstaðan er ansi
afgerandi, á sumrin
á gatan að vera göngugata upp að
Snorrabraut. Því er úr vöndu að
ráða hjá Birni Jóni og hans blindu
gróðahyggjumönnum í réttindabar-
áttu þeirra fyrir minnihlutahópa.
Ábyrgð skuldara
Það er líklega ekki vinsælt viðhorf,
en í allri umræðunni um hin
svokölluðu smálánafyrir-
tæki og vonda siði þeirra,
virðist hafa gleymst að það
er ábyrgðarhluti að taka
lán. Sú ábyrgð hvílir á þeim
sem það tekur.
Venjubundnu vitnin
Steingrímur J. Sigfússon fer mikinn í
Fréttablaðinu í gær. Hvað samstöðu
stjórnarflokkanna áhrærir segist hann
hafa talið að menn væru orðnir leiðir
á að láta nota sig til að ala á ímynd-
uðu sundurlyndi flokkanna. Hins
vegar séu alltaf „þessi venjubundnu
vitni leidd fram“ til að reka ímyndaða
fleyga í samstarfið. Gaman
væri að sjá hverja formaður
Vinstri grænna telur fylla
þennan flokk venjubund-
inna vitna og hvort ein-
hverjir flokksmenn hans
séu þar á meðal.
kolbeinn@frettabladid.isN
emendur landsins hefja skólagöngu vetrarins þessa
daga. Eftirvæntingin er líklega mest hjá sex ára
börnunum sem ganga nú inn í heim sem hefur verið
þeim flestum framandi hingað til.
Börnin eru mistilbúin til að takast á við skiptin
frá leikskóla yfir í grunnskóla, eins og gengur. Meðan sum hafa
beðið óþreyjufull eftir fyrsta skóladeginum eru önnur sem væru
fyllilega sátt við að vera áfram í gamla notalega leikskólanum
sínum. Upplifun barnanna er einnig mismunandi. Meðan sum
eiga auðvelt með að semja sig að nýjum siðum og kröfum eru
önnur sem eiga ekki eins auð-
velt með að takast á við breyt-
ingarnar og verða þá sum fyrir
vonbrigðum með skólagönguna.
Verkefni skólans er þannig ekki
alltaf auðvelt því hann á að
koma til móts við öll þessi börn.
Meginnámsverkefni fyrsta
skólaársins er lesturinn því með
honum er lagður grunnur að öllu öðru bóklegu námi. Flest börn
læra tæknina við að lesa í skólanum. Sísí og Óli úr Gagni og
gamni eru reyndar víðs fjarri og aðrar aðferðir og annað náms-
efni tekið við.
Það gildir hins vegar það sama um börnin sem hefja skóla-
gönguna haustið 2012 og þau börn sem lærðu að lesa upp úr
Gagni og gamni og eru nú orðin afar og ömmur að þjálfunin í
lestri skiptir sköpum um færnina. Enginn verður hvorki hraður
og góður lesari né öðlast nákvæman lesskilning öðruvísi en að
æfa tæknina í þaula. Sú æfing fer vissulega fram með heima-
lestri sem skólinn setur fyrir en fyrst og fremst með öðrum
lestri.
Í raun má segja að æfingin hefjist um leið og foreldrar fara að
lesa fyrir börn sín lítil. Síst dregur úr mikilvægi þessa daglega
lesturs eftir að stafainnlögn og lestrarnám er hafið. Á sama
tíma þarf að hvetja börnin til þess að nýta lestrarkunnáttuna
og spreyta sig sjálf og um leið og þau eru orðin stautfær þarf að
aðstoða þau við að finna lesefni sem höfðar til þeirra og halda
að lesefninu. Sjálfsagt er að halda áfram að lesa fyrir börnin
eins lengi og þau óska eftir því enda felst í því talsverð þjálfun
að horfa á texta sem lesinn er upphátt.
Hlutverk foreldranna felst samt ekki bara í því að lesa fyrir
börn sín og veita þeim aðhald við lesturinn. Foreldrarnir verða
að vera börnum sínum fyrirmynd líka. Barn sem elst ekki upp
við að fólkið í kringum það lesi hlýtur að eiga erfiðara með að sjá
tilganginn með því að vera sílesandi. Þjálfunin sem felst í því að
vera lestrarfyrirmynd hefst um leið og barnið er farið að horfa
í kringum sig því barn sem verður vitni að lesandi foreldrum er
líklegra til þess að langa að læra að lesa en barn sem ekki er alið
upp við að fólkið í umhverfi þess færi sér lestrartæknina í nyt.
Lestur og lesskilningur er grunnurinn að öllu öðru bóklegu
námi.
Þátttaka foreldra í lestrarnámi barna skiptir þau þannig
óendanlega miklu máli.
Lestur er grunnur að öllu því bóklega námi
sem bíður sex ára barnsins:
Sísí segir …
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
SKOÐUN