Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
■ Gerður Guðrún Árnadóttir er íslensk
sveitastúlka úr Hlíðarendakoti og áhuga-
kona um tísku og hönnun. Hún er búsett
í London og heldur úti myndabloggi með
því sem veitir henni innblástur í daglegu
lífi. Bloggið kallar hún I have a dream …
og slóðin er www.gerdur9.blogspot.com.
Hvenær fórstu að hafa áhuga á tísku? Ég
hef alltaf haft óbeinan áhuga á tísku en
það var ekki fyrr en fyrir fjórum árum
sem ég fór að fylgjast með tískuheim-
inum af alvöru.
Hvað leggur þú áherslu á þegar
þú bloggar? Bloggið mitt er
í raun rafræn úrklippubók
þar sem ég safna myndum
sem veita mér innblástur.
Meginmyndefni bloggsins er
tískutengt, svo sem myndir
frá tískusýningum og úr
tískublöðum, en einnig eru tón-
listarmyndbönd og listaverk
inni á milli, hlutir og myndir
sem hrífa mig. Ég skrifa ekki
mikið því ég vil að myndirnar
tali sínu máli til hvers og eins
og fólk fái að mynda sér sínar
eigin skoðanir á þeim.
Hvað ertu að gera um þessar
mundir? Ég bý í London og
er í meistaranámi í listfræði
með áherslu á ljósmyndun
í Birkbeck University of
London. London er að
mínu mati hin fullkomna
borg til að stunda list-
og tískunám því megin-
straumar og -stefnur í list og
tísku eru annaðhvort staðsett hér
eða eiga leið um borgina.
Þú ert úr sveit, hvernig hefur það mót-
að þig sem tískuáhugakonu? Sveitin
er yndisleg og ég tel mig mjög heppna
að hafa alist þar upp og verð alltaf bóndi
í hjartanu. Fegurðin kemur að innan og
ég lít á flíkur, skó og snyrtivörur sem
veraldlega muni sem ýta undir þína nátt-
úrulegu fegurð. Ég sem einstaklingur
á ekki að breyta mér til að laga mig að
þessum veraldlegu munum.
Segðu okkur frá tilraunum þínum með
hárgreiðslur. Ég breyti gjarnan um hár-
greiðslu og það er auðvelt ef maður
hugsar vel um hárið og notar réttu vör-
urnar til að viðhalda því. Ég nota Label
M og Moroccanoil til að viðhalda
sterku og fallegu hári. Ætli þetta
sé ekki bara tímabil sem ég er að
þreifa mig í gegnum, hárið vex
alltaf aftur að lokum.
Hvaða hönnuðir eru í upp-
áhaldi? Ég held upp á
nokkra, bæði íslenska
og erlenda. Þeir erlendu
eru hinn japanski Yohji
Yamamoto, Olsen-systur
með The Row og eins
hef ég gaman af skandi-
navískri hönnun eins
og Barbara í Gongini,
Henrik Vibskov, Mini-
market, Moonspoon
Saloon og Steine Goya.
Íslenskir fatahönnuðir
gefa þeim erlendu ekkert
eftir og ég er mjög hrifin
af Kalda, Spaksmanns-
spjörum, Aftur, Kron by
Kronkron, Kormáki&Skildi
og Hildi Yeoman.
Er einhver flík sem þú stenst
ekki? Ég á alltaf erfitt með að
segja nei við fal-
legu skópari.
TILRAUNIR OG
TÍSKUBLOGG
Gerður Guðrún hefur
gaman af að breyta um
hárgreiðslu og leitar
gjarnan að innblæstri í
tískublöðum.
TÍSKUBLOGG | GERÐUR GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR LISTFRÆÐINEMI
RAFRÆN ÚRKLIPPUBÓK
● Íslensk/þýska
hönnunarteymið
Ostwald Helgason
er að gera það
gott en fjallað
hefur verið um
hönnun þess í
virtum tímaritum
í tískubransanum
og á vefsíðum svo
sem style.com
undanfarið ár.
Nú síðast birtist
hönnun OH í sept-
emberblaði Teen-
Vogue og í septem-
berblaði Flare. Hægt
er að fylgjast með
merkinu á Facebook.
OSTWALD
HELGASON Á
FLUGI
- Stafgan
ga -
Áhrifarík
leið
til líkamsræ
ktar
Stafgöngunámskeið hefjast 28. ágúst 2012
GUÐNÝ ARADÓTTIR, stafgönguþjálfi. Sími: 825 13 65.
JÓNA H. BJARNADÓTTIR, stafgönguþjálfi. Sími: 694 35 71.
BYRJENDANÁMSKEIÐ: Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
FRAMHALDSHÓPUR: Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Skráning & nánari upplýsingar á: www.stafganga.is
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Aðeins
5
Útsölunni
lýkur
• 1.000,-
• 1.500,-
• 2.000,-
• 2.500,-
• 3.000,-
verð
Verðsprengja
ALLT Á AÐ SELJAST
komdu og gerðu
frábær kaup
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 40 – 58
50% aukaafsláttu
r af merktu
útsöluverði
við kassa
Útsala
á útsölunni
LOKA – ÚTSÖLULOK