Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 16
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd
Seðlabanka Íslands kynnti í gær þá
ákvörðun sína að halda nafnvöxt-
um bankans óbreyttum um sinn.
Eftir ákvörðunina eru virkir stýri-
vextir bankans sem fyrr 5,125%.
Seðlabankinn kynnti einnig í
gær uppfærða hagspá sem gerir
ráð fyrir sterkara gengi krónunn-
ar, og fyrir vikið betri verðbólgu-
horfum, en síðasta spá bankans. Þá
spáir bankinn ívið meiri hagvexti
á næstu misserum en í síðustu spá.
Í yfirlýsingu peningastefnu-
nefndar segir að verðbólguhorfur
til næstu tveggja ára hafi batnað
á síðustu vikum þótt enn sé ekki
reiknað með því að 2,5% verðbólgu-
markmið Seðlabankans náist fyrr
en að nokkrum árum liðnum.
Bættar horfur skýrast aðal-
lega af þeirri styrkingu sem orðið
hefur á gengi krónunnar síðustu
mánuði. Gengið hefur styrkst
um ríflega 8% frá síðustu hagspá
Seðlabankans sem gefin var út í
maí.
Þá ítrekaði peningastefnunefnd-
in að eftir því sem efnahagsbatan-
um yndi fram yrði nauðsynlegt
að hækka raunstýrivexti. Að hve
miklu leyti sú aðlögun ætti sér stað
með hærri nafnstýrivöxtum færi
eftir framvindu verðbólgunnar.
Ákvörðun peningastefnunefnd-
arinnar var í takt við spár grein-
ingaraðila sem höfðu reiknað með
óbreyttum vöxtum. Eins og áður
sagði eru virkir nafnstýrivextir
bankans sem fyrr 5,125%. Virk-
ir raunstýrivextir eru hins vegar
um 0,5% en voru neikvæðir um
0,5% við síðustu vaxtaákvörðun.
Aðhald peningastefnunnar hefur
því aukist samhliða lækkandi
verðbólgu upp á síðkastið. Mun sú
þróun halda áfram til næstu vaxta-
ákvörðunar gangi verð bólguspá
Seðlabankans eftir. Næsta vaxta-
ákvörðun er 3. október næstkom-
andi.
Samhliða kynningu á vaxta-
ákvörðuninni gaf Seðlabankinn út
nýtt eintak Peningamála með upp-
færðri hagspá bankans.
Í spánni er gert ráð fyrir að hag-
vöxtur verði 3,1% á þessu ári, 2,2%
á því næsta og 3,4% árið 2014. Er
það lítillega hærri spá en sú sem
bankinn kynnti í maí þótt minni
hagvexti sé nú spáð á næsta ári.
Sem fyrr telur bankinn að
aukin fjárfesting verði helsti
aflvaki hagvaxtar á næstu miss-
erum en framlag einkaneyslu er
einnig nokkurt. Telur bankinn að
fjárfesting aukist um 9% á þessu
ári og einkaneysla um 3%.
Mesta breytingin í uppfærðu
spánni er á gengi krónunnar en
Seðlabankinn spáir því nú að
gengi krónunnar verði um 8%
hærra á næstu misserum en gert
var ráð fyrir í síðustu spá.
Loks metur Seðlabankinn horf-
ur um atvinnuleysi betri en í síð-
ustu spá. Gerir bankinn ráð fyrir
að atvinnuleysi verði að meðal-
tali 5,9% á þessu ári, 5,2% á því
næsta og 4,4% árið 2014.
magnusl@frettabladid.is
eru sem
fyrr virkir
stýrivextir
Seðla-
banka Íslands eftir vaxta-
ákvörðun í gær.
ER SKULDATRYGGINGAÁLAG Ríkissjóðs Íslands en
álagið hefur lækkað lítillega síðustu þrjá mánuði.2,8%
Vöxtum haldið óbreyttum um sinn
Peningastefnunefnd Seðlabankans kaus að halda stýrivöxtum óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sem kynnt var í gær. Bankinn
telur ólíklegt að styrkingin á gengi krónunnar síðustu mánuði gangi til baka og batna verðbólguhorfur bankans töluvert fyrir vikið.
SEÐLABANKI ÍSLANDS Þeir Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynntu vaxta-
ákvörðun peningastefnunefndar og uppfærða hagspá bankans í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nokkrar umræður spunnust um spá Seðlabankans um
þróun gengis krónunnar á næstu misserum á blaða-
mannafundi bankans vegna vaxtaákvörðunarinnar í gær.
Gengi krónunnar hefur styrkst um rúm 8% frá síðustu
vaxtaákvörðun í maí og spáir bankinn því að gengið
haldist svipað næstu misserin. Er það helsta skýring þess
mats að verðbólguhorfur hafi batnað nokkuð.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri var spurður út í
forsendur þessarar spár og jafnframt að því hvort gengi
krónunnar væri of hátt skráð. Már svaraði að sumir hefðu
haldið því fram að árstíðasveiflu væri að finna í gengi
krónunnar og væru á þeim grundvelli að spá veikingu
krónunnar á næstu mánuðum. „Við erum hins vegar ekki
sannfærð um það, þessi meinta árstíðasveifla er mjög
óregluleg og það er erfitt að mæla slíka sveiflu á grund-
velli reynslu tveggja ára. Það er því ekki víst að krónan
veikist á næstu mánuðum,“ sagði Már og bætti við að
ýmsir óvissuþættir flæktu myndina svo sem hve langt inn
í veturinn ferðamannavertíðin teygðist og hversu mikil
þörf yrði á næstunni hjá stórum aðilum innanlands að
halda áfram hröðu endurgreiðsluferli á erlendum lánum.
„Ég myndi því ekki veðja eigin fé á það hvernig gengi
krónunnar þróast á næstunni, það veit enginn,“ sagði
Már enn fremur.
Ekki árstíðasveifla í gengi krónunnar
EGYPTALAND, AP Egyptaland óskaði
í gær eftir fjárhagsaðstoð frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS).
Í tilkynningu frá egypskum
stjórnvöldum
kemur fram að
búist sé við því
að gengið verði
frá samkomu-
lagi við AGS
fyrir lok þessa
árs. Landið
óskar eftir jafn-
gildi 575 millj-
arða króna.
Nýr forseti,
Mohammed Morsi, tók við völd-
um í júní en ríkisfjármál landsins
versnuðu verulega á þeim tíma
sem leið frá því að einræðisherr-
anum Hosni Mubarak var steypt
af stóli. - mþl
Vilja 575 milljarða króna:
Egyptaland
leitar til AGS
RÚSSLAND, AP Rússland gekk í gær
formlega í Alþjóðaviðskiptastofn-
unina, WTO, en 18 ára samninga-
viðræðum um aðild landsins lauk
seint á síðasta ári.
Með aðildinni að WTO munu
innflutningstollar í Rússlandi
lækka um 5,9% að meðaltali fyrst
um sinn sem gagnast þarlendum
neytendum. Þá vonast erlendir
fjárfestar og fyrirtæki eftir því
að í kjölfarið verði þeim gert auð-
veldara fyrir að eiga í viðskiptum
í landinu. Alls á 151 land aðild að
WTO, þar af nær öll ríki Vestur-
landa. - mþl
Tollar lækka í Rússlandi:
Rússland gekk í
gær í WTO
MOHAMMED
MORSI
5,125%