Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 23. ágúst 2012 37
„Þetta er fyrsta tónleikaferðin okkar til útlanda svo við erum mjög
spenntir,“ segir Daði Freyr Pétursson, meðlimur hljómsveitarinnar
RetRoBot sem er nú stödd á tónleikaferðalagi í Hollandi.
RetRoBot sigraði Músíktilraunir í lok mars og hefur verið á fleygi-
ferð síðan. „Við erum búnir að spila um hverja helgi frá því við unnum
og stundum tvisvar eða þrisvar um helgi,“ segir Daði Freyr og bætir
við að líf þeirra hafi því breyst mikið frá því þeir báru sigur úr býtum í
Austurbæ. Þeir verða í Hollandi fram yfir helgi og spila á þremur stöð-
um, þar á meðal á Westerpop-tónlistarhátíðinni í Delft. Ferðin er hluti af
sigurverðlaunum þeirra úr Músíktilraunum. Ævintýrið er þó bara rétt
að byrja því fram undan hjá þeim eru ferðir bæði til Noregs og Póllands
nú á haustmánuðum auk þess sem þeir stefna á útgáfu EP-plötu á næstu
dögum. „Við erum svo að semja stóra plötu í rólegheitum, okkur liggur
ekkert á heldur viljum við bara gera það almennilega,“ segir Daði Freyr.
Sem sigurvegarar Músíktilrauna hefur hljómsveitin stór spor til að
fylla í. Sigurvegarinn frá því í fyrra, hljómsveitin Samaris, hefur verið
að gera gríðarlega góða hluti og Of Monsters and Men sem sigruðu árið
2010 eru að leggja heiminn að fótum sér um þessar mundir. - trs
Spennandi tímar hjá RetRoBot
Á FLEYGIFERÐ Daði, Pálmi, Mummi og Gunnlaugur eru búnir að vera á fullu síðan
hljómsveit þeirra RetRoBot vann Músíktilraunir í lok mars og nú eru þeir komnir til
Hollands. MYND/ÁRNÝ FJÓLA ÁSMUNDSDÓTTIR
DansLið þáttanna
kemur sérstaklega
á vegum:
5 ÁRA KAMERON BINKÍ TILEFNI AF AFMÆLI SKÓLANS VERÐUR ÚR
So You Think You Can Dance? GLÆSILEG SÝNING Í HÖRPUNNI!
ÞÖKKUM DANSGLEÐINA Á LIÐNUM ÁRUM! 10. SEPT!
AÐALKENNARI SKÓLANS –
KRAFTMIKLIR DANSTÍMAR Í HAUST BYRJA
JAZZFUNK – STREET – HIP HOP – BREAK – NÚTÍMADANS – BARNADANSAR & BALLETT - ZUMBA
ALDUR: 4-6 ára, 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16-19 ára & 20 ára eldri (Dömur sem elska Dansa!)
12 VIKNA ANNIR – ÁRSKORT – MARG BORGAR SIG!
TRYGGÐU ÞÉR PLÁSS
dancecenter.is!
MEÐ ÞVÍ AÐ
SKRÁ ÞIG STRAX Á
dancecenter.is
dancecenter@dancecenter.is
777 3658
Nánari upplýsingar fást á
og á facebookgrúbbu DanceCenter RVK.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á
eða hringja
í síma hjá DanceCenter Reykjavík.
REYKJAVÍK
(ÞRÓTTUR)
KÓPAVOGUR
(HK, DIGRANESI)
GARÐABÆR
(SJÁLANDSSKÓLA)
HAFNARFJÖRÐUR
(FH, KAPLAKRIKA)
5 ÁRA
AFMÆLI!
Opið laugard. kl. 10-14
Söngkonan Avril Lavigne er nú
trúlofuð í annað sinn en sá heppni
er söngvarinn Chad Kroeger úr
sveitinni Nickelback. Trúlofun-
in kemur aðdáendum söngkon-
unnar nokkuð á óvart þar sem
fæstir vissu að hún ætti kær-
asta. „Þau hittust í febrúar til
að semja saman lag fyrir næstu
plötu Lavigne. Ástin kviknaði á
meðan og þann 8. ágúst bað Kroe-
ger söngkonunnar með 14 karata
demantshring,“ skrifar People.
Lavigne var áður gift Deryck
Wibley í þrjú ár en þau skildu
árið 2009. Síðan þá hefur söng-
konan verið í sambandi með
raunveruleikastjörnunni Brody
Jenner.
Trúlofuð
HAMINGJUSÖM Avril Lavigne fékk
bónorð frá Chad Kroeger í byrjun ágúst.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sænski sjarmörinn Alexander
Skarsgård er nýtt andlit tísku-
merkisins Calvin Klein ásamt
fyrirsætunni Löru Stone. Skars-
gård fetar þar með í fótspor leik-
ara á borð við Diane Kruger, Evu
Mendes, Zoe Saldana og Kellan
Lutz. Einnig var landi hans, fót-
boltakappinn Fredrik Ljungberg,
frægur fyrir að auglýsa nærfatn-
að Calvin Klein.
Skarsgård, sem er hvað fræg-
astur fyrir hlutverk sitt í vamp-
íruþáttunum True Blood, þykir
takast vel til sem fyrirsæta en
þar auglýsir hann nýja ilminn
Encounter.
Nýtt andlit
Calvin Klein
FYRIRSÆTA Leikarinn Alexander Skars-
gård er andlit ilmsins Encounter frá
Calvin Klein.