Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 54
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR42
bio@frettabladid.is
42
HUGREKKI Í PRUFU Kelly MacDonald, sem ljáir Meridu rödd sína í
myndinni Brave, segist hafa þurft á öllu sínu hugrekki að halda þegar hún
sótti um hlutverk í kvikmyndinni Trainspotting árið 1996.
Hasarmyndin The Expenda-
bles 2 var frumsýnd í kvik-
myndahúsum í gær.
Hópur málaliða er sendur til Nepal
í þeim erindagjörðum að bjarga
lífi kínversks auðjöfurs. Hópur-
inn er leiddur af Barney Ross og
samanstendur af fyrrum her-
manninum Lee Christmas, bar-
dagaíþróttamanninum Yin Yang,
vopnasérfræðingnum Hale Caesar,
sprengjusérfræðingnum Toll Road,
leyniskyttunni Gunnar Jensen og
nýliðanum Billy the Kid. Verkefnið,
sem í fyrstu virðist hægðarleikur,
fer þó úr böndunum og þegar einn
úr hópnum er myrtur ákveða hinir
að leita hefnda.
Myndin er framhald The Exp-
endables frá árinu 2010 og með
aðalhlutverk fara kappar á borð
við Jet Li, Sylvester Stallone, Jason
Statham, Dolph Lundgren, Bruce
Willis, Chuck Norris, Jean-Claude
Van Damme, Liam Hemsworth og
Arnold Schwarzenegger auk Terry
Crews og Randy Couture. Stallone
á heiðurinn að handriti myndar-
innar ásamt Richard Wenk, en þeir
sömdu einnig handrit fyrri mynd-
arinnar.
Leikstjóri myndarinnar er
Simon West, sem á meðal annars
að baki hasarmyndirnar Con Air,
Lara Croft: Tomb Raider og The
Mechanic, og leysti hann þar með
Stallone af hólmi sem vildi heldur
einbeita sér að framleiðsluhluta
myndarinnar.
The Expendables 2 hefur feng-
ið 67 prósent ferskleikastig frá
gagnrýnendum kvikmyndasíð-
unnar Rottentomatoes.com en 82
prósent frá hinum almenna áhorf-
enda. Myndin inniheldur mikið af
fimmaurabröndurum í anda gömlu
hasarmyndanna sem gerðu Stal-
lone að stjörnu og auðvitað nóg af
hasar og skotbardögum. The Exp-
endables 2 mun gleðja aðdáend-
ur Rambo-myndanna og annarra
mynda á borð við No Retreat, No
Surrender og Above the Law en
kvikmyndaunnendur sem féllu
fyrir King‘s Speech ættu líklega að
halda sig heima við í þetta skiptið.
Hasarhetjurnar snúa aftur
FULLT AF HASAR Gömlu hasarhetjur níunda áratugarins snúa aftur í The Expendables 2. Myndin er hugarfóstur Sylvesters Stallone.
Leikararnir Jim Carrey og Jeff
Daniels hafa samþykkt að leika
í framhaldsmyndinni Dumb and
Dumber 2. Það var leikstjórinn og
handritshöfundurinn Bobby Far-
relly sem staðfesti þessar fregnir
við kvikmyndavefinn Digital Spy
en hann leikstýrði félögunum í
grínmyndinni vinsælu ásamt bróð-
ur sínum Peter.
„Við höfum verið að vonast eftir
þessu og lengi langað til að sameina
þá Carrey og Daniels á ný. Það eru
næstum tuttugu ár síðan myndin
var frumsýnd og leikararnir eru
nú á þeim stað á sínum ferli að þeir
vilja endurtaka leikinn. Við ætlum
því að gera þessa mynd.“
Farrelly ljóstrar einnig upp um
söguþráð myndarinnar sem geng-
ur út á að Harry Dunne og Lloyd
Christmas legga sig í líma við að
finna afkvæmi annars þeirra.
Dumb and Dumber var ein vin-
sælasta grínmynd tíunda áratugar-
ins en hún var frumsýnd árið 1994.
Árið 2000 komst myndin í fimmta
sæti yfir bestu grínmyndir allra
tíma hjá tímaritinu Total Film en
þeir eru eflaust margir aðdáend-
urnir sem bíða eftirvæntingarfull-
ir eftir framhaldinu.
Carrey og
Daniels endur-
taka leikinn
FRAMHALDSMYND Þeir Jim Carrey
og Jeff Daniels snúa aftur sem Harry
Dunne og Lloyd Christmas í Dumb and
Dumber 2.
★★★★★
TO ROME WITH LOVE
„Fágunin og fáránleikinn ganga í
eina sæng og úr verður skemmti-
legur hræringur sem ætti að höfða til
flestra aðdáenda leikstjórans.“
★★★★★
TOTAL RECALL
„Hér er lítið meira í boði en sviðs-
myndin og brellurnar.“
★★★★★
HRAFNHILDUR
„Falleg frumraun sem allir hafa gott
af að sjá.“
★★★★★
THE DARK KNIGHT RISES
„Helst til þunglamalegur lokakafli en
mikil veisla fyrir augað.“
★★★★★
THE AMAZING SPIDERMAN
„Skref í rétta átt fyrir Köngulóarmann-
inn.“
★★★★★
TED
„Sprenghlægilegur bangsi í þokkalegri
mynd. En skiljið börnin eftir heima.“
★★★★★
INTOUCHABLES
„Sígild saga í fallegum búningi.“
★★★★★
BERNIE
„Bernie er afbragð og Jack Black hefur
aldrei verið betri.“
Paul Schneider og Olivia Munn
leika hjónin Tommy og Audrey í
myndinni The Babymakers sem
kemur í bíóhúsin um helgina.
Barneignir eru næstar á dag-
skrá hjá hjónunum en eftir að
hafa stundað óvarið kynlíf í gríð
og erg án þess að það beri nokk-
urn árangur fara þau að óttast um
að ekki sé allt með felldu. Eftir
rannsóknir hjá lækni kemur í
ljós að Tommy er með of fáar og
hægar sáðfrumur og því ólíkleg-
ur til að ná að barna konu sína.
Ekki er þó öll von úti um að hann
geti feðrað barnið því í ljós kemur
að enn er einn skammtur eftir af
sæði sem hann hafði gefið í sæð-
isbanka fimm árum áður. Þegar í
ljós kemur að skammturinn hefur
þegar verið seldur og engin leið
fyrir Tommy til að kaupa hann til
baka eru góð ráð dýr. Félagi hans
hefur þó ráð á reiðum höndum og
fær til liðs við sig indverskan smá-
bófa og sannfærir Tommy um að
skipuleggja innbrot inn í sæðis-
bankann til að stela sæðinu. Með
önnur helstu hlutverk fara Kevin
Heffernan, Aisha Tyler og Jay
Chandrasekhar, sem einnig leik-
stýrir myndinni.
Myndin Elles verður frumsýnd í
Bíói Paradís á föstudaginn. Elles er
frönsk mynd sem fjallar um blaða-
manninn Anne Binoche og rann-
sóknir hennar í tengslum við grein
um ungar námskonur sem sjá sér
farborða með vændi. Af kynnum
sínum við stúlkurnar kemst hún
að því að þær hafa fæstar sorg-
arsögu að segja heldur er vænd-
ið þvert á móti val þeirra og þær
upplifa stolt og frelsi í gegnum það.
Myndin hefur fengið mikla athygli
og verið mjög umdeild. - trs
Latt sæði leiðir til bankaráns
DREYMIR UM BARNEIGNIR Tommy og Audrey reyna allt hvað þau geta til að eignast
barn í myndinni The Babymakers og grípur Tommy til örþrifaráða þegar í ljós kemur
að latt sæði hans er ástæða þess að ekkert gengur.
FIMM DAGA Í TÖKUM
■ Leikarinn Taylor Lautner kom til
greina til að fara með hlutverkið
Billy the Kid. Liam Hemsworth
hreppti þó hlutverkið að lokum.
■ Arnold Schwarzenegger tók upp
allar sínar senur á einungis fimm
dögum. Nokkrum dögum síðar hóf
hann vinnu við gerð The Last Stand.
■ Áhættuleikari lét lífið og
annar slasaðist lífshættulega
þegar sprenging varð við tökur á
myndinni.
■ Persónan Gunnar Jensen, sem
leikinn er af Dolph Lundgren, er
með háskólagráðu í efnaverkfræði.
Þetta er vísun í Lundgren sjálfan því
leikarinn er með meistaragráðu í
efnaverkfræði.
KVIKMYNDARÝNI