Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGHópefli fyrir fyrirtæki FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 20124
Adrenalíngarðurinn er á Nesjavöllum, aðeins um 35 kílómetra frá höfuðborg-
inni. Þangað er tilvalið fyrir hópa
að koma og gera sér dagamun.
„Adrenalíngarðurinn hefur sann-
að sig sem góð leið til að efla hóp-
andann. Hann hentar því vel fyrir
til dæmis starfsmannahópa til að
hrista fólk saman,“ segir Óskar
Helgi Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri hjá Adrenalín.
Dagsstund í Adrenalíngarðin-
um er alvöru útivist, þar sem hópar
eiga ógleymanlega samveru í fal-
legri náttúru. Í garðinum fær fólk
tækifæri til að takast á við áskor-
anir, gleðjast saman og hvetja
hvert annað. Þannig myndast ljúf
og uppbyggileg stemning sem erf-
itt er að líkja eftir.
Í Adrenalíngarðinum ættu
allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Þar er mjög stór þrauta-
braut þar sem hægt er að finna
ólíkar þrautir í mismunandi hæð.
„Þegar hópar koma til okkar bjóð-
um við einnig upp á alls konar leiki
og þrautir sem fólk þarf að takast á
við. Í þeim þarf fólk bæði að vinna
sem einstaklingar og saman sem
ein heild og oft skapast mjög góð
stemning. Margir halda að þraut-
irnar í garðinum henti ekki öllum
en hann er einmitt hannaður með
það í huga að fólk hafi val og finni
þá áskorun sem hentar. Við ýtum
engum út í eitthvað sem hann
vill ekki gera en það er oft þann-
ig að hér getur fólk gert meira en
það heldur að það geti í upphafi.
Hér skapast traust á milli fólks
þegar það fer út fyrir sinn þæg-
indaramma og þá hjálpa félagarn-
ir hverjir öðrum. Fólk fær hér tæki-
færi til að upplifa gleði, styrkleika
og hvatningu, að ógleymdri útivist-
inni.“
Flestir hópar koma í Adrenalín-
garðinn beinlínis til að skemmta
sér og hrista starfsfólkið saman en
sumir vilja leggja áherslu á ákveð-
in gildi. „Ef fólk kýs að vinna með
einhver ákveðin hugtök eða þemu
getum við útfært það á ýmsan hátt
og blandað því við þrautirnar. Hér
vinnum við mikið með gleði, traust
og samskipti og Adrenalíngarður-
inn ýtir sjálfkrafa undir þetta. Fólk
kemur hingað með smá hnút í maga
en fer með bros á vör,“ segir Óskar.
Starfsfólk Adrenalíngarðsins
býður einnig upp á ýmiss konar
ratleiki. Meðal þeirra er Þingvalla-
gátan. „Leikurinn berst um svæð-
ið umhverfis þingstaðinn og lausn
gátunnar krefst þess að hópurinn
vinni vel saman. Til að finna lausn
þessarar gátu þarf að leysa þrautir
sem allar reyna á hæfileika og sam-
stillingu hópsins. Margir hópar
fara bæði í þessa gátu og í Adrena-
língarðinn. Við bjóðum einnig upp
á að skipuleggja mat og gistingu
fyrir hópa og getum séð um heils-
dagsskemmtun frá A til Ö.“
Adrenalíngarðurinn er fyrir alla,
fjölskyldur og einstaklingar geta
komið jafnt sem hópar. Hann er
opinn alla daga á sumrin og þá eru
starfsmenn á staðnum. Yfir vetr-
artímann þarf að bóka komu með
fyrirvara, annars eru ekki starfs-
menn á svæðinu. Nánari upplýs-
ingar má finna á adrenalin.is.
Ógleymanlegur dagur í íslenskri
náttúru fyrir alls konar hópa
Adrenalíngarðurinn á Nesjavöllum býður upp á skemmtilega og ekki síst uppbyggilega afþreyingu og útivist í fallegri náttúru. Hópar
af öllum stærðum og gerðum geta komið í garðinn til að hrista hópinn saman og gera sér glaðan dag.
Í Adrenalíngarðinum á Nesjavöllum er stór þrautabraut þar sem finna má ólíkar þrautir í mismunandi hæð.
MYND/ÚR EINKASAFNI