Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 8
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR
Fréttaskýring: Stjórnarflokkarnir funda
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Samfylkingin heldur flokks-
stjórnarfund um helgina
og Vinstri græn flokks-
ráðsfund. Undirbúningur
kosninga verður í forgrunni
og rætt verður um hvernig
valið verður á lista. ESB-
mál rædd, en ekki búist við
samþykktum. Ekki er talið
að Jóhanna Sigurðardótt-
ir gefi neitt út um framtíð
sína.
Segja má að upptaktur kosninga-
baráttunnar hefjist um helgina
þegar Vinstrihreyfingin – grænt
framboð heldur sinn flokksráðs-
fund og Samfylkingin flokks-
stjórnarfund. Fyrir báðum fundun-
um liggur að taka ákvarðanir um
aðferðir við val á framboðslista.
Ráðherrabreytingar
Enn ein breytingin verður gerð á
skipan stjórnarráðsins um næstu
mánaðamót. Þá
tekur til starfa
nýtt atvinnu-
vega- og nýsköp-
unarráðuneyti,
en Steingrím-
ur J. Sigfússon
mun leiða það.
Efnahags- og
viðskiptaráðu-
neytið og iðn-
aðarráðuneytið
verða lögð niður og verkefni þeirra
skiptast á önnur ráðuneyti.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra mun á fundinum til-
kynna um hvort breytingar verða
á ráðherraliði Samfylkingarinnar.
Katrín Júlíusdóttir er væntanleg
úr barnsburðarleyfi, en hún gegndi
embætti iðnaðarráðherra.
Óvíst er hvort Katrín tekur sæti
í ríkisstjórn á ný. Undir eðlilegum
kringumstæðum væri það ekki
vafamál, ríkisstjórn sem kennir
sig við kvenfrelsi getur ekki látið
það spyrjast út um sig að kona sem
fer í fæðingarorlof eigi ekki aftur-
kvæmt í starf sitt.
Staðan er þó flóknari en svo,
en eins og áður segir verður iðn-
aðarráðuneytið lagt niður. Oddný
G. Harðardóttir kom inn í ríkis-
stjórn við brotthvarf Katrínar og
við ráðuneytishrókeringar varð
hún fjármálaráðherra. Hún hefur
unnið að fjárlögum, en þau verða
lögð fram 15. september. Heimild-
armenn Fréttablaðsins setja marg-
ir hverjir spurningarmerki við það
að skipta út fjármálaráðherra við
þær aðstæður.
Líklegast er að eitt af þrennu
gerist; Katrín fari í fjármálaráðu-
Enn óvissa um Jóhönnu
RÍFANDI STEMNING Aðildarumsókn Íslands að ESB er ekki á dagskrá flokksráðs Vinstri grænna en verður engu að síður rædd.
Ekki er búist við formlegum ályktunum um málið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
ÁGÚSTTILBOÐ
48 stk. í pakka Verð áður 2.560 kr.
1.429 KR.
TILBOÐSVERÐ
Vnr. 2000405
SALERNISPAPPÍR
ENDURUNNINN PAPPÍR,
TVEGGJA LAGA, 180 BLÖÐ Á RÚLLU
Stórhöfða 42, Reykjavík
Austursíðu 2, Akureyri
587 7788
papco.is
Góð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Úlpur 50% afsláttur
Krakkaúlpur 50% afsláttur
Útivistarjakkar 30% til 60% afsláttur
og fleira og fleira...
Ekki missa af þessu
Takmarkað magn!
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Steingrímur J. Sigfússon hefur, eins
og kollegi hans Jóhanna, sjálfdæmi
um hvort hann situr áfram sem for-
maður flokks síns, samkvæmt heim-
ildarmönnum Fréttablaðsins. Ekki er
búist við öðru en að svo verði, í það
minnsta eru litlar vangaveltur um
annað. Steingrímur og Jóhanna eru
bæði reynslumikil. Steingrímur settist
á þing árið 1983 en Jóhanna fimm
árum fyrr, árið 1978.
Formenn með reynslu
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
neytið og Oddný út úr ríkisstjórn,
Oddný sitji áfram og Katrín taki
stöðu sem óbreyttur þingmað-
ur, eða að Guðbjartur Hannesson
færi sig úr velferðarráðuneytinu
og í fjármálin en Katrín taki hans
stöðu. Guðbjartur var áður formað-
ur fjárlaganefndar og þekkir þau
mál vel.
Jóhanna heldur spilunum þétt
upp að sér, eins og áður þegar
breytingar hafa orðið og ekki verð-
ur ljóst fyrr en um helgina hvað
verður ofan á.
Uppstilling og ESB
Af umræðu síðustu vikna er ljóst
að ESB-umsókn Íslendinga verð-
ur til umræðu á flokksráðsfundi
Vinstri grænna. Málið er þó ekki á
formlegri dagskrá, en ráðherrar og
aðrir flokksmenn hafa kallað eftir
umræðu um málið.
Það hefur reyndar verið til
umræðu á svo til öllum fundum
Vinstri grænna frá því að ákveð-
ið var að ganga til stjórnarsam-
starfs við Samfylkinguna og sækja
um aðild að ESB. Heimildarmenn
blaðsins telja líklegt að umræðan
verði svipuð nú og áður, einhverj-
ir lýsi yfir óánægju sinni en engar
samþykktir verði gerðar um málið,
hvorki því til stuðnings né gegn.
Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður flokksins, mun kynna drög
að reglum um forval og uppstill-
ingu. Fundurinn mun síðan sam-
þykkja samræmdar reglur um
nokkrar leiðir við að velja á fram-
boðslista. Það er síðan kjördæmis-
félaganna að velja hvaða leið verð-
ur ofan á.
Líklegt er talið að uppstilling
verði ofan á í flestum kjördæmum.
Enginn þingmanna flokksins hefur
gefið út að hann ætli að hætta á
þingi og talið er að Steingrímur
ætli sér að gefa kost á sér áfram
og þá sem formaður einnig. Þeir
sem gagnrýnir hafa verið á stjórn-
arsamstarfið, svo sem Ögmundur
Jónasson og Jón Bjarnason, hafa
ekkert gefið út um framtíð sína.
Athygli vekur þó að Ögmund-
ur skipaði nýverið Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur sem verkefnisstjóra
við stefnumótun um mannréttinda-
mál, en ekki verður annað séð en
þar sé um fulla stöðu að ræða.
Í höndum Jóhönnu
Framtíð Jóhönnu Sigurðardóttur
sem formanns Samfylkingarinn-
ar hefur lengi verið til umræðu.
Hópur innan flokksins hefur kall-
að eftir endurnýjun forystunnar og
Össur Skarphéðinsson sagði, í ára-
mótaviðtali við Viðskiptablaðið, að
slíkt væri nauðsynlegt.
Heimildarmönnum blaðsins ber
saman um að framtíðin sé algjör-
lega í höndum Jóhönnu sjálfrar.
Vilji hún vera áfram þá standi það
henni til boða.
Ólíklegt er talið að hún gefi út
nokkra yfirlýsingu um málið um
helgina. Fylgi flokksins hefur
vaxið lítillega í skoðanakönnunum
og hefur það létt nokkuð pressunni
á formanninn. Prófkjör verða ekki
fyrr en í fyrsta lagi í lok október og
líklega ekki fyrr en í nóvember og
heimildarmönnum ber saman um
að Jóhanna þurfi að vera búin að
tilkynna um ákvörðun sína þá.
Samstaða um sérstöðu
Málefnavinna er í gangi í báðum
flokkunum og um hana verður rætt
á fundunum. Kosningavetur er að
hefjast og flokkanna bíður það erf-
iða verkefni að sýna samstöðu en
um leið sérstöðu hvors flokks.
Þeir þurfa að koma þeim skila-
boðum til kjósenda sinna að þeir
hafi ekki gefið afslátt á helstu
stefnumálum sínum. Um leið er
þeim í mun að ríkisstjórnin verði
sú fyrsta í sögu vinstri manna sem
sitji út heilt kjörtímabil.
Það má því búast við litlum upp-
ákomum í vetur þar sem einstaka
þingmenn og ráðherrar minni á
sérstöðu síns flokks, en um leið
upphefjist raddir þar sem sam-
staðan er lofuð.