Fréttablaðið - 23.08.2012, Síða 29

Fréttablaðið - 23.08.2012, Síða 29
| FÓLK | 3TÍSKA DANSKAR LÍNUR TÍSKUVIKAN Í KAUPMANNAHÖFN Margt gladdi augað á tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem lauk nýlega. Fólk tók saman örfá sýnishorn. Stina Goya er gjarnan nefnd drottning danska tísku-bransans. Hún brást ekki aðdáendum sínum með vorlín- unni 2013 en henni tekst að búa til klæðilegar og þægilegar flíkur sem þó skera sig úr hvunndegin- um hvað varðar mynstur og liti. Hönnun danska merkisins Ganni fékk Silfurþráðinn í ár, verðlaun sem veitt eru nýliðum á tískuvikunni. Fötin frá Ganni þykja lífleg og klæðileg. Þá fékk hönnun Baum und Pferdgarten Gullhnappinn í ár en tímaritið Alt for damerne hefur veitt þessi verðlaun allt frá árinu 1984 til fatahönnuða sem þykja skara fram úr. Malene Birger sýndi síðan fáguð snið að vanda en sumarlínuna einkenndu bjartir og sterkir litir svo sem bleikt og fjólublátt í bland við svart og hvítt. Nýjasta Barbie-dúkkan kom á markað fyrr í þessum mánuði. Hún hefur verið kölluð Barbie-draggdrottning þar sem hún minnir mjög á hönnuð sinn, Phil- lipe Blond, sem er samkynhneigður og gengur ávallt í kvenfötum. Phillipe Blond er helmingur The Blonds en maður hans, David Blond, starfar með honum. Mattel, sem framleiðir Barbie, hefur hins vegar kallað nýjustu dúkk- una demants-Barbie og vissulega er hún glamúrrík, rétt eins og öll hönnun The Blonds. Mattel hefur ekki kynnt dúkkuna sem draggdrottningu. The Blonds eru verðlaunahönnuðir, starf- andi í New York og hanna fyrir allar helstu stórstjörnur heims. Má þar nefna Lady Gaga, Rihönna, Söruh Jes- sicu Parker, Jennifer Lopez, Fergie, Christinu Aguilera, Selenu Gomez and Beyonce Knowles. Öll helstu tísku- blöð heims hafa fjallað ítarlega um The Blonds. Dragg-Barbie er alls ekki ólík hinni venjulegu Barbie-dúkku þótt hún sé heldur meira förðuð og í yfirdrifnum glamúrfatnaði. Bar- bie hefur oft vakið upp spurningar varðandi kvenleika og fegurð. Kannski Barbie-draggdrottningin sé svar markaðarins við vinsældum dragg- keppna um allan heim. Sumum finnst þó að réttnefnið hefði verið dragg- drottningin Ken. BARBIE-DRAGGDROTTNING DRAGGDROTTNING Mattel kallar hana demantsdúkkuna en úti í samfé- laginu er talað um hana sem draggdrottningu. GANNI fékk Silfurþráðinn, verðlaun sem veitt eru ný- liðum. STINE GOYA BAUM UND PFERDGAR- TEN Merkið hlaut verð- launin Gullhnappinn sem tímaritið Alt for damerne hefur veitt frá árinu 1984. www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141 Vorum að opna með fulla verslun af glæsilegri haustvöru! NÝ SENDING AF VETRARFATNAÐI! DRAGTIR, KJÓLAR, ALLT FYRIR ODDFELLOW. Skipholti 29b • S. 551 0770 Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is 20% afsláttur St. 38-48 Haustvörurnar komnar áður 14.990,- nú 11.990,- áður 16.990,- nú 13.590,- Við erum á Facebook

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.