Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.08.2012, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 23.08.2012, Qupperneq 32
KYNNING − AUGLÝSINGHópefli fyrir fyrirtæki FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 20122 Mér finnst þú … Starfsmenn setjast saman í hring. Hópurinn fær ákveðinn tíma til að finna eitt lýsandi og jákvætt orð fyrir hvern og einn í hópnum. Gott er að allir fái blað og penna til að skrifa niður. Þegar tíminn er lið- inn stendur einn upp og allir segja orðið sem þeim finnst lýsa við- komandi best. Þannig gengur það koll af kolli þar til allir hafa stað- ið upp og heyrt hvað vinnufélög- unum finnst. Í lokin ætti öllum að líða vel, bæði yfir að hafa heyrt eitthvað jákvætt um sjálfa sig og að hafa getað glatt vinnufélaga sína. Vinnustaðakakan Hópurinn kemur sér saman um einn dag í viku þar sem einhver úr hópnum kemur með eitthvað gott með morgunkaffinu. Reglurn- ar geta verið allavega, til dæmis að bara megi koma með hollan mat, eða að bara megi koma með dísætar kökur, bara megi koma með heimabakað eða að bakk- elsið sé eitthvað sem viðkomandi hefur aldrei prófað að búa til áður. Þá væri hægt að ákveða eitt hrá- efni sem yrði alltaf að nota, svo sem súkkulaði eða gulrót. Þannig gætu komið fram áhugaverðar og skemmtilegar uppskriftir. Út að borða Hópurinn fer saman út að borða í hádeginu. Einn úr hópnum ákveð- ur staðinn og heldur því leyndu hvert á að fara alveg fram að brott- för. Skemmtilegast er að velja stað sem fæstir hafa komið á áður en hópurinn verður að lúta ákvörðun þess eina. Þannig prófa allir reglu- lega eitthvað nýtt. Eins væri hægt að hafa þá reglu að enginn pant- aði af matseðlinum fyrir sjálfan sig heldur fyrir einhvern annan. Þannig yrði hádegið að óvæntri upplifun fyrir alla. Samsöngur Hópurinn syngur saman eitt lag áður en vinnan hefst á daginn. Ef einhver með tónlistarhæfileika leynist í hópnum væri hægt að semja sérstakt vinnulag. Ef ekki væri hægt að setja eitthvert þema fyrir hverja viku svo sem: bara ís- lenskt eða bara lög eftir Michael Jackson, bara þungarokk og svo framvegis. Gleðin við vinnuna Ekki er flókið að létta andann á vinnustaðnum ef hann er farinn að dofna. Aðalatriðið er að hugmyndaflugið fái að njóta sín og að allir séu til í tuskið. Með einföldum samvinnuverkefnum má efla andann í vinnunni. NORDICPHOTOS/GETTY Í flestum fyrirtækjum þykir mikil- vægt að starfsandinn sé góður og að hópurinn sé samstilltur. Mörg fyrir- tæki grípa til þess ráðs að gera eitt- hvað skemmtilegt með starfsfólkinu þegar eitthvað vantar upp á í þess- um efnum. En af hverju er það mikilvægt að andinn sé góður og hópefli sé til staðar í fyrirtækjum? Samkvæmt Frank LaFasto, rithöfundi og sér- fræðingi á sviði samvinnu, þurfa fimm þættir að vera í lagi til að hópur skili árangri. Meðlimir hópsins: farsælir hópar samanstanda af áhrifamiklum ein- staklingum. Þeir hafa reynslu, hafa hæfileika til að geta leyst vandamál, geta komið auga á vandamál og geta brugðist við margs konar aðstæðum. Samband hópsins: til þess að hópur nái árangri þarf hann, og hver og einn innan hans, að geta bæði gefið og tekið við ábending- um og gagnrýni. Lausn verkefna: árangur hóps- ins fer eftir því hversu skýr mark- mið hans eru. Einnig þarf um- hverfið að vera afslappað og þægilegt og samskiptin opin og heiðarleg. Forysta hópsins: árangursrík samvinna er háð getu leiðtoga hópsins. Hæfileikaríkur leið- togi er marksækinn, stuðlar að góðri samvinnu hópsins, byggir upp sjálfstraust einstaklinganna í hópnum, forgangsraðar, sýnir fram á næga kunnáttu og stjórnar með uppbyggilegri gagnrýni. Starfsumhverfi: umhverfi og menning fyrirtækisins verður að vera hvetjandi fyrir hópavinnu. Ef allir þessir þættir eru í lagi og starfsandi fyrirtækisins er góður má telja það líklegt að af- köst starfsmanna aukist. Þeir sem eru sáttir í vinnunni eru líklegri til að vinna hraðar og betur en þeir sem eru leiðir eða úrillir. Árangurs ríkara ef andinn er góður Hversu mikilvægur er góður starfsandi? Skiptir það máli fyrir fyrirtækið að starfsfólkið skemmti sér í vinnunni? Til hvers þarf hópefli á vinnustöðum? Til að ná upp góðum starfsanda í fyrirtækjum er nauðsynlegt fyrir starfsfólkið að gera eitthvað skemmtilegt saman. NORDIC PHOTO/GETTY Surprize ferðir er fyrirtæki sem sérhæfir sig í skipu-lagningu hópaferða um allan heim. Þjónustan sem fyrir- tækið býður upp á spannar allt frá því að finna það hótel sem hent- ar hópnum best upp í alhliða skipulagningu hvataferða, ráð- stefna og funda fyrir fyrirtæki, á Íslandi eða hvar sem er í heimin- um. Fyrirtækið hefur starfað í sex ár og sinnt þjónustu fyrir mörg af stærri og meðalstórum fyrirtækj- um Íslands. Harpa Einarsdótt- ir er stofnandi og framkvæmda- stjóri fyrirtækisins en hún er með yfir 20 ára reynslu af ferðaþjón- ustu. Hún hefur boðið upp á þessa þjónustu í tíu ár en var áður mörg ár við ýmis stjórnunarstörf á hót- elum. Hún segir þjónustu fyrir- tækisins fjölbreytta og sérsniðna að þörfum viðskiptavinarins. „Við skipuleggjum ferðir fyrir hópa um allan heim en þó mest fyrir fyrir- tæki sem fara með starfsmenn í hópeflis- og hvataferðir, á fundi og ráðstefnur og einnig sýningar erlendis.“ Það eru margir kostir fólgn- ir í því fyrir fyrirtæki og hópa að leita til Surprize ferða. Surprize ferðir eru í samstarfi við alþjóð- lega keðju hótelmiðlara – Helms- briscoe. Þetta er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum með um 1200 samstarfsaðila í 50 lönd- um. Með þessu samstarfi hafa Surprize ferðir aðgang að upp- lýsingum um hótel og áfanga- staði um allan heim. „Við deilum meðal annars upplýsingum um hótel sem við vinnum með á innra- neti Helmsbriscoe. Þannig fáum við upplýsingar beint frá aðilum sem hafa notað þjónustu þessara hótela og getum betur ráðlagt við- skiptavinum okkar. Annað sem gerir það eftirsóknarvert að vinna með okkur er að Helmsbriscoe er með stærstu viðskiptavinum allra helstu hótelkeðja í heimin- um í dag. Það hjálpar okkur við að ná fram mjög góðum samningum við hótelin um verð og annað það sem máli skiptir fyrir hópinn. Rús- ínan í pylsuendanum er síðan sú að fyrir þessa þjónustu við hótel- bókun greiðir viðskiptavinurinn ekki neitt. Við vinnum eingöngu á þóknun frá hótelunum.“ Á starfsferli sínum hefur Harpa unnið með fjölmarga hópa mjög víða eða nánast í öllum heimsálf- um. Misjafnt er hversu mikla þjón- ustu viðskiptavinir vilja. Stundum er það eingöngu hin svokallaða hótelmiðlun, þ.e. að finna og bóka hótel fyrir hópinn. Síðan eru líka hópar og fyrirtæki sem vilja að- stoð við bókun á flugi, skipulagn- ingu á viðburðum, hópefli, ráð- stefnum og fleira. „Við höfum til dæmis verið að vinna mikið með sjávarútvegssýningu sem haldin er í Brussel á hverju ári. Þar höfum við skipulagt marga viðburði fyrir viðskiptavinina auk þess sem við höfum verið með mikið af her- bergjum sem við bókum bæði fyrir hópa og einstaklinga. Við sinnum þjónustu fyrir bæði smáa og stóra viðskiptavini og ef á þarf að halda höfum við líka aðgang að vinnu- kröftum þessa mikla fjölda sér- fræðinga á vegum Helmsbriscoe ef um er að ræða mikil viðskipti eða stórar ráðstefnur. Fyrirtæk- ið getur því stækkað eftir því sem þörf er á.“ Frekari upplýsingar má nálgast á www.surprizetravel.is og www.helmsbriscoe.com. Hópferðir um allan heim Mikil reynsla og gott tengslanet einkennir þjónustu Surprize ferða. Fyrirtækið hefur þjónustað mörg af stærri fyrirtækjum landsins. „Við skipuleggjum ferðir fyrir hópa um allan heim,“ segir Harpa Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Surprize ferða. MYND/GVA Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, s. 512 5427, tp. elsaj@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.