Fréttablaðið - 23.08.2012, Side 33

Fréttablaðið - 23.08.2012, Side 33
KYNNING − AUGLÝSING Hópefli fyrir fyrirtæki23. ÁGÚST 2012 FIMMTUDAGUR 3 P ractical hefur frá upp-hafi verið leiðandi þegar kemur að starfs- og hvata- dögum fyrir íslensk fyrirtæki auk þess sem Practical þjónustar er- lenda hvataferðahópa sem koma til Íslands. Marín Magnúsdóttir segir að nútímastjórnendur geri sér almennt grein fyrir mikilvægi þess að efla mannauðinn enda sýni rannsóknir fram á að metn- aðarfull mannauðsstefna auki af- köst starfsmanna, minnki starfs- mannaveltu og auki starfsánægju. Það er því til mikils að vinna enda flestir sammála um að mannauð- urinn sé dýrmætasta eign hvers fyrirtækis. Marín segir að algengt sé að einu sinni til tvisvar á ári fari minni einingar fyrirtækja í sam- eiginlegar ferðir þar sem gjarnan er blandað saman fjöri og fróðleik. Þá er átt við deildir eða svið sem vinna daglega saman. Að auki eru starfsdagar fyrirtækja að festa sig í sessi hér á landi og samkvæmt Marín gegna þeir mikilvægu hlut- verki jafnt fyrir starfsmenn sem og stjórnendur fyrirtækja. Marín segir að umfang verk- efna sé mjög mismunandi. Practi- cal þjónusti stefnumótunarferð- ir stjórnenda til jafns við stóra starfsdaga, óvissuferðir eða stærri viðburði. Hún segir að á síðustu tólf mánuðum hafi ríflega 13.000 gestir sótt viðburði Practical og að viðskiptavinum fyrirtækisins hafi fjölgað jafnt og þétt síðastlið- in ár. Marín telur að ástæðu þess megi meðal annars rekja til þess að innan fyrirtækja landsins sé aukin krafa um afköst og skýrari fókus. „Stjórnendur sjá hag sinn í því að kaupa reynslu okkar og þekkingu. Þannig hámarka þeir afköst starfsmanna sinna og um leið fá allir að taka þátt í þeim við- burðum sem er verið að skipu- leggja hverju sinni. Öll okkar verkefni eru klæðskerasniðin að viðskiptavini okkar hverju sinni og á það jafnt við um litla hvata- ferð, starfsdag fyrirtækis eða við- burði. Við leggjum okkur fram við að greina þarfir viðkomandi, kynnast hópnum og markmiðum dagsins. Þannig getum við útbúið dagskrá sem hittir í mark og skil- ar viðskiptavinum okkar arðbærri fjárfestingu og öflugri mannauð sem er tilbúinn að takast á við þau verkefni sem fram undan eru.“ Fram undan er annasamasti tími ársins hjá Practical enda eru verkefni á dagskrá. Marín segir að á þessum tíma árs hafi fjölmörg fyrirtæki samband til þess að bóka haustferðir, starfsdaga og hvata- ferðir auk þess sem starfsmenn hafi í nógu að snúast við undir- búning árshátíða sem haldnar verða þegar líður á haustið. Marín segir að bókunarfyrirvarinn sé oft skemmri á haustin sökum sum- arleyfa en starfsmenn Practical leggi mikið upp úr háu þjónustu- stigi og vönduðum vinnubrögðum og geti því oft brugðist skjótt við þrátt fyrir að alltaf sé best að bóka í tíma. „Meiri fyrirvari þýðir ein- faldlega að við höfum úr meiru að velja þegar kemur að staðsetningu, afþreyingu og öðru þess háttar.“ Mikilvægt að hlúa að dýrmætustu eign hvers fyrirtækis Skipulag starfs- og hvatadaga er sérhæfing Practical. Fyrirtækið þjónustar bæði íslensk og erlend fyrirtæki. HÓPEF LI FERÐIR ÚT Í H EIM VIÐBURÐIR ÁRSH ÁTÍÐIR HÓPINN HEIM HELLINGUR AF H UGMYNDUM FYRIR HÓPINN Þ INN STARFSDAGAR www.practical.is practical@practical.is Sími: 534 0020 Fax: 534 0021 Fiskislóð 31 101 Reykjavík HVATAFERÐIR „Stjórnendur sjá hag sinn í því að kaupa reynslu okkar og þekkingu,” segir Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical. MYND/ÚR EINKASAFNI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.