Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 48
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR36
Verðmæti kaupaukans 9.500 krónur
E A U
OCÉANE
Andaðu. Skynjaðu. Upplifðu.
Ferskan sjávarandvara á húð þinni.
Eau upplyftandi og rakagefandi líkamsúði
með ferskum sjávartónum og blómailmi.
Húðin verður endurnærð.
Eau Océane, dekur fyrir líkama og sál.
Kaupaukinn þinn* þegar þú kaupir
Biothem vörur fyrir 7.500 krónur eða meira:
~ Skin Ergetic dagkrem 15 ml
~ Skin Ergetic næturkrem 15 ml
~ Skin Ergetic dropar 5 ml
~ Skin Vivo augnkrem 2 ml
~ Biosource eau micellaire hreinsivatn 30 ml
~ Lait Corporel húðmjólk 100 ml.
*Gildir á kynningunni meðan birgðir endast. Einn kaupauki á viðskiptavin.
BIOTHERM BOMBA
Í DEBENHAMS 23. – 29. ÁGÚST
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 23. ágúst 2012
➜ Tónleikar
16.30 Horse Orchestra leikur fyrir
gesti á næstu tónleikum í Pikknikk
tónleikaröð Norræna hússins. Frítt er á
tónleikana sem haldnir eru í gróðurhúsi
Norræna hússins.
➜ Leiklist
21.00 Ferðaleikhúsið að Baldursgötu
37 sýnir nýja uppfærslu á Light Nights.
Þjóðsögur og margvíslegt íslenskt efni
er á dagskránni sem er flutt á ensku.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 en kr. 2.000
fyrir nema og 1.500 fyrir börn 6 til 16
ára.
➜ Tónlist
18.00 Hljómsveitin Grísalappalísa
heldur tónleika í verslun 12 Tóna við
Skólavörðustíg.
20.00 Austurrísk-íslenska tríóið
Ensemble úngút heldur tónleika í
Fríkirkjunni.
21.00 Trompetleikarinn Ari Bragi Kára-
son kemur fram í Kaldalónssal Hörpu
ásamt jazzhljómsveit sinni frá New York,
Melismetiq.
21.00 Stelpur Rokka! halda tónleika
á Faktorý til styrktar rokksumarbúðum
árið 2013. Fram koma Oléna, Upside
Drown (CA) og Boogie Trouble.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 sem renna
óskertar til verkefnisins, auk þess sem
tekið er við frjálsum framlögum til þess.
21.00 Kvatrett Andrésar Þórs kemur
fram á Heitum fimmtudegi á Græna
Hattinum, Akureyri. Auk Andrésar skipa
kvartettinn þeir Agnar Már Magnússon
píanóleikari, Scott McLemore trommu-
leikari og Þorgrímur Jónsson kontra-
bassaleikari.
21.00 Hljómsveitin Melchior heldur
tónleika á Café Rosenberg þar sem ný
plata þeirra, Matur fyrir tvo, verður tekin
fyrir í bland við eldra efni. Aðgangseyrir
er kr. 1.900.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Fyrirlestrar
12.15 Endemis vitleysa er yfirskrift
hádegiserindis í Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur. Skipuleggjandur Endemis,
tímarits um samtímalist íslenskra
kvenna, flytja fyrirlesturinn í tengslum
við sýninguna Sjálfstætt fólk sem fer þar
fram um þessar mundir.
20.00 Smári McCarthy heldur fyrir-
lestur undir yfirskriftinni Miðstýring vs.
dreifistýring: Tveggja alda þróun valds
í hönnun. Fyrirlesturinn er haldinn í
Hönnunarmiðstöð Íslands, fer fram á
ensku og er ókeypis öllum.
➜ Sýningar
17.00 Sýningin Lesandi opnar í Safn-
arahorni Gerðubergs. Þar gefur að líta
hluta af minjagripasafni Sigrúnar Klöru
Hannesdóttur, bókaunnanda og fyrr-
verandi landsbókavarðar.
17.00 Bandaríska listakonan Rebecca
Goodale opnar sýninguna Rökkurljóð
og sögur í Gerðubergi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Páll Valsson hefur verið ráðinn
ritstjóri Skírnis – Tímarits Hins
íslenska bókmenntafélags og
tekur hann við af Halldóri Guð-
mundssyni sem tekinn er
við starfi framkvæmda-
stjóra tónlistar- og ráð-
stefnuhússins Hörpu.
Páll er fæddur árið
1960 og hefur starfað
sem ritstjóri og útgef-
andi um áratugaskeið,
auk þess sem kennari
við Háskóla Íslands og
Háskólann í Uppsölum
í Svíþjóð. Páll var
um árabil útgáfu-
stjóri Máls og
menningar og síðar Eddu útgáfu.
Páll starfar líka sem rithöfundur
og þýðandi, síðast sendi hann frá
sér bókina Vigdís – kona verður
forseti (2009) um ævi Vigdís-
ar Finnbogadóttur. Á síðasta
ári þýddi hann svo bókina
Gamlinginn sem skreið út
um gluggann og hvarf, sem
naut mikilla vinsælda.
Skírnir hóf göngu sína
árið 1827 og er elst tíma-
rita á Norðurlöndum sem enn
kemur út. Páll er 48. ritstjóri
ritsins sem gefið er út
af Hinu íslenska
bókmennta-
félagi.
Páll ritstjóri Skírnis
PÁLL VALSSON
Sagan af klaustrinu á Skriðu er
heiti nýútkominnar bókar eftir dr.
Steinunni Kristjánsdóttur forn-
leifafræðing. Steinunn stýrði upp-
grefti á Skriðu, einni
viðamestu fornleifa-
rannsókn sem ráðist
hefur verið í um ára-
bil á Íslandi. Á daginn
kom að Skriða var ekki
aðeins aðsetur munka
með helgihaldi og heit-
um bænum, heldur einn-
ig skjól hinna sjúku og
dauðvona.
Í bókinni er saga stað-
arins rakin, sagt frá leit-
inni að klaustrinu og
óvæntum niðurstöðum uppgraftr-
arins sem er nýlokið og eru í verk-
inu yfir 150 ljósmyndir, kort og
teikningar. Steinunn
Kristjánsdóttir fædd-
ist í Barðastrandar-
sýslu árið 1965. Hún
nam fornleifafræði við
Gautaborgarháskóla,
lauk þaðan doktors-
prófi árið 2004 og
hefur fengist við rann-
sóknir á Austurlandi
um árabil. Steinunn
er dósent í fornleifa-
fræði við Háskóla
Íslands og Þjóðminja-
safn Íslands.
Skriðu gerð skil