Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 11.10.2012, Qupperneq 4
11. október 2012 FIMMTUDAGUR4 GENGIÐ 10.10.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,6919 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,71 123,29 196,41 197,37 157,84 158,72 21,16 21,284 21,329 21,455 18,333 18,441 1,567 1,5762 188,44 189,56 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Frá kr. 129.900 í 23 nætur Heimsferðir bjóða einstakt tilboð í ferð fyrir eldri borgara í haust til Kanaríeyja. Við bjóðum fjölbreytt úrval gististaða. Haustið er svo sannarlega frábær tími á þessum einstaka áfangastað. Mikil dagskrá í boði í fylgd reyndra fararstjóra. Kr. 129.900 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Corona Blanca í 23 nætur. Sértilboð 30. október. Haustferð fyrir eldri borgara til Kanarí 30. október RÚSSLAND Áfrýjunardómstóll í Moskvu komst í gær að þeirri niður- stöðu að Jekaterína Samúsevitsj, ein þriggja kvenna úr pönksveit- inni Pussy Riot, hefði ekki tekið jafn virkan þátt í mótmælum hljóm- sveitarinnar í febrúar síðastliðnum. Þess vegna var dómi hennar breytt úr tveggja ára fangelsi í skil- orðsbundinn dóm, og var hún sam- stundis látin laus. Félagar hennar, þær Nadesjda Tolokonnikova og María Aljokína, verða hins vegar sendar í vinnubúðir til að ljúka afplánun dómsins. Samúsevitsja gekk upp að altari kirkjunnar ásamt félögum sínum, en öryggisvörður fjarlægði hana eftir að hún hafði aðeins verið þar í um það bil fimm- tán sekúndur. Þar af leiðandi tókst henni ekki að vera við hliðina á hinum konunum þessa einu mínútu sem þær hoppuðu og hrópuðu slag- orð gegn Vladimír Pútín forseta. Þær tjáðu sig í réttarsalnum í gær og sögðu mótmælin eingöngu hafa verið af pólitískum toga, ekki trúarlegum. Jafnframt báðust þær afsökunar á því að hafa hugsanlega sært trúartilfinningar einhverra. „Í þessum og fyrri mótmælum okkar beindum við okkur gegn stjórn núverandi forseta lands- ins,“ sagði Samúsevitsj, „og gegn rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni sem ríkisstofnun, gegn pólitískum ummælum rússneska patríarkans.“ Dómarinn greip ítrekað fram í fyrir þeim en þær héldu ótrauðar áfram: „Við munum ekki þagna. Og jafnvel þótt við förum til Mordóvíu eða Síberíu munum við ekki þagna,“ sagði Aljokína, en vinnubúðir fanga eru flestar í Mordóvíu eða Síberíu. Lögmenn þeirra voru allir ósátt- ir við niðurstöðu áfrýjunarréttar- ins og íhuguðu að skjóta málinu til hæstaréttar. Mannréttindasamtökin Amnesty International fögnuðu því að dómur yfir einni þeirra hafi verið styttur en fordæmdu engu að síður niðurstöðuna: „Eins og þessi nið- urstaða sýnir er rússneska réttar- kerfið ekki líklegt til að bjóða mikla vernd til handa þeim sem komast í kast við það.“ Vladimír Pútín forseti sagði hins vegar nýverið að dómur þeirra væri réttlátur: „Það er ekki hægt að leyfa fólki að grafa undan siðferðilegum grundvelli okkar, siðferðisgildun- um, að reyna að eyðileggja landið.“ gudsteinn@frettabladid.is Ein látin laus en tvær sendar í fangabúðir Jekaterína Samúsevitsj fékk skilorðsbundinn dóm vegna þess að hún tók ekki jafn virkan þátt í mótmælunum og hinar tvær. Tveggja ára fangelsisdómur Nadesjdu Tolokonnikovu og Maríu Aljokínu staðfestur af áfrýjunardómstól. Í RÉTTARSALNUM Jekaterína Samúsevitsj, María Aljokína og Nadesjda Tolokonnikova í glerbúrinu, sem sakborningar eru hafðir í. NORDICPHOTOS/AFP FERÐAÞJÓNUSTA Íslenska lággjalda- flugfélagið Iceland Express hefur verið valið þriðja besta lággjalda- flugfélagið í Danmörku. Niður- stöður Danish Travel Awards voru kynntar á þriðjudag. Danish Air Transport er besta félagið í sínum flokki og Nor- wegian er næstbest að mati neyt- enda. Túristi.is greinir frá þessu. Hátt í fjórtán hundruð neytendur greiddu atkvæði í könnuninni auk töluverðs fjölda starfsmanna í dönsku ferðaþjónustunni. - bþh Iceland Express í Danmörku: Þriðja besta lág- gjaldafélagið BÍLAR Toyota á Íslandi þarf að innkalla 3.690 bifreiðar hérlend- is, en Toyota-verksmiðjurnar inn- kalla nú 7,4 milljónir bifreiða um allan heim vegna bilaðs hnapps í bílstjórahurð. Um er að ræða Corolla, Yaris, Auris og Rav 4 af árgerð 2006 til 2008. Eigendur þessara bifreiða verða boðaðir með bíla sína í við- gerð á næstu dögum. Ekki er gert ráð fyrir að viðgerðin taki meira en klukkutíma. Bilunin lýsir sér þannig að hnappur í bílstjórahurð bílanna stendur á sér. Eigendur umræddra bifreiða munu ekki bera neinn kostnað af innköllun- inni. - bþh Bilaður takki veldur innköllun: Toyota kallar inn 3.690 bíla TOYOTA Verksmiðjurnar innkalla nú 7,4 milljónir bíla um heim allan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HEILBRIGÐISMÁL Talið er að um 108 blind og sjónskert börn séu á Íslandi í dag. Á hverju ári fæðast sex til sjö blind og sjónskert börn hér á landi, þar af að meðaltali tvö alblind. Viðbótarfötlun meðal barnanna er algeng, til dæmis heyrnarskerðing, að því er fram kemur í tilkynningu frá Blindra- félaginu. Meðferð blinduvaldandi sjúk- dóma hjá börnum hefur þó fleygt fram á síðustu áratugum og mun Guðmundur Viggósson augnlækn- ir ræða á fundi Blindrafélagsins í dag um orsakir blindu og sjón- skerðingar hjá börnum. Fyrir- lesturinn er haldinn í tengslum við Dag hvíta stafsins, sem er á mánudaginn næstkomandi. - sv Fyrirlestur um sjón barna: Tvö blind börn á ári á Íslandi DANMÖRK Á hverju ári fara 3.800 Danir á slysavarðstofu eftir að hafa meitt sig á umbúðum. Af þeim hafa 2.500 meitt sig á umbúðum utan um matvæli, eins og niðursuðudósum, glerflöskum og töppum. Á fréttavef Politiken segir að meirihluti þeirra sem slasast, eða 59 prósent, sé karlar. Flestir þeirra eru á aldrinum 15 til 24 ára. Talið er víst að miklu fleiri slasi sig á umbúðum en þeir sem leita til læknis. - ibs Læknisheimsóknir Dana: Þúsundir meiða sig á dósum SVÍÞJÞÓÐ, AP Tveir bandarískir vís- indamenn fá Nóbelsverðlaunin í efnafræði þetta árið fyrir rann- sóknir sínar á prótínviðtökum, sem gera frumum líkamans kleift að skynja og bregðast við merkj- um að utan, svo sem merkjum um hættu eða tiltekið bragð eða lykt. Sænska Nóbelsnefndin skýrði frá þessu í gær, og sagði rann- sóknir þeirra Roberts Lefko- witz og Brians Kobilka á níunda áratugnum hafa markað tíma- mót. Þær hefðu ekki síst komið að góðu gagni við þróun lyfja af ýmsu tagi. Um það bil helming- ur allra lyfja er byggður á virkni þessara viðtaka, sem nefndir eru G-prótín tengdir viðtakar. Í mannslíkamanum eru um þúsund tegundir þessara viðtaka, meðal annars í nefi, tungu og augum. Á þriðjudag skýrði sænska Nóbelsnefndin frá því að tveir franskir vísindamenn, Serge Haroche og David Winel- and, fengju verðlaunin í eðlis- fræði fyrir rannsóknir þeirra í skammtafræði. Í dag verður tilkynnt um verð- launahafann í bókmenntum þetta árið. Nóbelsverðlaunin verða að venju afhent í Stokkhólmi hinn 10. desember. - gb Bandarískir vísindamenn fá Nóbelsverðlaunin í efnafræði þetta árið: Hafa auðveldað lyfjaþróun ROBERT LEFKOWITZ Nýbakaður Nóbels- verðlaunahafinn fékk góðar viðtökur þegar hann mætti til vinnu í gær. NORDICPHOTOS/AFP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 27° 19° 11° 13° 14° 19° 12° 12° 27° 15° 26° 15° 28° 10° 18° 16° 8°Á MORGUN Strekkingur með SA- ströndinni, annars hægari. LAUGARDAGUR Strekkingur með S- ströndinni, annars hægari. 7 7 6 66 8 7 6 66 8 8 8 8 9 7 88 7 6 34 6 5 4 5 5 10 3 5 5 10 15 RIGNING í mismiklu magni einkennir veðrið víða um land næstu daga. Eftir rigningu dagsins í dag verður þó bjart með köfl um og þurrt vestanlands á morgun en laugar- dag má búast við rigningu sunnan og vestan til. Á sama tíma styttir hins vegar upp á Austur- landi. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður Í frétt um uppgjör Norvikur hf. í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins í gær, var sagt að félagið hefði tapað 500 milljörðum króna á síðasta ári. Það er rangt. Tap félagsins nam 500 milljónum króna. Beðist er velvirð- ingar á þessu. LEIÐRÉTT LANDHELGISGÆSLAN Sprengjusér- fræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu tveimur sprengjukúlum eftir hádegi í gær. Þær fundust á svæði Björgunar í Bryggju- hverfinu í Reykjavík. Sprengjurnar voru fjarlægðar af svæðinu. Talið er að þær séu úr seinni heimstyrjöldinni og hafi komið af hafsbotni með sand- dæluskipinu Sóley. Sérfræðingar Landhelgisgæslunnar segja mikla hættu stafa af svona sprengjum jafnvel þó þær hafi legið í sjó í tugi ára. - bþh Gæslan eyddi sprengjum: Sprengjur í Bryggjuhverfi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.