Fréttablaðið - 11.10.2012, Side 24

Fréttablaðið - 11.10.2012, Side 24
24 11. október 2012 FIMMTUDAGUR Bandaríska stjórnarskráin er orðin tvö hundruð tuttugu og fjögurra ára gömul og er að megin- inntaki óbreytt þó samþykktar hafi verið breytingar og viðbætur tutt- ugu og sjö sinnum. Á líftíma banda- rísku stjórnarskrárinnar hafa margvíslegar hremmingar riðið yfir bandarísku þjóðina – miklar og stórar kreppur – en stjórnarskráin er ekki talin hafa valdið þeim. Íslenska stjórnarskráin er 138 ára gömul og er að megininntaki óbreytt þó samþykktar hafi verið viðbætur og breytingar alls sjö sinnum. Á líf- tíma íslensku stjórnarskrárinnar hafa margvíslegar hremmingar riðið yfir íslensku þjóðina – miklar og stórar kreppur – en stjórnarskrá- in er ekki talin hafa valdið þeim. Samt sem áður getur verið skyn- samlegt að endurskoða íslensku stjórnarskrána frá grunni til breyt- inga – þó það geti vart talist vera lífsnauðsynlegt. Þjóðfundur og Stjórnlagaráð hafa unnið vel og komið fram með margar, góðar hug- myndir – en aðrar miður góðar. Nú á að fara að greiða atkvæði um til- tekna efnisþætti. Og hvað á fólk að gera? Þorvaldur Gylfason og fleiri Stjórnlagaráðsmenn segja, að þeir, sem segja JÁ við spurningunni um hvort leggja eigi tillögur Stjórn- lagaráðs til grundvallar við með- ferð Alþingis á málinu séu að lýsa fortakslausum stuðningi sínum við öll atriðin í tillögum ráðsins og þeim megi alþingismenn því á engan hátt breyta. Þá get ég ekki sagt JÁ, því þó ég sé sammála sumum tillögun- um er ég ósammála öðrum. Reimar Pétursson og aðrir skoðana bræður hans segja að ef sagt sé NEI við sömu spurningu sé það höfnun á tillögum Stjórnlaga- ráðs og þá eigi að leggja tillögurn- ar til hliðar og ekki taka mark á þeim meir. Ég get þá ekki heldur sagt NEI, því þó ég sé ósammála sumum tillögunum er ég sam- mála öðrum og vil ekki að mik- illi og góðri vinnu Þjóðfundarins og Stjórnlagaráðs verði hent út í hafsauga. Ég get því hvorki sagt JÁ né NEI eins og málið er kynnt fyrir þjóð- inni og svo mun fleirum farið. Nú er það svo, að samkvæmt gildandi stjórnarskrá er stjórnarskrár- gjafinn Alþingi. Þeim fyrirmæl- um verður að fylgja. Þarna verð- ur Alþingi sem sé að kveða upp sinn dóm. Hver verða viðbrögð Alþingis við niðurstöðum atkvæða- greiðslunnar? Telur Alþingi að ef meirihlutinn segi JÁ við umræddri spurningu sé Alþingi þar með óheimilt að hnika til eða breyta tillögum Stjórnlagaráðs? Telur Alþingi, að ef meirihlutinn segir NEI eigi Alþingi ekkert tillit að taka til tillagna Stjórnlagaráðs- ins og ekkert mið hafa af tillögum þess við framhaldsmeðferð máls- ins? Ég sé ekki hvernig hægt er að ganga til atkvæða á forsendum þeirra Þorvaldar og Reimars. Í lýðræðislandi má ekki og á ekki að efna til atkvæðagreiðslu um mikilvæg mál með jafn mikilli óvissu um hvað afstaða hvers og eins raunverulega þýðir. Æðsti lýðræðisvettvangur þjóðar- innar er Alþingi. Þaðan verður að koma leiðsögn um hvernig túlka ber afstöðu kjósenda í komandi kosningum og sú leiðsögn verð- ur að koma áður en gengið er til kosning anna. Forseti Alþingis er rödd þjóðþingsins. Hvað segir sú rödd? Komandi kosningar – JÁ eða NEI? Nú líður að útborgunardegi hjá sauðfjárbændum, þeir upp- skera laun fyrir áralanga og ára- tugalanga ræktun sauðfjár. Það sauðfé býr yfir ákveðnum einkenn- um og gæðum sem bændur hafa valið að framleiða og hafa lagt sig fram til að ná þeim eiginleikum. Að baki liggja langtímasjónarmið og ígrundun með það leiðarljós að afurðirnar skili sauðfjárbóndanum sem mestum arði svo búið standi undir sér og helst að það fram- fleyti fjölskyldunni. Alger óvissa ríkir nú meðal sauðfjárbænda víða um norðanvert landið og sú óvissa er margþætt; ■ Hvert verður innlegg þeirra í sláturhús; hvað fá bændur út- borgað á þessu hausti? ■ Hver verða launin sem eru afrakstur síðastliðins árs og ára? ■ Hvað er framundan? Gríðarlegt tjón en enginn veit enn hversu mikið Sláturtíð lýkur ekki fyrr en seinni hluta október og þá geta menn ein- hverja grein gert sér fyrir tjón- inu sem þeir hafa orðið fyrir, en langt í frá að allt liggi ljóst fyrir. Allt vinnuskipulag hefur riðlast vegna þess gjörningaveðurs sem gekk yfir landið 10.-11. septem- ber. Haustverkum er ýtt til hlið- ar vegna brýnni verkefna; leitar að búfénaði í kapphlaupi við tím- ann – og þeim verður sinnt síðar, þegar færi gefst. Skemmdir urðu á trjágróðri, korni, grænfóðri, girð- ingum, jafnvel byggingum og víða tókst ekki að slá hána. Að ýmsu öðru þarf að hyggja fyrir vetur- inn en það hefur allt orðið að víkja um sinn. Þá er ýmislegt annað sem bætist þar ofan á, s.s. að vegna rafmagnsleysis varð matur e.t.v. ónýtur, hella þurfti niður mjólk og svo það að bændur urðu fyrir óvæntum útgjöldum í stórum stíl vegna leitarstarfa sem staðið hafa yfir vikum saman. Aukinn mann- skapur við leitarstörf þarfnast matar, húsaskjóls og fatnaðar – en hlífðarfatnaður dugði jafnvel ekki daginn út. Á vélknúin ökutæki af ýmsum gerðum þurfti eldsneyti og reikna má með bilunum og sliti á tækjum við leitarstörf í erfiðum aðstæðum. Allt þetta eru óvænt útgjöld við búsýsluna. Bændum eðlislægt að taka hlutunum með jafnaðargeði Það gjörningaveður sem skall á svo óvænt og með afleiðingum sem ekki sér fyrir endann á kall- ar fram margvísleg viðbrögð og tilfinningar. Áfallið leggst af mis- munandi þunga á fólk og mann- fólkið er misjafnlega í stakk búið að taka áföllum. Þó má segja að bændum sé eðlislægt að taka því sem að höndum ber með jafnaðar- geði. Þeir þekkja litróf lífsins harla vel, allt frá því að líf kvikn- ar og þar til því lýkur, og eru ekki óvanir að aflífa skepnur þegar þess er þörf. Þeir hafa ekki lagt í vana að barma sér þótt illa gangi og eru ekki að því heldur á þessum tíma. En það ástand sem nú hefur skapast reynir á hinn mannlega mátt, meira en góðu hófi gegnir. Í húfi er lifandi fénaður sem bænd- um er kær og að auki leggjast á þá áhyggjur af fjárhagslegu tjóni og í mörgum tilfellum stórtjóni. Ekki má gleyma að huga að börnunum sem mörg eiga sínar uppáhalds- skepnur og vegna álagsins hafa foreldrar ærin verkefni. Þörf er á varkárni í umræðunni um ástand- ið því börn skilja oft hlutina öðru- vísi en hinir fullorðnu, eða mis- skilja og það getur bakað þeim óþarfa hræðslu og óöryggi. Endurreisnarstarf og samhjálp Íslenska sauðkindin hefur sýnt alveg ótrúlega seiglu, líklega meiri seiglu en menn bjuggust við. Leitarfólk hefur unnið þrekvirki og ekki má gleyma að nefna þátt björgunarsveitanna, en hann er ómetanlegur. Í þessum aðstæðum hefur komið berlega í ljós hve sam- takamáttur fólks og samkennd er mikils virði. Einmitt í slíku and- rúmslofti ætti að nýta alla jákvæða krafta til endurreisnar – og af myndarskap. Á íbúafundinum í Skjólbrekku kom fram að raflínan í sveitinni yrði lögð í jörð og því var spurt hvort ekki væri lag nú, að leggja ljósleiðara samtímis þannig að menn í sveitinni sætu við sama borð og meirihluti landsmanna hvað nettengingu varðar. Ástæða er til að skora á alla hlutaðeigandi, að vinna því máli brautargengi. Gleymum ekki því að bændur þurfa á stuðningi okkar að halda nú næstu vikur og mánuði. Verkefnin sem bíða þeirra nú eru óþrjótandi og óvissan mikil um marga þætti í nánustu framtíð. Eftir því sem tíminn líður frá óveðursdögunum og daglegu verkefnin taka við hjá almenningi, er enn mikilvægara að við munum eftir þeim. Gerum það sem í okkar valdi stendur og verum þeim innan handar og hjálp- um eftir því sem okkur er unnt. Lengri útgáfu greinarinnar má sjá á visir.is Sýnum bændum stuðning Ný stjórnarskrá Sighvatur Björgvinsson fv. alþingismaður Landbúnaður Hólmfríður S. Haraldsdóttir ferðamálafræðingur Gleymum ekki því að bændur þurfa á stuðningi okkar að halda nú næstu vikur og mánuði. Verkefnin sem bíða þeirra nú eru óþrjótandi og óvissan mikil um marga þætti í nánustu framtíð. Lífeyrissparnaður með góða ávöxtun Landsbankinn býður ölbreyttar leiðir í lífeyrissparnaði og er traustur bakhjarl. Íslenski lífeyrissjóðurinn og Lífeyrisbók Landsbankans hafa skilað góðri ávöxtun undanfarin ár.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.