Fréttablaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 20124
Þetta er ekkert venjulegt jóla-hlaðborð! Óhefðbundið er okkar þema í matargerð alla
daga og við höldum okkur við það,
líka í jólahlaðborðinu,“ segir Jó-
hannes Steinn Jóhannesson, mat-
reiðslumeistari á Slippbarnum á
Icelandair hótel Reykjavík Marina.
„Hjá okkur er ekkert reykt eða
saltað og lítið um rjóma og feit-
meti. Það er þó tenging við jólin,
á matseðlinum er til dæmis
„frómas inn hennar mömmu.“ Við
leikum okkur einnig með hefð-
bundið hráefni eins og svínabóg
og kalkún en matreiðum það ekki
eins og fólk er vant. Svínabógur-
inn er rifinn og kalkúninn útbú-
um við í borgara með rauðkáli,
sem er þó ekkert venjulegt rauð-
kál.“
Á Slippbarnum er mikið af
grænmeti notað í matargerðina
og jólahlaðborðið létt og ferskt. Jó-
hannes segir tilvalið fyrir þá sem
vilja hugsa um heilsuna á aðvent-
unni að koma við á Slippbarnum.
„Réttirnir verða allir born-
ir fram á minni diskum sem við
skiptum ört út. Við viljum að allt
sé ferskt á borðinu. Fólk labbar
ekki út með bjúg héðan. Það þarf
heldur ekki að fara beint heim að
leggja sig eftir matinn heldur getur
það fengið sér kokkteil á barnum,“
segir Jóhannes, en á aðventunni
verða nokkrir drykkir á Slipp-
barnum í sér stökum jólabúningi.
„Við bjóðum til dæmis upp
á glögg, sem er að sjálfsögðu
ekki venjulegt jólaglögg,“ segir
Jóhannes sposkur.
„Við munum ekki leika hefð-
bundna jólatónlist yfir gestum
og jólaskreytingarnar verða í lág-
marki. Við verðum vin sem fólk
getur leitað í þegar það er búið að
versla og versla með jóla tónlistina
í eyrunum allan daginn. Þetta
verða fyrstu jólin okkar á Slipp-
barnum og þau verða mjög huggu-
leg. Við hlökkum til og höfum fulla
trú á þessu. Fólk borðar svo mikið
í desem ber af hefðbundnum jóla-
mat. Maður má ekki vera búinn að
fá nóg þegar jólin loksins koma.“
Boðið verður upp á jólahlað-
borð Slippbarsins á kvöldin dag-
ana 16., 17., 23. og 24. nóvember,
en eftir 29. nóvember verður hlað-
borðið opið bæði í hádeginu og á
kvöldin alla daga fram að jólum.
www.icelandairhotels.is
Nýtt og óhefðbundið jólahlaðborð
Slippbarinn á Icelandair hótel Reykjavík Marina bætist við jólahlaðborðsflóru borgarinnar í ár. Þar verður þó ekki hefðbundinn
jólamatur á borðum heldur mega gestir eiga von á jólakalkúninum í allt öðrum búningi en venjan er.
Jóhannes Steinn Jóhannesson matreiðslumeistari býður upp á óhefðbundið jólahlaðborð. MYND/PJETUR
Marina fiskisúpan okkar vinsæla
Smekkfullur pottur af fiski með tómatgrunni, enginn rjómi
Charcuterie
Allskonar pylsur og skinkur, ostar ýmiskonar, ólífur og sýrt grænmeti
Grasker og sætar kartöflur
Ofnristað með karamelliseruðum hnetum og appelsínu
Lambaróst á brauði
Steikt lambalæri á rúgbrauði, heimagert remúlaði, stökkur laukur, sveppir, súrar agúrkur, karsi og piparrót.
Rauðrófusalat
Salat með geitaosti, valhnetum og rauðrófum
Steikt spergilkál
Steikt með chilli og sesamfræum
Rækjukokkteill 2012
. Rækjur, eldpipar, brauðkruður og sítrónusósa (ekki bleik, sorry…)
Eplasalat
Hvorki með rjóma né mæjónessu, ferskt og fínt.
Kúrbítur og strengjabaunir
Bakaður kúrbítur með sítrónu og hvítlauk og stökkar strengjabaunir
Andasalatið hans Jóa
Andalæri confit, grillaður mais, Manchego ostur og sýrð fennika
Rifið og tætt svín
Langtímaeldaður svínabógur, sýrt hvítkál og chilli ketchup
Kalkúnaborgari
Á dökku brauði með rauðkáli trönuberjum og salvíumæjónessu
Þorskur
Þorskhnakki djúpsteiktur í tempura með tartarsósu slippbarsins
Frómasinn hennar mömmu
Gamaldags Sjerrí frómas sem allir eru vitlausir í.
Draumarúllan
Karamella, kókos og kaka
Kvöldstund sem bragð er af
Jólarokkbandið stígur á stokk í lok borðhalds. Bandið er skipað valinkunnum tónlistar-
mönnum, en þar fer fremstur í flokki Ólafur Þórarinsson, eða Labbi í Mánum. Ásamt
Labba er trommuleikarinn og heimamaðurinn Páll Sveinsson úr Í svörtum fötum, bassa-
leikarinn Jón Örvar Bjarnason úr Landi og sonum og hljómborðsleikarinn Ríkharður Arnar
úr Karma. Jólarokkbandið flytur nokkrar þekktar jólaperlur og síðan tekur við hressandi
danstónlist og gestir geta stigið dans til kl. eitt eftir miðnætti.
Dagsetningar á jólahlaðborð
Nóvember: laugardaginn 24. og föstudaginn 30.
Desember: laugardagana 1. (uppselt), 8. og 15.
Verð fyrir jólahlaðborð er 7.700 kr. á mann.
Nú fer í hönd sá árstími er við gleðjumst saman og njótum þess að gera vel við okkur í mat og drykk
og hefur jólahlaðborðið á Hótel Örk um árabil verið ómissandi hluti af jólaundirbúningnum.
Fáðu jólatilboð fyrir hópinn þinn í gistingu og mat.
Bjóðum rútuferðir fyrir hópa (30 eða fleiri) frá Reykjavík
og Selfossi, ef óskað er.