Fréttablaðið - 11.10.2012, Síða 44
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 201210
Eins og undanfarin ár verður hátíðlegt í Viðey á aðvent-unni. Í ár verður jólahátíðin
í eynni með örlítið breyttu sniði
því nú verður boðið upp á fjögurra
rétta jólamatseðil í stað hefðbund-
ins jólahlaðborðs.
Fyrir einstaklinga og hópa
Veislan er í boði bæði fyrir hópa og
einstaklinga og er ferjan inni falin
í verðinu. „Ef stórir hópar ætla
að koma í jólamatinn til okkar
er hægt að sníða ferðir ferjunnar
eftir þeirra þörfum. Annars eru
reglulegar ferðir til og frá eyjunni
en það er mikilvægt að taka bát-
inn út á réttum tíma til að ná tón-
leikunum,“ segir Friðgeir Eiríks-
son yfirmatreiðslumeistari.
Sigríður Thorlacius syngur
Sigríður Thorlacius og Guðmund-
ur Óskar sjá um að matur Viðeyjar-
stofugesta renni ljúflega niður með
fallegum tónum sínum. „Við ætlum
að spila fyrir fólk þegar það kemur
og svo komum við fram nokkrum
sinnum um kvöldið. Þetta verður
ekki stanslaus spilamennska undir
borðhaldi heldur langar okkur frekar
að spila tvö til þrjú lög í einu í nokk-
ur skipti,“ segir Sigríður. „Við ætlum
að sjálfsögðu að spila jóla tónlist
en líka aðra tónlist í bland. Þetta
verður hátíð legt en ekki of mikil yf-
irgengileg jólabjöllustemmning.
Við leggjum áherslu á að hafa ró-
legt og kósí sem verður í anda stað-
arins og matarins en jólamatseðill-
inn er glæsilegur og það verður mik-
ill klassi og yfir vegun yfir öllu.“
Hefðbundið og öðruvísi í bland
Sigríður hefur sjálf ekki farið oft á
jólahlaðborð í gegnum tíðina. „Þessi
hefðbundnu jólahlaðborð henta mér
ekki. Mér finnst þessi hugmynd
með jólamatseðil og að maturinn
sé gerður fyrir hvern og einn flott.
Þá er þetta bara eins og að fara út að
borða og það er meira fyrir mig.“
Spurð um sinn eigin jólamat
segir hún að sér finnist gaman að fá
eitthvað nýtt og öðruvísi þó að sumt
verði að vera í boði í það minnsta
einu sinni yfir hátíðirnar, eins og
til dæmis hangikjöt og rjúpur.
Glæsilegur hátíðaseðill
„Við ætlum að hafa þetta þægi-
legt og yfirvegað og leyfa fólki
að njóta þess að geta setið við
upp dekkað borð og fylgst með
skemmtuninni í stað þess að hafa
hefð bundið jólahlaðborð með
röðum og til heyrandi. Við verð-
um með hátíðaseðil sem hefst á
forrétta diski sem saman stendur
af hangikjöti með rjómaosti og
græn ertum, hreindý ra terrínu
með bláberja-vinaigrette og graf-
laxi með hunangs sósu. Svo tekur
við milliréttur, bleikja, beikon og
sveppir í döðlum með vanillugljáa.
Aðalréttur inn er svo brasseraðar
kalkúna bringur og purusteik ásamt
ofnbökuðu graskeri, marineruðum
ávöxtum og kremaðri rauðvínssósu.
Í eftirrétt er síðan frosinn vacherin-
vanilluís, marens, jarðarberja-
ískrap og jólarjómi. Þessi gómsæti
jólamatur, ferja og lifandi tónlist
er í boði fyrir 10.900 krónur,“ segir
Friðgeir.
GÓÐ RÁÐ FRÁ JÓLASVEININUM
Gott er að huga snemma að jólahlaðborði, hvort sem á að halda það heima eða
borða úti. Enda er oft upppantað á veitingahúsum og erfitt að fá borð eftir því sem
nær dregur hátíðinni. Þá getur undirbúningur fyrir heimahlaðborð tekið þó nokkurn
tíma. Ef mörg börn eru í fjölskyldunni getur verið gott að velja stað sem býður upp
á aðstöðu fyrir börn að leika sér, þar sem þau tolla ekki lengi við matarborð. Þannig
getur fullorðna fólkið slakað á og notið matarins lengur. Ef um heimaboð er að
ræða gæti verið gott að vera með spil tilbúin, hugljúfa jólamynd eða annað
skemmtilegt fyrir krakkana að dunda sér við. Margs konar staðir bjóða upp á
jólahlaðborð og mismunandi áherslur eru í mat og því gott að kynna sér það
sem í boði er. Heimaboðið þarf að ígrunda vel; velja kjöt, búa til síld, eftirrétt,
baka kökur og fleira. Það er um að gera að líta á hlaðborðið sem dekur við
sjálfan sig og sína nánustu og vanda því til alls þegar að því kemur.
HIST Í HEIMAHÚSI
Margir vinahópar hafa það fyrir venju að hittast á aðventunni og fara
saman á jólahlaðborð. Sumir hafa þann háttinn á að hittast í heimahúsi
og borða heimalagaðan mat.
Þá er sniðugt að allir komi með einn rétt svo matseldin og undir-
búningurinn lendi ekki á einhverjum einum. Hægt er að skipta rétt-
unum þannig að sumir komi með forrétti, aðrir aðalrétti og enn aðrir
sjá um eftirréttina. Þeir sem eru minna liðtækir í eldhúsinu geta fengið
að koma með meðlætið eða auðveldari réttina.
Þegar veislan er haldin heima er auðveldara að bregða á leik og hafa
hlutina eftir eigin höfði. Margir hafa til dæmis jólagjafaskipti. Þá koma
allir með eina litla gjöf sem þeir gefa og fá aðra í staðinn. Þennan leik
má útfæra á marga vegu, hægt er að draga um pakkana og svo má
jafnvel hafa það leyfilegt að „stela“ pökkum frá hinum.
Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar
töfra fram fallega tóna í jólaveislu Við-
eyjarstofu.
Hátíðlegt verður í Viðey á aðventunni en þá verður fjögurra rétta jólamatseðill í boði á Viðeyjarstofu.
Lifandi tónlist og róleg stemning
Viðeyjarstofa býður upp á fjögurra rétta hátíðamatseðil á aðventunni. Áhersla verður lögð á rólega og yfirvegaða stemmningu og
sjá þau Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar um að skemmta gestum með ljúfum og þægilegum tónum.