Fréttablaðið - 11.10.2012, Síða 51
FIMMTUDAGUR 11. október 2012 31
Um leið og ég fagna áhuga almennings á málaflokki
utangarðsfólks tel ég enn fremur
mikilvægt, í kjölfar fjölmiðla-
umfjöllunar um slakan aðbúnað
utangarðsfólks, að greint sé frá
þeim umbótum og þeirri auknu
þjónustu sem hefur orðið í mála-
flokknum í Reykjavík undan farin
ár.
Árið 2008 var sett fram Stefna
Reykjavíkurborgar um málefni
utangarðsfólks 2008-2012. Form-
leg stefnumótun í málaflokki
utangarðsfólks er nýlunda hér á
landi. Við gerð þessarar stefnu
var leitað til fagfólks, notenda
þjónustunnar (þ.e. utangarðs-
fólks) og annarra hagsmunaaðila
og málefni sett fram í samræmi
við það. Á tímum hagræðingar í
opinberum rekstri hefur Reykja-
víkurborg hrint í framkvæmd
fjölmörgum verkefnum sem öll
hafa það að markmiði að auka lífs-
gæði fólks og koma í veg fyrir úti-
gang. Starfshópur, skipaður borg-
arfulltrúum og fagfólki, vinnur
nú að gerð nýrrar stefnu. Helstu
verkefni sem sett hafa verið á
laggirnar eftir efnahagshrun:
■ Árið 2008 voru tekin í notkun
fjögur smáhýsi þar sem allt að
átta einstaklingar geta búið.
Verkefnastjóri í fullu stöðugildi
er íbúum smáhýsa innan hand-
ar allan sólarhringinn.
■ Dagsetur Hjálpræðishersins
er athvarf sem opið er alla
daga vikunnar. Þar er m.a.
hreinlætis aðstaða, heit máltíð
o.m.fl. Reykjavíkurborg kom
að samstarfi vegna Dagseturs
árið 2009 með stöðugildi félags-
ráðgjafa með aðsetur í Dag-
setri. Félagsráðgjafinn sinnir
félagsráðgjöf og byggir upp iðju
fyrir utangarðsfólk.
■ Haustið 2009 fór skaða-
minnkunar úrræðið Frú Ragn-
heiður af stað á vegum Rauða
krossins. Um er að ræða sér-
útbúinn bíl með hjúkrunarfræð-
ingum og fleiri sjálfboðaliðum
og veitt er nálaskiptiþjónusta
ásamt almennri hjúkrun og ráð-
gjöf fyrir vímuefnaneytendur.
Frá janúar 2011 hefur Dag-
setrið verið með nálaskiptiþjón-
ustu í samstarfi við Frú Ragn-
heiði.
■ Árið 2010 opnaði Reykjavíkur-
borg heimili fyrir fimm heimil-
islausar konur. Sólarhringsvakt
er á heimilinu.
■ Í ársbyrjun 2012 tók Reykja-
víkurborg yfir rekstur á stoð-
býli fyrir átta tvígreinda karl-
menn þ.e. þá sem eru greindir
með geðsjúkdóm ásamt áfengis-
og vímuefnafíkn. Íbúarnir eiga
það sammerkt að hafa verið
heimilislausir til langs tíma.
■ Í maí 2012 jók Reykjavíkurborg
stuðning sinn við Dagsetur með
stöðugildi stuðningsfulltrúa og
hálfu stöðugildi félagsráðgjafa.
■ Á vormánuðum 2012 fór af stað
tilraunaverkefnið Borgar verðir.
Um er að ræða samstarfsverk-
efni Reykjavíkurborgar og
Lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Tveir sérfræðingar
frá Reykjavíkurborg og einn
lögreglumaður aka um borgina
á bíl og þjónusta utangarðsfólk
með því t.d. að aka því til lækn-
is, á meðferðarstofnanir, í viðtöl
til félagsráðgjafa, í og úr Dag-
setri, Konukoti og í Gistiskýlið
o.fl.
Allt ofantalið er viðbót við þá
þjónustu sem þegar var til stað-
ar fyrir efnahagshrun. Þann-
ig hefur Reykjavíkurborg rekið
frá árinu 2007 heimili fyrir átta
heimilislausa karlmenn. Sam-
hjálp rekur Gistiskýlið við Þing-
holtsstræti samkvæmt samningi
við Þjónustu miðstöð Miðborgar
og Hlíða (Reykjavíkurborg). Gisti-
skýlið getur veitt 20 karlmönnum
næturgistingu og hafa félagsráð-
gjafar frá Þjónustumiðstöðinni
þar vikulega viðveru. Rauði kross-
inn rekur Konukot samkvæmt
sambærilegum samningi og þar
hafa félagsráðgjafar frá Þjónustu-
miðstöðinni einnig vikulega við-
veru. Konukot er með átta rúm
fyrir næturskjól. Systur Móður
Theresu bjóða utangarðsfólki (og
öðrum) upp á morgunverð fimm
daga vikunnar. Auk þessa styrkir
borgin rekstur Kaffistofu Sam-
hjálpar sem er opin alla daga
vikunnar
Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða er þekkingarstöð um
margbreytileika, þar undir fellur
málaflokkur utangarðsfólks. Fjöl-
mennt sérfræðingateymi fundar
þar reglulega um stöðu einstak-
linga og málaflokksins í heild.
Starfræktur er Samráðshópur
um málefni utangarðsfólks. Í
Samráðshópnum sitja fulltrúar
frá hinum ýmsu stofnunum og
félagasamtökum sem öll sinna
þjónustu við utangarðsfólk s.s.
Þjónustumiðstöð Miðborgar og
Hlíða, Velferðarsviði Reykjavík-
urborgar, Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, Rauða krossinum,
Hjálpræðishernum, Hjálparstarfi
kirkjunnar, Samhjálp, Fangelsis-
málastofnun, Geðsviði Land-
spítalans o.fl. Samráðshópurinn
samanstendur af einstaklingum
sem starfa á vettvangi með utan-
garðsfólki og hefur þá sérstöðu
að geta komið með ábendingar
um það sem betur má fara og
hefur orðið eins konar málsvari
heimilis lausra, t.d. hvað varðar
pólitíska stefnumótun.
Það er því ljóst að mála-
flokkurinn er ekki afskiptur af
borgaryfirvöldum né öðrum stofn-
unum og félagasamtökum. Mikl-
um fjármunum er veitt ár hvert til
að viðhalda og auka við þjónustu í
málaflokki utangarðsfólks. Mikil-
vægt er, þegar verið er að fjalla
um málaflokk utangarðsfólks,
að fjölmiðlafólk sé meðvitað um
hvaða þjónustu hið opinbera og
önnur félagasamtök eru að veita
til að koma í veg fyrir misskiln-
ing og/eða einhliða umfjöllun. Stór
hópur sérfræðinga og fagfólks
lætur sig málin varða og kapp-
kostar við að veita utangarðsfólki
góða þjónustu. Enginn dregur í efa
neyð þeirra sem ekki eiga sér fast-
an samastað og við sem samfélag
eigum að láta okkur málefni utan-
garðsfólks varða. Við eigum að
vinna saman og því er mikilvægt
að allar upplýsingar um fyrirliggj-
andi þjónustu séu uppi á borðinu.
Aukin þjónusta við utangarðsfólk í efnahagshruni
Blómsturvellir - Hellissandi
Palóma föt og skart - Gridavík
Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði
Rammagerðin - Akureyri
Bláa Lónið - Svartsengi Grindavík
Gullauga - Ísafirði
Samfélagsmál
Guðrún Þorgerður
Ágústsdóttir
félagsráðgjafi