Fréttablaðið - 11.10.2012, Side 52
11. október 2012 FIMMTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
13 ára afmæli
LAURA
Joyeux anniversaire
Við elskum þig!
Amma Janine og pabbi þinn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR PÉTURSSON
húsasmíðameistari,
Dvalarheimilinu Grund, áður Árskógum 8,
lést aðfaranótt föstudagsins 5. október.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 12. október kl. 11.00.
Pétur Einarsson Svanfríður Ingvadóttir
Sigríður Björg Einarsdóttir Skúli Jónsson
Þórhalli Einarsson Guðný Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
GUÐLAUG ALBERTSDÓTTIR
Vogatungu 93,
Kópavogi,
er látin. Jarðarförin fór fram í kyrrþey.
Sveinn Oddgeirsson
Katrín Lillý Sveinsdóttir Jón Örn Árnason
Oddgeir Már Sveinsson Sigrún Stefanía Jónsdóttir
Albert Jón Sveinsson Jónína Hreinsdóttir
Guðni Gýjar Albertsson
Þórkatla Albertsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KRISTINN FINNSSON
múrarameistari,
Laufásvegi 7, Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítalanum aðfaranótt
þriðjudagsins 9. október. Útförin fer fram frá
Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. október
kl. 13.00.
Sigurður Kristinsson Sesselja G. Sveinsdóttir
Magdalena Kristinsdóttir Ingi Björn Albertsson
Inga Jóhanna Kristinsdóttir Sveinn Þór Elinbergsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, fyrrverandi
eiginmaður og afi,
JÓN ÁSBJÖRNSSON
forstjóri,
lést á líknardeild Landspítalans
þriðjudaginn 2. október. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 11. október
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Ásbjörn Jónsson Hildigunnur Gunnarsdóttir
Ásdís Jónsdóttir Árni Rúdolf Rúdolfsson
Birgir Jóhannes Jónsson
Halla Daníelsdóttir
Jón Gunnar, Ásbjörn Daníel og Arndís Ásbjörnsbörn
Rudolf Jón og Halla Marta Árnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN RÚNAR GUNNARSSON
Sælundi, Bíldudal,
lést mánudaginn 8. október á taugadeild
Landspítalans í Fossvogi. Útför hans fer
fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn
13. október klukkan 14.00.
Nanna Sjöfn Pétursdóttir
Anna Vilborg Rúnarsdóttir Gísli Ægir Ágústsson
Lilja Rut Rúnarsdóttir Elfar Steinn Karlsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
INGVELDUR EINARSDÓTTIR
Álfabergi 14,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut þriðjudaginn 9. október.
Trausti Sveinbjörnsson
Björn Traustason Helga Halldórsdóttir
Bjarni Þór Traustason Sigrún Ögn Sigurðardóttir
Ólafur Sveinn Traustason Eydís Eyþórsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL INGIMUNDUR AÐALSTEINSSON
Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ,
lést miðvikudaginn 3. október. Útförin fer
fram föstudaginn 12. október kl. 13.00
frá Grafarvogskirkju.
Guðrún Hafsteinsdóttir
Hafsteinn Pálsson Lára Torfadóttir
Bjarnveig Pálsdóttir
Björk Pálsdóttir Páll Valdimarsson
Hrönn Pálsdóttir Magnús L. Alexíusson
Aðalsteinn Pálsson Helga Grímsdóttir
Steinþór Pálsson Áslaug Guðjónsdóttir
Gunnar Páll Pálsson Ásta Pálsdóttir
Snæbjörn Pálsson Þórdís Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
ELEANOR ROOSEVELT (1884-1962) fæddist þennan dag.
„Framtíðin er þeirra sem þora að láta sig dreyma og trúa
á fegurðina í draumum sínum.“
Bandalag íslenskra skáta fagnar 100
ára afmæli sínu nú í ár og slær í til-
efni af því upp Friðarþingi í Hörpu
um helgina. Þetta er í fyrsta skipti
sem þingið er haldið og miðar það að
því að fjarlægja fólk frá þeirri hugsun
að tengja þörfina á friði einungis við
stríð og miða friðarboðskapinn út frá
einstaklingnum. „Þátttakendurnir á
þinginu eru mjög ólíkir, allt frá Íslend-
ingum og öðrum friðsælum þjóðum
og til fólks sem lifir á ófriðarsvæðum
og við dagleg átök,“ segir Unnsteinn
Jóhannsson skáti og einn skipuleggj-
enda Friðarþingsins.
Unnsteinn segir mikilvægt að
hampa því hversu mikið skátahreyf-
ingin vinni að friði í heiminum. „Ég
hef til dæmis sungið bræðralagssöng-
inn frá unga aldri og þó að hann fjalli
um að treysta friðarbönd og bræðra-
lag þá hafði ég ekki beint áttað mig
á hversu öflug friðarhreyfing við
erum, með 40 milljón manns innan-
borðs,“ segir hann. Fyrirlestrarnir
á þinginu fjalla allir um frið en frá
mismunandi sjónarhornum. Tutt-
ugu fyrirlesarar munu stíga á stokk
og má þar meðal annars nefna Eddu
Björgvinsdóttur leikkonu, Pál Óskar
Hjálmtýsson tónlistarmann, Herdísi
Egilsdóttur, kennara og rithöfund, og
íþróttaálfinn Magnús Scheving. Fram-
kvæmdastjóri alþjóðabandalagsins er
einnig væntanlegur á þingið sem Unn-
steinn segir hafa vakið mikla athygli á
alþjóðavísu. „Alþjóðabandalagið hefur
beðið okkur um að búa til snið að þessu
þingi svo ungir skátar í öðrum löndum
geti notað það til að fá hugmyndir og
leikið það eftir á sinni heimagrund,“
segir hann, en skátahreyfinguna er að
finna í öllum löndum heims að undan-
skildum Kína og Norður-Kóreu. Hann
segir hreyfinguna hérlendis hafa stig-
ið fram í blindni hvað varðar uppsetn-
ingu á þinginu en að allt hafi gengið
vel og þau vonist til að geta haft þetta
árlegt héðan í frá. „Að minnsta kosti
annað hvert ár,“ segir hann.
Forþing stendur nú yfir í Hugmynda-
húsinu á Granda og eru þar saman
komin 50 ungmenni á aldrinum 16 til
25 ára til að undirbúa helgina. Ung-
mennin koma frá átta mismunandi
löndum, Palestínu, Búlgaríu, Georgíu,
Eistlandi, Lettlandi, Danmörku,
Austur ríki og Íslandi, og segir það
sig því sjálft að mikil fjölbreytni er í
hópnum. „Þau eru að setja saman svo-
kallaðan friðarleik sem verður farið í
á laugar daginn,“ segir Unnsteinn og
bendir á að öllum sé velkomið að koma
og taka þátt. „Leikurinn lítur rosalega
spennandi út, bæði fyrir börn og full-
orðna,“ bætir hann við.
Alls konar skemmtilegar vinnu-
smiðjur verða einnig í boði í Hörpu um
helgina og hluti þeirra fólki algjörlega
að kostnaðarlausu. Á fyrirlestrana er
hægt að kaupa hvort heldur sem er
dagspassa eða helgarpassa og velja
svo á milli þeirra viðburða sem heilla
mest. „Það er okkar gjöf til lands-
manna að bjóða upp á einhverja við-
burði frítt, en annars er þetta þing sem
enginn sem lætur sig friðarmálefnið
varða ætti að láta framhjá sér fara,“
segir Unnsteinn. tinnaros@frettabladid.is
FIMMTÍU UNGMENNI FRÁ ÁTTA LÖNDUM: BÚA TIL FRIÐARLEIK Á FORÞINGI
Fjölbreytilegt friðarþing í Hörpu
FRIÐARLEIKUR Um fimmtíu ungmenni eru nú stödd í Hugmyndahúsinu á forþingi fyrir Friðarþingið. Ungmennin eru á aldrinum 16 til 25 ára og
eru frá Palestínu, Búlgaríu, Georgíu, Eistlandi, Lettlandi, Danmörku, Austurríki og Íslandi. Unnsteinn Jóhannsson er meðal skipuleggjenda.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þátttakendurnir
eru mjög ólíkir.
Allt frá friðsælum
þjóðum og yfi r
í fólk sem lifi r á
ófriðarsvæðum og við dag-
leg átök.