Fréttablaðið - 11.10.2012, Qupperneq 60
11. október 2012 FIMMTUDAGUR40 40tónlist
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Í SPILARANUM
tonlist@frettabladid.is
Hin bandaríska Cat Power
gaf fyrir skömmu út sína
níundu plötu. Þar blandar
hún sálar- og blústónlist
saman við elektróník.
Níunda hljóðversplata bandarísku
tónlistarkonunnar Cat Power, Sun,
kom út fyrir skömmu en sex ár eru
liðin frá síðustu plötu hennar ein-
göngu með nýju efni.
Í þetta sinn blandar hún aðal-
lega saman sálar- og blústónlist við
elektróník. Sjálf hefur Cat Power
sagt að daðrið við myrkrið sé
minna en áður, í staðinn komi meiri
birta, gleði og trú á eigin framtíð
eins og nafnið Sun gefur til kynna.
Hún samdi, spilaði og tók upp
nýju plötuna upp á eigin spýtur.
Upptökur stóðu yfir í þrjú ár og
fóru fram á fjórum stöðum, þar á
meðal í hljóðveri sem hún smíðaði
sjálf í borginni Malibu. Iggy Pop
hinni eini og sanni kemur við sögu
í hinu átta mínútna langa Nothin‘
But Time og í laginu Peace and
Love vitnar hún í söngkonuna
Ninu Simone, „Peace and love is a
famous generation“.
Cat Power heitir réttu nafni
Charlyn Marie Marshall og fædd-
ist í Atlanta í Georgíuríki árið
1972. Tvítug flutti hún til New
York-borgar og fjórum árum síðar
komu Steve Shelley úr rokksveit-
inni Sonic Youth og Tim Foljahn
úr Two Dollar Guitar auga á hana
á tónleikum. Þeir hvöttu hana til
dáða og spiluðu á fyrstu tveimur
plötum hennar. Árið 1996 samdi
Cat Power við útgáfuna Mata-
dor sem gaf út þriðju plötu henn-
ar, What Would the Community
Think, þar sem Shelley stjórnaði
upptökum. Þar hristi hún saman
rokki, blús- og þjóðlagatónlist í
krassandi kokkteil við góðar und-
irtektir gagnrýnenda. Næsta plata,
Moon Pix, fékk enn betri viðtökur
og vakti mikla athygli á henni hjá
indírokkurum. Grönsararnir Dave
Grohl og Eddie Vedder voru gest-
ir á næstu plötu hennar með nýju
efni, You Are Free, ásamt Warren
Ellis úr Dirty Three, og á þeirri
næstu, The Greatest, var sálar-
tónlist áberandi. Cat Power hefur
gefið út tvær plötur sem hafa nær
eingöngu verið með tökulögum, þá
síðustu fyrir fjórum árum.
Gagnrýnendur hafa yfirleitt
verið mjög hliðhollir Cat Power og
sú er einmitt raunin með Sun. Roll-
ing Stone og The Guardian gefa
henni fjórar stjörnur og vefurinn
Pitchfork 7,9 af 10 mögulegum.
Cat Power fylgir plötunni eftir
með tónleikaferð um Bandaríkin í
október og nóvember og eftir það
verður förinni heitið til Evrópu.
freyr@frettabladid.is
Minna myrkur, meiri gleði
CAT POWER Níunda plata bandarísku tónlistarkonunnar er nýkomin út.
NORDICPHOTOS/GETTY
ALL WE CAN BE með Bigga Hilmars er plata vikunnar ★★★
„Biggi úr Ampop með ágæta sólóplötu í ætt við fyrri
verk.“ - TJ
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 27. september - 3. október 2012
LAGALISTINN
Vikuna 27. september - 3. október 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Retro Stefson ..............................................................Glow
2 Muse .....................................................................Madness
3 Valdimar ......................................................................... Sýn
4 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait
5 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál
6 Ragnar Bjarnason / Jón Jónsson ...................... Froðan
7 Magni ..................................................................Augnablik
8 Philip Phillips ............................................................Home
9 Moses Hightower ............................. Sjáum hvað setur
10 Of Monsters and Men .......................Mountain Sound
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn
2 Stuðmenn ......................................................... Astralterta
3 Retro Stefson ..............................................Retro Stefson
4 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal
5 Muse ............................................................. The 2nd Law
6 Biggi Hilmars ............................................All We Can Be
7 Moses Hightower ................................ Önnur Mósebók
8 Sigur Rós ...................................................................Valtari
9 Ojba Rasta .......................................................Ojba Rasta
10 Eivör ............................................................................Room
Sun er fyrsta plata Cat Power sem kemst inn á topp tíu á bandaríska
Billboard-listanum. Hún náði tíunda sætinu sem er tveimur sætum ofar
en sú síðasta, Jukebox, komst. Frakkar hafa verið mjög hrifnir af Cat Power
í gegnum árin því báðar þessar plötur hafa náð inn á topp tíu þar í landi.
Bretar eiga aftur á móti enn eftir að kveikja fyrir alvöru á tónlistarkonunni og
náði Sun til að mynda aðeins 33. sæti á breska listanum.
FYRSTA PLATAN SEM KEMST Á TOPP TÍU
Hiphop-kvöld undir merkjum Kronik er fastur liður á Iceland
Airwaves-hátíðinni. Þau hafa oft verið góð, en í ár er dagskráin þétt-
ari en stundum áður. Það eru tvær sveitir frá Seattle sem eru stærstu
númerin, en að auki koma fram Úlfur Úlfur, Emmsé Gauti, hinn
sjóðheiti Gísli Pálmi og nýja bandið hans Sölva Blöndal og Tiny úr
Quarashi, Halleluwah.
Seattle-sveitirnar eru THEESatisfaction og Shabazz Palaces. Sú
síðarnefnda átti eina af bestu plötum síðasta árs, Black Up. Hún
er skipuð þeim Ishmael
Butler, sem einu sinn var í
Digable Planets, og Tendai
Maraire. Tónlistin sem
þeir leika er framsækið
og ferskt hiphop, en líka
svalt og afslappað. Shabazz
Palaces byrjaði árið 2009.
Þeir félagar höfðu gefið út
tvær EP-plötur þegar Sub
Pop-útgáfan bauð þeim
samning. Sun Pop er mikið
rokkmerki, enda er Shabazz
Palaces fyrsta hiphop-
sveitin sem útgáfan gerir
samning við.
Í tveimur lögum á Shabazz Palaces-plötunni eru gestasöngkonurn-
ar Stasia Iron og Catherine Harris-White, öðru nafni THEESatis-
faction. Þær vöktu það mikla athygli með frammistöðu sinni á plöt-
unni að Sub Pop gerði samning við þær líka og fyrsta platan þeirra
awE NaturalE kom út í mars. Tónlist THEESatisfaction er mjög flott
líka, en hún er nær nýsálartónlist Erykuh Badu en tónlist Shabazz
Palaces. awE NaturalE hefur fengið frábæra dóma.
Það er fullt af flottri tónlist úti um allan bæ á Airwaves 2012, en
Kronik-kvöldið er, a.m.k. á pappírunum, eitt alsterkasta kvöldið í ár.
Feit hiphop-veisla á Airwaves
GÓÐAR Stasia Iron og Catherine Harris-White
skipa dúettinn THEESatisfaction sem kemur
fram á Þýska barnum 1. nóvember.
Tame Impala - Lonerism Stuðmenn og Grýlurnar -
Astralterta
Jóhann Jóhannsson
Copenhagen Dreams
SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR
OG SANNAR SÖGUR FRÁ
ÍSLENSKU NEYÐARLÍNUNNI
HEFST Í KVÖLD KL. 20.10
NEYÐARLÍNAN
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS