Fréttablaðið - 20.10.2012, Page 74

Fréttablaðið - 20.10.2012, Page 74
20. október 2012 LAUGARDAGUR42 1965 1990 1992 1995 1997 2007 2012 T he Casual Vacancy er gjörólík Harry Potter. Hvers vegna vildirðu skrifa þessa bók? „Ég fékk hugmynd- ina um borð í flugvél í þetta sinn, ekki lest, og varð strax spennt fyrir henni. Eins og Harry Potter er þetta saga um siðferði og dauðleika nema hún gerist í sam- tímanum. Sögusviðið er lítið sam- félag og krafðist þess að ég skrifaði um persónur á fullorðinsaldri, allt upp í sjötugsaldur. Ég er yfir mig hrifin af nítjándu aldar skáldsög- um sem gerast í litlum bæjum eða þorpum. Þetta er mín tilraun til að gera samtímaútgáfu af slíkri sögu. Hvers vegna heitir hún „Casual Vacancy“ (Laust sæti)? Komu aðrir titlar til greina? Vinnuheitið var „Responsible“ (Ábyrgð), því grunnstefið er hversu mikla ábyrgð hvert og eitt okkar ber á því hvar við erum stödd í líf- inu – hamingju okkar, heilsu og auðlegð – og einnig ábyrgðina sem við berum gagnvart öðru fólki – mökum okkar, börnum og ytra sam- félagi. Þegar ég rakst hins vegar á orðalagið „Casual Vacancy“, sem er rétt orðalag fyrir það þegar sóknar- sæti losnar vegna skyndilegs frá- falls, vissi ég um leið að þarna væri titillinn kominn. Þetta er marg- ræður titill fyrir mitt leyti. Í fyrsta lagi virtist mér sem stærsta „lausa sætið“ væri dauðinn sjálfur, sem gerir oft ekki boð á undan sér og skilur eftir sig tómarúm sem ekki verður fyllt. Ég var líka meðvituð um að allar persónurnar í bókinni búa yfir annmarka eða skortir eitt- hvað í lífi sínu sem þær reyna að fylla á einn eða annan hátt: með mat, drykk, eitur lyfjum, dagdraum- um eða uppreisnargjarnri hegðun. Þetta mætti líka kalla „laus sæti“: litlu gloppurnar í lífi okkar, sem við erum ekki endilega meðvituð um, en finnum engu að síður fyrir þörf til að laga. Fæst við algild efni Bókinni hefur verið lýst sem kol- svartri kómedíu. Geturðu sagt okkur aðeins frá því? „Húmorinn er býsna dimmur, en sjálf myndi ég ekki lýsa bók- inni sem svartri kómedíu. Kannski gamanharmleik! Finnst þér þetta vera sérlega bresk skáldsaga? Að hve miklu leyti er hún um Bretland í dag og að hve miklu leyti um algild efni? „Þótt sögusviðið og persónurn- ar séu breskar er ég að fást við algilt efni. Félagslegu þættirn- ir eiga við alls staðar: hjónaband og hjúskapar vandamál, togstreita milli foreldra og barna, hugmynda- fræðilegur ágreiningur um áhersl- una á annars vegar sjálfsbjargar- viðleitni og hins vegar stuðning frá hinu opinbera. Þetta er bók um samfélag að- skilnaðar – meðal annars milli full- orðinna og barna. Hvers vegna? „Fjölskyldur í þróuðum, vest- rænum samfélögum upplifa sífellt meiri tímaskort. Börn og unglingar nú til dags fá því annars konar upp- eldi en við sem ólumst upp á sjötta og sjöunda áratugnum. Það er líka geypilegt bil milli kynslóðanna í samskiptatækni. Facebook, Twit- ter og SMS-skilaboð eru yfirráða- svæði hinna ungu og ég held að eitt af verkefnum foreldra nú til dags, enn frekar en fyrri kynslóða, sé að skilja fyllilega ýmis mál og við- fangsefni tengd samfélagsmiðlum, sem koma fullorðnum oft framandi fyrir sjónir. Hvers vegna viltu skrifa um ung- linga? „Ég hugsa að það sé vegna þess að unglingar eru svo brothættir, þrátt fyrir þá neikvæðu mynd sem er stundum dregin upp af unglingum sem hættulegum skemmdar vörgum. Þetta er mjög viðkvæmt aldursskeið. Þegar maður slítur barnskónum rennur upp fyrir manni að það þarf að lifa þessu lífi, með öllu því sem það felur í sér. Maður verður með- vitaður um lífið og tímann sem líður, sem barnið gerir sér ekki skýra grein fyrir á sama hátt. Unglingar búa oftar en ekki hjá miðaldra foreldrum. Það er því óstöðugt jafnvægi á heimilinu milli unglingsins, sem áttar sig skyndi- lega á að hann þarf að taka ákvarð- anir í lífinu og ábyrgð á því hvernig það mótast, og foreldranna sem á sama tíma upplifa jafnvel eftirsjá eftir eigin ákvörðunum, hvaða stefnu líf þeirra hefur tekið og verða sífellt meðvitaðri um eigin dauðleika. Þessi blanda getur reynst algjör púðurtunna og er það sannar- lega í þessari bók. Viðsnúningur á kjörunum Þú tekst á við alvarleg málefni í bókinni, þar á meðal sjálfsskaðandi hegðun, kynferðislega tilrauna- starfsemi, vímuefnamisnotkun og nauðgun. Hvernig rannsakaðir þú þetta? „Ég lagðist ekki í ýtarlegar grunnrannsóknir um þessi mál- efni. Þótt þetta sé skáldsaga (engin persóna á sér raunverulega fyrir- mynd) hef ég á minni dálítið óvenju- legu ævi kynnst fólki sem er eins og þessar persónur. Einu sinni var ég mjög fátæk. Augljóslega hefur orðið fullkominn viðsnúningur á kjörum mínum, og fyrir það er ég mjög þakklát, en ég hef þekkt fólk eins og allar persónurnar í bókinni. Hversu mikið byggir þú á þinni fyrri reynslu sem kennari? „Sú reynsla kom sér mjög vel. Ég kenndi í almenningsskólum þar sem var ekkert inntökuferli og í hverjum bekk voru nemendur af mjög fjölbreyttum toga. Það hjálp- aði mér sannarlega við lýsingar á unglingum en ég byggði meira á minni eigin reynslu á því að hafa verið unglingur í slíkum skóla og á eigin minningum um unglingsárin. Hversu vel nýtist reynsla þín sem móðir þér við skriftir? „Það eru margar ólíkar mæður í þessari bók. Þrjár persónur hafa orðið barnshafandi fyrir slysni og í ljósi grunnstefsins um ábyrgð veitti það mér tækifæri til að kanna að hversu miklu leyti líffærafræði kvenna hefur áhrif á líf þeirra, jafnvel nú á dögum getnaðarvarna. Það eru foreldrar sem vilja vel í bókinni, en á heildina litið myndi ég segja að unglingarnir fimm sem koma við sögu hafi allir liðið fyrir mistök sem gerð voru í upp- eldi þeirra. Á einu heimilinu eru til dæmis báðir foreldrarnir læknar. Þörfin til að skara fram úr hefur borist niður með kynslóðunum og fyrir vikið þurfa börnin að skara fram úr. Algeng pressa innan milli- stéttarinnar! Á hinum enda félags- lega litrófsins er unglingur sem býr við mjög bág kjör og þarf í raun að vera í hlutverki foreldris gagnvart móður sinni. En foreldrahlutverkið er það erfiðasta í heimi og ég held að það gerði okkur öllum gott að viður- kenna það. Er þetta grunntogstreitan í bók- inni? „Þetta veldur mikilli togstreitu en það eru fleiri núningsfletir líka, til dæmis vinna á kostnað fjöl- skyldulífs. Helsta orsök togstreitu í bókinni er hins vegar langvar- andi árekstrar milli grunngilda í bænum Pagford; fallegu sveitaþorpi sem þarf að halda við dýrri fasteign meðan atvinnuleysi og vímuefna- vandamál eru útbreidd. Gott að vera laus við skilafresti Hvað hefurðu við þá að segja við þá sem vonuðust eftir einhverju í líkingu við Harry Potter? „Rithöfundur þarf að skrifa það sem hann vill skrifa. Eða öllu heldur það sem hann þarf að skrifa. Ég þurfti að skrifa þessa bók. Ég vona að einhverjir eigi eftir að kunna að meta hana. Það truflar mig ekki þótt sumir geri það ekki og kemst alls ekki í upp- nám þótt margir vilji lesa meira um Harry Potter, þvert á móti lít ég á það sem hrós! Ég á án nokk- urs vafa eftir að skrifa fyrir börn aftur, því ég ann því mjög og efast um að ég láti nokkurn tím- ann af því.“ Hvað tekur nú við? „Ég vil ekki vera tekin á orðinu (því mér finnst ágætt að vera laus undan skilafresti) en ég hugsa að næsta bók verði fyrir börn. Ég er með verk í fartölvunni sem er nálægt því að verða lokið. Ég áskil mér hins vegar fullan rétt til að skipta um skoðun! Þýðing: Bergsteinn Sigurðsson. Ég þurfti að skrifa þessa bók J.K. Rowling lýsir sinni nýjustu bók, Casual Vacancy, sem gamanharmleik í samtali við James Runcie, rithöfund og kvikmyndagerðarmann. J.K.ROWLING Nýjasta bók hennar, The Casual Vacancy, kemur út á íslensku í nóvember. JK ROWLING OG HARRY POTTER Rowling fæðist í bænum Yate í Glou- cesterskíri á Eng- landi. Ung að árum byrjaði hún að skrifa fantasíur sem hún las upp fyrir systur sína. Rowling lærði ensku og frönsku í Exeter-háskóla og vann hjá Amnesty International að loknu prófi þaðan. Fær hugmyndina að Harry Potter þegar hún er á lestarferða- lagi frá Manchester til London. Síðar sama ár, þegar hún er byrjuð að skrifa um Harry Potter, deyr móðir hennar og það hefur mikil áhrif á skriftirnar. Giftist portúgölskum blaðamanni og þau eignast dótturina Jes- sicu. Skömmu síðar hætta þau saman og skilja svo árið 1994. Rowling stríðir við þunglyndi í kjölfar skilnaðarins og hún sagði síðar að áhrif sjúkdómsins hefðu gefið henni hugmynd- ina að vitsugunum í Potter-bókunum. Lýkur við fyrstu Harry Potter-bókina eftir að hafa mestmegnis skrifað hana á kaffi- húsum í Edinborg með dóttur sína með í för. Harry Potter og visku- steinninn kemur út í eitt þúsund eintökum hjá Bloomsbury. Árið eftir vinnur Rowling virt barnabókaverð- laun í Bretlandi og boltinn byrjar að rúlla. Kvikmynda- réttur á bókunum er keyptur ári síðar og komu myndirnar í kvik- myndahús á árunum 2001 til 2011. Sjöunda og síðasta bókin um galdradrenginn kemur út, Harry Potter og dauðadjásnin. Hún selst í ell- efu milljónum eintaka á fyrsta degi í Bretlandi og Bandaríkj- unum og verður þar með sú bók sem hefur selst hraðast í sögunni. The Casual Vacancy, fyrsta bók Rowling eftir bókaröðina um Harry Potter, kemur út. Bókarinnar er beðið með eftir- væntingu og seljast 2,6 milljónir eintaka í forsölu. Bókin segir frá óvæntu dauðsfalli sóknarnefndarmanns í bænum Pagford og átökum sem blossa upp í kjölfar þess.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.