Fréttablaðið - 20.10.2012, Qupperneq 74
20. október 2012 LAUGARDAGUR42
1965 1990 1992 1995 1997 2007 2012
T
he Casual Vacancy er
gjörólík Harry Potter.
Hvers vegna vildirðu
skrifa þessa bók?
„Ég fékk hugmynd-
ina um borð í flugvél í
þetta sinn, ekki lest, og varð strax
spennt fyrir henni. Eins og Harry
Potter er þetta saga um siðferði og
dauðleika nema hún gerist í sam-
tímanum. Sögusviðið er lítið sam-
félag og krafðist þess að ég skrifaði
um persónur á fullorðinsaldri, allt
upp í sjötugsaldur. Ég er yfir mig
hrifin af nítjándu aldar skáldsög-
um sem gerast í litlum bæjum eða
þorpum. Þetta er mín tilraun til að
gera samtímaútgáfu af slíkri sögu.
Hvers vegna heitir hún „Casual
Vacancy“ (Laust sæti)? Komu aðrir
titlar til greina?
Vinnuheitið var „Responsible“
(Ábyrgð), því grunnstefið er hversu
mikla ábyrgð hvert og eitt okkar
ber á því hvar við erum stödd í líf-
inu – hamingju okkar, heilsu og
auðlegð – og einnig ábyrgðina sem
við berum gagnvart öðru fólki –
mökum okkar, börnum og ytra sam-
félagi. Þegar ég rakst hins vegar á
orðalagið „Casual Vacancy“, sem er
rétt orðalag fyrir það þegar sóknar-
sæti losnar vegna skyndilegs frá-
falls, vissi ég um leið að þarna væri
titillinn kominn. Þetta er marg-
ræður titill fyrir mitt leyti. Í fyrsta
lagi virtist mér sem stærsta „lausa
sætið“ væri dauðinn sjálfur, sem
gerir oft ekki boð á undan sér og
skilur eftir sig tómarúm sem ekki
verður fyllt. Ég var líka meðvituð
um að allar persónurnar í bókinni
búa yfir annmarka eða skortir eitt-
hvað í lífi sínu sem þær reyna að
fylla á einn eða annan hátt: með
mat, drykk, eitur lyfjum, dagdraum-
um eða uppreisnargjarnri hegðun.
Þetta mætti líka kalla „laus sæti“:
litlu gloppurnar í lífi okkar, sem við
erum ekki endilega meðvituð um,
en finnum engu að síður fyrir þörf
til að laga.
Fæst við algild efni
Bókinni hefur verið lýst sem kol-
svartri kómedíu. Geturðu sagt
okkur aðeins frá því?
„Húmorinn er býsna dimmur,
en sjálf myndi ég ekki lýsa bók-
inni sem svartri kómedíu. Kannski
gamanharmleik!
Finnst þér þetta vera sérlega
bresk skáldsaga? Að hve miklu
leyti er hún um Bretland í dag og
að hve miklu leyti um algild efni?
„Þótt sögusviðið og persónurn-
ar séu breskar er ég að fást við
algilt efni. Félagslegu þættirn-
ir eiga við alls staðar: hjónaband
og hjúskapar vandamál, togstreita
milli foreldra og barna, hugmynda-
fræðilegur ágreiningur um áhersl-
una á annars vegar sjálfsbjargar-
viðleitni og hins vegar stuðning frá
hinu opinbera.
Þetta er bók um samfélag að-
skilnaðar – meðal annars milli full-
orðinna og barna. Hvers vegna?
„Fjölskyldur í þróuðum, vest-
rænum samfélögum upplifa sífellt
meiri tímaskort. Börn og unglingar
nú til dags fá því annars konar upp-
eldi en við sem ólumst upp á sjötta
og sjöunda áratugnum. Það er líka
geypilegt bil milli kynslóðanna í
samskiptatækni. Facebook, Twit-
ter og SMS-skilaboð eru yfirráða-
svæði hinna ungu og ég held að eitt
af verkefnum foreldra nú til dags,
enn frekar en fyrri kynslóða, sé
að skilja fyllilega ýmis mál og við-
fangsefni tengd samfélagsmiðlum,
sem koma fullorðnum oft framandi
fyrir sjónir.
Hvers vegna viltu skrifa um ung-
linga?
„Ég hugsa að það sé vegna þess að
unglingar eru svo brothættir, þrátt
fyrir þá neikvæðu mynd sem er
stundum dregin upp af unglingum
sem hættulegum skemmdar vörgum.
Þetta er mjög viðkvæmt aldursskeið.
Þegar maður slítur barnskónum
rennur upp fyrir manni að það þarf
að lifa þessu lífi, með öllu því sem
það felur í sér. Maður verður með-
vitaður um lífið og tímann sem líður,
sem barnið gerir sér ekki skýra
grein fyrir á sama hátt.
Unglingar búa oftar en ekki hjá
miðaldra foreldrum. Það er því
óstöðugt jafnvægi á heimilinu milli
unglingsins, sem áttar sig skyndi-
lega á að hann þarf að taka ákvarð-
anir í lífinu og ábyrgð á því hvernig
það mótast, og foreldranna sem á
sama tíma upplifa jafnvel eftirsjá
eftir eigin ákvörðunum, hvaða
stefnu líf þeirra hefur tekið og
verða sífellt meðvitaðri um eigin
dauðleika. Þessi blanda getur reynst
algjör púðurtunna og er það sannar-
lega í þessari bók.
Viðsnúningur á kjörunum
Þú tekst á við alvarleg málefni í
bókinni, þar á meðal sjálfsskaðandi
hegðun, kynferðislega tilrauna-
starfsemi, vímuefnamisnotkun og
nauðgun. Hvernig rannsakaðir þú
þetta?
„Ég lagðist ekki í ýtarlegar
grunnrannsóknir um þessi mál-
efni. Þótt þetta sé skáldsaga (engin
persóna á sér raunverulega fyrir-
mynd) hef ég á minni dálítið óvenju-
legu ævi kynnst fólki sem er eins
og þessar persónur. Einu sinni var
ég mjög fátæk. Augljóslega hefur
orðið fullkominn viðsnúningur á
kjörum mínum, og fyrir það er ég
mjög þakklát, en ég hef þekkt fólk
eins og allar persónurnar í bókinni.
Hversu mikið byggir þú á þinni
fyrri reynslu sem kennari?
„Sú reynsla kom sér mjög vel.
Ég kenndi í almenningsskólum þar
sem var ekkert inntökuferli og í
hverjum bekk voru nemendur af
mjög fjölbreyttum toga. Það hjálp-
aði mér sannarlega við lýsingar á
unglingum en ég byggði meira á
minni eigin reynslu á því að hafa
verið unglingur í slíkum skóla og á
eigin minningum um unglingsárin.
Hversu vel nýtist reynsla þín sem
móðir þér við skriftir?
„Það eru margar ólíkar mæður
í þessari bók. Þrjár persónur hafa
orðið barnshafandi fyrir slysni og
í ljósi grunnstefsins um ábyrgð
veitti það mér tækifæri til að kanna
að hversu miklu leyti líffærafræði
kvenna hefur áhrif á líf þeirra,
jafnvel nú á dögum getnaðarvarna.
Það eru foreldrar sem vilja vel í
bókinni, en á heildina litið myndi
ég segja að unglingarnir fimm
sem koma við sögu hafi allir liðið
fyrir mistök sem gerð voru í upp-
eldi þeirra. Á einu heimilinu eru til
dæmis báðir foreldrarnir læknar.
Þörfin til að skara fram úr hefur
borist niður með kynslóðunum og
fyrir vikið þurfa börnin að skara
fram úr. Algeng pressa innan milli-
stéttarinnar! Á hinum enda félags-
lega litrófsins er unglingur sem býr
við mjög bág kjör og þarf í raun að
vera í hlutverki foreldris gagnvart
móður sinni. En foreldrahlutverkið
er það erfiðasta í heimi og ég held að
það gerði okkur öllum gott að viður-
kenna það.
Er þetta grunntogstreitan í bók-
inni?
„Þetta veldur mikilli togstreitu
en það eru fleiri núningsfletir líka,
til dæmis vinna á kostnað fjöl-
skyldulífs. Helsta orsök togstreitu
í bókinni er hins vegar langvar-
andi árekstrar milli grunngilda í
bænum Pagford; fallegu sveitaþorpi
sem þarf að halda við dýrri fasteign
meðan atvinnuleysi og vímuefna-
vandamál eru útbreidd.
Gott að vera laus við skilafresti
Hvað hefurðu við þá að segja við
þá sem vonuðust eftir einhverju í
líkingu við Harry Potter?
„Rithöfundur þarf að skrifa
það sem hann vill skrifa. Eða
öllu heldur það sem hann þarf að
skrifa. Ég þurfti að skrifa þessa
bók. Ég vona að einhverjir eigi
eftir að kunna að meta hana. Það
truflar mig ekki þótt sumir geri
það ekki og kemst alls ekki í upp-
nám þótt margir vilji lesa meira
um Harry Potter, þvert á móti lít
ég á það sem hrós! Ég á án nokk-
urs vafa eftir að skrifa fyrir börn
aftur, því ég ann því mjög og
efast um að ég láti nokkurn tím-
ann af því.“
Hvað tekur nú við?
„Ég vil ekki vera tekin á orðinu
(því mér finnst ágætt að vera laus
undan skilafresti) en ég hugsa að
næsta bók verði fyrir börn. Ég
er með verk í fartölvunni sem
er nálægt því að verða lokið. Ég
áskil mér hins vegar fullan rétt
til að skipta um skoðun!
Þýðing: Bergsteinn Sigurðsson.
Ég þurfti
að skrifa
þessa bók
J.K. Rowling lýsir sinni nýjustu bók, Casual
Vacancy, sem gamanharmleik í samtali við James
Runcie, rithöfund og kvikmyndagerðarmann.
J.K.ROWLING Nýjasta bók hennar, The Casual Vacancy, kemur út á íslensku í nóvember.
JK ROWLING OG HARRY POTTER
Rowling fæðist í
bænum Yate í Glou-
cesterskíri á Eng-
landi. Ung að árum
byrjaði hún að skrifa
fantasíur sem hún
las upp fyrir systur
sína. Rowling lærði
ensku og frönsku í
Exeter-háskóla og
vann hjá Amnesty
International að
loknu prófi þaðan.
Fær hugmyndina að
Harry Potter þegar
hún er á lestarferða-
lagi frá Manchester
til London. Síðar
sama ár, þegar hún
er byrjuð að skrifa
um Harry Potter,
deyr móðir hennar og
það hefur mikil áhrif á
skriftirnar.
Giftist portúgölskum
blaðamanni og þau
eignast dótturina Jes-
sicu. Skömmu síðar
hætta þau saman og
skilja svo árið 1994.
Rowling stríðir við
þunglyndi í kjölfar
skilnaðarins og hún
sagði síðar að áhrif
sjúkdómsins hefðu
gefið henni hugmynd-
ina að vitsugunum í
Potter-bókunum.
Lýkur við fyrstu Harry
Potter-bókina eftir
að hafa mestmegnis
skrifað hana á kaffi-
húsum í Edinborg með
dóttur sína með í för.
Harry Potter og visku-
steinninn kemur út í
eitt þúsund eintökum
hjá Bloomsbury. Árið
eftir vinnur Rowling
virt barnabókaverð-
laun í Bretlandi og
boltinn byrjar að
rúlla. Kvikmynda-
réttur á bókunum er
keyptur ári síðar og
komu myndirnar í kvik-
myndahús á árunum
2001 til 2011.
Sjöunda og
síðasta bókin um
galdradrenginn
kemur út, Harry
Potter og
dauðadjásnin.
Hún selst í ell-
efu milljónum
eintaka á fyrsta
degi í Bretlandi
og Bandaríkj-
unum og verður
þar með sú bók
sem hefur selst
hraðast í sögunni.
The Casual Vacancy,
fyrsta bók Rowling
eftir bókaröðina um
Harry Potter, kemur
út. Bókarinnar er
beðið með eftir-
væntingu og seljast
2,6 milljónir eintaka
í forsölu. Bókin segir
frá óvæntu dauðsfalli
sóknarnefndarmanns
í bænum Pagford og
átökum sem blossa
upp í kjölfar þess.