Fréttablaðið - 22.11.2012, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2012 | MENNING | 55
Tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirs-
son réð breska hljóðversgítarleik-
arann Nigel Cuff til að spila inn á
nýjustu plötuna sína, Watch the Bird
Fly (The Raven).
Upptökur fóru fram í hljóðveri
Hjartar í Reykjavík og hjá Cuff í
Englandi. Sá breski annaðist einnig
hljóðblöndun og lokafrágang.
Aðspurður segist Hjörtur hafa borg-
að Cuff góðan pening fyrir aðstoð-
ina. „Ég man ekki hvað ég borgaði
honum í heildina. Það voru hundruð
þúsunda sem fóru í þetta.“
Samstarf þeirra fór fram í
gegnum tölvu, en Cuff er með hljóð-
ver í Bournemouth. „Hann er sér-
hæfður popp-rokk gítarleikari sem
hentaði mér mjög vel. Ég get sjálfur
séð um bassaleik og rytmagítar. Svo
syng ég líka og er með bakraddir
í nokkrum lögum,“ segir Hjörtur,
sem segist vel geta hugsað sér að
ráða hljóðversspilara í næstu verk-
efni sín.
Hann gefur plötuna út sjálfur og
hafa bæði Cdbaby og Amadeamusic
séð um dreifinguna. Einnig er hægt
að finna lög af henni á síðunum
Soundcloud, Myspace og Youtube. - fb
Réð til sín breskan hljóðversgítarleikara
Tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson borgaði Nigel Cuff góðan pening fyrir aðstoð á nýjustu plötunni sinni.
RÉÐ HLJÓÐVERSSPILARA Hjörtur Geirsson réð breskan gítarleikara til að
spila inn á plötuna sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eins og svo margar aðrar Holly-
wood-stjörnur virðist leikkonan
Emma Stone luma á kynlífsmynd-
bandi. Crazy, Stupid Love stjarn-
an gerði myndbandið meðan hún
var enn ung og vitlaus og löngu
áður en núverandi kærasti henn-
ar, Andrew Garfield, kom til sög-
unnar. Segir sagan að mótleikari
hennar í myndbandinu eigi þó
enn afrit af því. Það hefur ekki
lekið út enn þá og vonar Emma
að svo haldist. „Emma ber enga
virðingu fyrir stjörnum eins og
Kim Kardashian og Paris Hilton
sem urðu frægar af því þær létu
kynlífsmyndband af sér leka á
netið,“ lét heimildarmaður náinn
henni hafa eftir sér.
Lumar á gömlu
kynlífsmynd-
bandi
FYRIR ANDREW Myndbandið var tekið
upp fyrir tíma Emmu og Andrew.
NORDICPHOTOS/GETTY
Taylor Swift ræddi hugmyndina
að baki tónlistarmyndbandinu við
lagið We Are Never Ever Gett-
ing Back Together, en söguþráð-
urinn þykir nokkuð óljós. Söng-
konan sagðist hafa verið að heiðra
„indie“-tónlistarfólk með mynd-
bandi sínu.
„Veistu þegar maður horfir
á „indie“-myndbönd og maður
hugsar: „Af hverju eru þau á kafi,
á stólum sem eru á hvolfi og af
hverju er mynd af fiðrildi mynd-
varpað handahófskennt í bak-
grunninn?“ Okkur langaði að taka
hattinn ofan fyrir þessum handa-
hófskenndu „indie“-myndböndum.
Af hverju eru skógardýr í mynd-
bandinu mínu? Það veit enginn. Af
hverju er ég í náttfötum? Það veit
enginn. Af hverju er ég allt í einu
með gleraugu? Það veit enginn,“
sagði söngkonan í viðtali við New
York Times.
Handahófs-
kennt vídeó
HANDAHÓFSKENNT MYNDBAND
Taylor Swift segir myndbandið við We
Are Never Ever Getting Back Together
handahófskennt í anda „indie“-mynd-
banda. NORDICPHOTOS/GETTY