Fréttablaðið - 22.11.2012, Síða 64
22. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 56
„Þetta er sjálfstætt framhald Ind-
jánans. Sjóræninginn segir frá
Hlemmsárunum mínum, þegar ég
er á aldrinum þrettán til fimmtán
ára. Í stórum dráttum segir bókin
frá því þegar ég lýk barnaskóla
og fer í Réttarholtsskóla. Þar varð
ég fyrir miklu einelti og lenti í
ákveðnum erfiðleikum, svo kynn-
ist ég pönkinu og fer að hanga á
Hlemmi,“ segir Jón Gnarr borgar-
stjóri um nýútkomna bók sína,
Sjóræningjann. Bókin er skálduð
ævisaga líkt og fyrri bók Jóns,
Indjáninn.
Jón hóf að semja Sjóræningj-
ann stuttu eftir að hann lauk við
þá fyrri, en ákvað að bíða með
útgáfu bókarinnar þar til nú. „Ég
vildi ekki gefa hana út strax því ég
var ekki tilbúinn til þess. Í fyrra
þótti mér tíminn kominn og ég
settist niður og las bókina yfir og
fíniseraði hana. Mér fannst mikil-
vægt að koma henni út, það skiptir
svo miklu máli fyrir þá sem eru
í líkum aðstæðum og ég var, að
fá sögu einhvers sem hefur farið
í gegnum það sama. Það virkar
sem hvatning og veitir samhug. Á
sama tíma var þetta þerapía fyrir
mig og ég uppgötvaði margt í sam-
bandi við mitt líf, og lífið almennt,
við að skrifin. Bókin fékk mig til
að skilja betur hver ég er og úr
hverju ég er.“
Samsamaði sig
sjóræningjum
Sjóræninginn er önnur bókin í þríleik Jóns Gnarr. Bókin fj allar um einelti sem
Jón varð fyrir, kynnin við pönkið og fl óttann á Hlemm.
VARÐ AÐ GEFA BÓKINA ÚT Sjóræninginn, framhald hinnar skálduðu ævisögu Jóns
Gnarr, Indjánans, er komin út. Jón segist hafa orðið að gefa bókina út.
Frosti Gnarr, sonur Jóns, hannar bókarkápu Sjóræningj-
ans, en á henni má sjá mynd af húðflúri sem Jón fékk
sér nítján ára gamall. „Kápan er mjög persónuleg. Það
er mýta að sjóræningjar hafi verið illmenni, þeir voru
fólk sem var gjarnan á flótta undan illmennum. Fólk
sem hafði gert uppreisn gegn harðræði og miskunnar-
leysi þeirra tíma. Það sama á við Hlemm, ímyndin um
okkur krakkana sem héngum á Hlemmi var sú að við
værum í dópi og stunduðum innbrot. Þetta átti við
mjög fáa, flest vorum við mjög góðir krakkar,“ segir Jón og
bætir við að titillinn sé því ekki valinn af handahófi heldur útpældur.
Útpældur bókartitill
„Við erum smá hissa og sömu-
leiðis mjög stolt yfir því að platan
sé komin út,“ segir söngkonan Sig-
ríður Thorlacius, en í dag kemur
út breiðskífan, Enter 4, frá hljóm-
sveitinni Hjaltalín.
Það má segja að ný plata Hjalta-
lín komi eins og þruma úr heið-
skíru lofti en að sögn Sigríðar
var það ekki fyrr en í október
sem sveitin lagðist öll á eitt við
að klára plötuna. „Við höfum
verið að búa til grunna síðastlið-
ið eitt og hálft ár en það var ekki
fyrr en í október sem við vorum
nógu ánægð með efnið og töld-
um okkur tilbúin að gefa út plötu.
Þannig að það má kannski kalla
þetta skyndiákvörðun,“ segir Sig-
ríður, sem einmitt fagnaði afmæl-
inu sínu í gær. „Það var mikill eld-
móður í okkur að klára þetta og
við unnum mikið á kvöldin og
nóttunni því það voru einu tím-
arnir sem stúdíóið var laust.“
Sigríður segir kveða við nýjan
tón á plötunni Enter 4. Högni á svo
heiðurinn af öllum textum plöt-
unnar sem eru á ensku. „Ef ég á
að segja eitthvað þá er tónninn
eilítið dekkri og kannski þyngri,
ekki beint svona léttpopp. Það er
orðið það langt síðan við gáfum
síðast út plötu að það er eðlilegt að
við komum inn með nýjan hljóm
núna,“ segir Sigríður en síðasta
plata Hjaltalín, Terminal, kom út
2009 og fékk einróma lof gagn-
rýnenda.
Hjaltalín hefur verið í spila-
pásu undanfarið þar sem meðlim-
ir sveitarinnar hafi verið á víð og
dreif um heiminn að vinna í sínu
eigin efni. Nú eru þau hins vegar
meira en tilbúin að hella sér út í
spilamennskuna og ríða á vaðið
með útgáfutónleikum í Gamla bíói
þann 21. desember. Enter 4 kemur
í verslanir í næstu viku en er nú
fáanleg á Tonlist.is og á heima-
síðu Hjaltalín, Hjaltalinmusic.
com. - áp
Dembir sér í fl óðið
Sigríður Thorlacius er stolt af nýrri plötu Hjaltalín.
STOLT OG GLÖÐ Útgáfutónleikar Enter 4 verða 21. desember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jón var mjög heillaður af ind-
jánum og sjóræningjum sem barn
og þaðan eru titlar bókanna fengn-
ir. Hann leit á sjóræningja sem
utangarðsfólk síns tíma og sam-
samaði sig þeim.
„Ég var alltaf mjög heillaður
af menningarsamfélögum sem ég
upplifði sem frjáls samfélög. Fyrir
mér var indjáni manneskja sem
lifði frjáls í sátt og samlyndi við
náttúruna. Þegar ég varð ungling-
ur yfirfærðist þessi áhugi minn
svolítið yfir á sjóræningja. Sjó-
ræningjar voru gjarnan fólk sem
hafði orðið undir í sam félaginu
og komist í kast við lögin og varð
því að flýja hið hefðbundna sam-
félag. Mér fannst þetta góður tit-
ill á bókina því á þessum tíma var
ég að flýja skólakerfið og þá erfið-
leika sem ég gekk í gegnum þar.
Hlemmur var minn sjóræningja-
vettvangur.“
Sjóræninginn er önnur bókin í
þríleik og mun þriðja og síðasta
bókin fjalla um tímann sem Jón
eyddi á heimavistarskóla á Núpi
í Dýrafirði. Inntur eftir því hvort
hann hafi nokkurn tíma í aflögu
fyrir fjölskyldu sína á milli þess
sem hann sinnir embætti borgar-
stjóra og listagyðjunni svarar Jón
neitandi. „Líf mitt er þannig að ég
á ekkert líf,“ segir hann og hlær.
„Ég er með standandi dagskrá
alltaf. Í sumar, þegar ég ætlaði að
eyða sumarfríinu mínu hjá systur
minni í Noregi, þá lýsti Morgun-
blaðið eftir mér, eins og frægt er
orðið. Þannig að ég á aldrei frí.“
sara@frettabladid.is