Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 21
afsláttur á kassa
1 pakki smjördeig, útflatt
olía til steikingar
1 eggaldin, niðurskorið
1/2 púrrulaukur, sneiddur
1 rauð paprika, söxuð í bita
2 hvítlauksrif, pressuð
600 g kjúklingalundir
KJÚKLINGABAKA MEÐ FETAOSTI OG GRÆNMETI
fyrir 6, að hætti Rikku
afsláttur á kassa
4 timjangreinar
2 egg
100 ml rjómi
100 g fetaostakubbur, mulinn
100 g kotasæla
4 kirsuberjatómatar
salt og nýmalaður pipar
Hitið ofninn í 200°C. Þrýstið smjördeiginu í eldfast
mót og skerið það frá brúninni þannig að það passi
vel í mótið. Leggið smjörpappír ofan á deigið og
fyllið botninn með hrísgrjónum. Bakið botninn í 15
mínútur. Fjarlægið þá hrísgrjónin og smjörpappírinn
og bakið áfram í 10 mínútur. Steikið eggaldinið,
púrrulaukinn og paprikuna í 7-10 mínútur. Bætið
hvítlauk út í og kryddið með salti og pipar.
Setjið grænmetið í botninn á bökunni. Steikið
kjúklinginn og kryddið með salti pipar og
timjan og hellið ofan á grænmetið.
Hrærið eggin saman við rjómann, fetaostinn
og kotasæluna og hellið ofan í bökuna. Raðið
tómötunum ofan á og bakið í 25 mínútur.
Vanilluís með brownies-
kökum, karamellusósu
og Bourbon vanillu
Silkimjúk súkkulaðimús
með hindberjum
Súkkulaðimús með kókos
og rommi
Heit súkkulaðikaka
með mjúkri miðju
Súkkulaðiís