Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 38
6 • LÍFIÐ 7. DESEMBER 2012
ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR.
STARF: Starfandi stjórnarformaður og
stofnandi Sinnum ehf.
ALDUR: 44 ára.
HJÚSKAPARSTAÐA: Gift.
BÖRN: Þrjú sem eru 2, 13 og 22 ára.
HVAR SÉRÐU ÞIG EFTIR 10 ÁR? Ham-
ingjusama, frjálsa og ómeðvitaða í því
að njóta hverrar stundar.
Hvar hefur þú verið undanfarið og
hvað tekstu á við þessa dagana?
Þessa dagana er ég að koma af
stað nokkurs konar dvalarheimili þar
sem einstaklingar og hjón á öllum
aldri geta búið. Þetta er úrræði fyrir
fólk sem þarf mikla heimaþjónustu
en hefur til dæmis ekki komist inn
á dvalar heimili eða vill heldur búa á
heimili þar sem er meiri félagsskapur
en þegar fólk býr eitt heima. Heimilið
er rekið af Sinnum, sem við Ásta Þór-
arinsdóttir stofnuðum fyrir um fimm
árum, en fram til þessa höfum við að-
allega sérhæft okkur í heimaþjónustu
auk þess sem við önnumst daglegan
rekstur sjúkra hótelsins í Ármúla. Við
erum með frábæran starfsmannahóp
og eðlilegt næsta skref hjá okkur var
að opna Heimilið í Holtsbúð í Garða-
bæ þar sem við erum með sextán
laus herbergi. Húsnæðið er yndislegt
og það er spennandi að skapa þarna
hlýlegt og notalegt samfélag fólks á
öllum aldri.
Fimm ár í uppbyggingu
Ég er starfandi stjórnarformaður í
Sinnum og er aðallega í að þróa þær
nýju þjónustuleiðir sem við bjóðum
upp á hverju sinni. Megnið af minni
starfsorku undanfarin fimm ár hefur
farið í að byggja upp Sinnum og það
hefur gengið mjög vel. Við erum nú
með um 65 starfsmenn og vöxturinn
hefur verið jafn og öruggur frá upp-
hafi. Það hefur verið mjög gefandi og
lærdómsríkt að vera í fyrirtæki sem
helgar sig umönnun og hvers kyns
stuðningi við einstaklinga sem eru
hjálparþurfi. Eftirminnilegastar eru
þó þær stundir þar sem ég hef sjálf
verið á vettvangi og fyrstu árin var
það reglulegur hluti af mínu starfi að
vera sjálf í almennri heimaþjónustu
eins og þrifum, liðveislu, hjálpa fólki
að taka lyfin sín eða að elda mat í
heimahúsum.
Forréttindi að eignast börn
Athyglisverðast fannst mér að eldra
fólk hefur alltaf mestan áhuga á pers-
ónulegum högum þeirra sem koma í
heimsókn og það spurði mig nánast
undantekningalaust hvað ég ætti
mörg börn. Þegar ég sagðist þá eiga
tvö börn þá kom yfirleitt sama spurn-
ingin: „Eru það stelpur eða strákar?“
Ég sagðist þá eiga tvo stráka og þá
horfði fólk gjarnan á mig með vorkunn
í augunum og sagði: „Æ,æ,æ ... þá
mun engin heimsækja þig þegar þú
verður gömul.“ Ég vissi vel að margir
voru að tala af reynslu þó að auð-
vitað sé persónubundið hvort synir
eða dætur sinna öldruðum foreldrum.
En óháð því var okkur búið að langa
í fleiri börn í einhvern tíma því mér
finnst ekkert meira gefandi en að
eiga góðar stundir með fjölskyld-
unni. Við Aðalsteinn vorum svo lán-
söm að eignast litla dóttur fyrir rúm-
lega tveimur árum. Það eru algjör for-
réttindi að fá að upplifa það aftur að
eignast barn þegar maður er komin
yfir fertugt, en það eru 20 ár á milli
elsta og yngsta barnsins. Í raun erum
ÁKVAÐ AÐ ÞROSKAST
Á NÝJUM VETTVANGI
Ásdís Halla Bragadóttir er kraftmikil fjölskyldukona sem leggur sig nú fram við
uppbyggingu á dvalarheimili fyrir einstaklinga sem kjósa að láta sér líða vel. Hún
ræðir aðventuna, stjórnmál, bróðurmissinn og hennar sýn á lífið og tilveruna.
„Bergljót Þorsteinsdóttir
tók þessa mynd af okkur. Í
fanginu á mér er Lilja (2ja),
fyrir ofan mig er Jónas
(22ja), svo kemur Bragi (13)
og Aðalsteinn,” segir Ásdís
spurð um fjölskyldumyndina.
Stjórnvöld
hefðu númer
1,2 og 3 átt
að einblína á
að koma í veg
fyrir það að
efnahags hrunið
bitnaði jafn illa
á almenningi.
Framhald á síðu 8
Pore Refining Solutions Instant Perfecting Makeup
Postulínsslétt húð frá og með deginum í dag
Það er meira en að segja það
Olíulaus farði sem er svo léttur að jafnvel í návígi
virðist húð þín hafa postulínsslétta áferð.
Húðin verður fíngerðari og áferðarfallegri með degi hverjum.
Kaupauki.*
Með uppáhalds farðanum eða púðrinu þínu frá Clinique færðu
Airbrush Hyljara eða Chubby Stick varagloss í kaupbæti.
*Meðan birgðir endast
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust.