Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 4
A
T
A
R
N
A
á morgun.
Fjöldi tilboða
í tilefni dagsins.
Opið frá 10 til 16.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning
Krónan veikist
Krónan hefur haldið áfram að veikjast síðustu vikuna og
hefur hún ekki verið jafn veik síðan í lok júní í fyrra. Þessa
þróun á síðustu dögum má einna helst rekja til þróunar á
gengi krónunnar gagnvart evru, segir Greining Íslands-
banka. Í gær kostaði evran um 161,3 krónur. Hefur gengi
krónunnar í raun ekki verið jafn veikt gagnvart evru síðan
um miðjan maí í fyrra. Um síðustu áramót var evran á
rétt rúmar 153 krónur og hefur krónan þar með veikst um
5,0% gagnvart evru frá þeim tíma. Nokkuð flökt hefur
verið á gengi punds og dollars gagnvart krónunni en af
einstaka myntum hefur íslenska krónan veikst mest gagn-
vart sænsku krónunni, eða um 7% frá áramótum. -jh
5,0%
læKKUn GenGis
KrónU GaGnvart
evrU
Ég velti því
fyrir mér hvort
fólk sem ekki
vill gefa úr sér
líffæri, myndi
líka hafna því
að vera líf-
færaþegar ef
það þyrfti á því
að halda.
Fjöldi líffæraígræðslna
í undirbúningi
Eftirspurn eftir líffærum hefur aukist verulega hér á landi. Nýlegir samningar við Sahlgrenska sjúkra-
húsið í Gautaborg færa Íslendingum fleiri líffæri en áður.
Heilbrigðismál líffæraflutningar
Þ örf fyrir líffæri hefur aukist mikið á undanförnum árum og aldrei áður hafa jafnmargar líffæraígræðslur
verið í undirbúningi og nú,“ segir Runólfur
Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga, sem
hefur umsjón með líffæraígræðslustarfsemi
á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
„Líffærabilun á lokastigi hafa alltaf verið
fátíðari á Íslandi en annars staðar í heim-
inum en nú hefur líffærabilun aukist mjög
hér. Nýrnabilun hefur til dæmis aukist veru-
lega og þörfin fyrir nýru fer vaxandi.“
Runólfur segir eftirspurn eftir líffærum
eiga sér ýmsar skýringar en lífsstílssjúk-
dómar séu að aukast víða um heim. „Það
hefur verið minna um sykursýki hér á landi
en annars staðar en hún er mikill orsaka-
valdur þegar kemur að nýrnabilun. Við höf-
um séð hægfara aukningu sykursýki hér
á undanförnum árum.“ Hann telur bætta
meðferð við öðrum sjúkdómum og lægri
dánartíðni sjúklinga sem kljást til dæmis
við æðasjúkdóma, gera það að verkum að
nýrnabilun verði algengari.
Runólfur segir samninga um líffæraíg-
ræðslu við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gauta-
borg hafa verið stórt framfaraskref. „Nú
er liðið ár frá því við hófum samstarf við
Gautaborg en áður voru líffæraígræðslur
framkvæmdar í Kaupmannahöfn. Biðtím-
inn eftir líffærum hefur styst verulega og
við höfum aldrei fengið fleiri líffæri en þetta
ár frá því við gerðum nýja samninga.“
Runólfur er þeirrar skoðunar að Íslend-
ingar ættu að breyta löggjöfinni til sam-
ræmis við önnur Norðurlönd þar sem gert
er ráð fyrir að fólk sé líffæragjafar nema
annað sé sérstaklega tekið fram. „Þrjátíu til
fjörutíu prósent af þeim sem gætu verið líf-
færagjafar á Íslandi eru það ekki. Aðallega
vegna þess að aðstandendur samþykkja
það ekki, en um þetta eru auðvitað skiptar
skoðanir. Okkar lög byggjast á því að fólk sé
ekki líffæragjafar nema það sé sérstaklega
tekið fram. Ég velti því fyrir mér hvort fólk
sem ekki vill gefa úr sér líffæri, myndi líka
hafna því að vera líffæraþegar ef það þyrftu
á því að halda. Ég tel mikilvægt að hefja al-
menningfræðslu um þessi mál.“
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Úlpuveður
Lokaðu kuldabola
úti og hleyptu honum
ekki aftur inn.
NoKKuð áKveðiN N-áTT, allT að 15 m/s
NorðausTaNlaNds og Þar éljagaNgur
og sKafreNNiNgur. aNNars úrKomu-
lausT, eN KalT.
Höfuðborgarsvæðið: n 5-8 m/s oG frost
7 til 10 stiG. talsverð vindKælinG.
Hæg N-áTT og víða bjarT veður og áfram
fremur KalT. úTliT fyrir sNjóKomu
vesTaNTil um Kvöldið.
Höfuðborgarsvæðið: HæGviðri oG
léttsKýjað framan af deGi, en fer að snjóa
Undir Kvöld.
sNjóKoma og bylur um vesTaNverT laNdið,
eN HláNar á eNdaNum. úrKomulausT
auTaNTil, eN sTreKKiNgsviNdur og víða
sKafreNNiNgur.
Höfuðborgarsvæðið: spáð er HrÍðarbyl
Um tÍma, en Hlánar sÍðla daGsins.
veturinn í hámarki
Það er kalt í dag föstudag og víða um
10 stiga frost. jafnframt verður dálítill
vindur og vindkæling eftir því. á höfuð-
borgarsvæðinu mun vindkælingin í fyrra-
málið samsvara um 20-25 stiga frosti!
á laugardag er spáð hægviðri og víðast
verður úrkomulaust og bjart veður og áfram tals-
vert frost um land allt. seint á laugardag eða á
sunnudag er síðan að sjá að það komi
úrkomusvæði úr vestri með ofanhríð
og skafrenningi um landið vestan-
vert. Hins vegar er enn talsverð
óvissa hvenær veður breytist
í þessa veru og eins hversu
slæmt það verður í raun.
8
9 12 10
7 5
10 10
13
6
1
2 5
7
3
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
ferðamet í
febrúar
miðað við tölur frá
Ferðamálastofu fóru
22.849 erlendir gestir
frá landinu um Leifsstöð
í mánuðinum sem er
fjölmennasti febrúar-
mánuður frá upphafi
þess tímabils sem Ferða-
málastofa hefur haldið
úti talningum, og þar
með góðar líkur á að sé
sá fjölmennasti frá upp-
hafi. Á sama tíma í fyrra
fóru 20.293 erlendir
ferðamenn frá Leifsstöð
og hefur þeim því fjölgað
um 12,6% milli ára.
erlendum ferðamönnum
fjölgaði einnig í janúar
og var hann hugsanlega
fjölmennasti janúar frá
upphafi hvað erlenda
ferðamenn varðar.
aukningin í febrúar var
mest á ferðamönnum
frá norður-ameríku, sem
er þriðjungsaukning frá
sama mánuði í fyrra.
næstmest var aukningin
á ferðamönnum frá mið-
og suður-evrópu. -jh
eignir lífeyrissjóðanna aldrei
meiri í krónum
Hreinar eignir lífeyrissjóðanna jukust að raungildi um 6,7%
í janúar síðastliðnum frá sama tíma í fyrra. námu hreinar
eignir þeirra til greiðslu lífeyris ríflega 1.935 milljörðum króna
og hafa þær aldrei verið meiri í krónum talið. ef miðað er við
nýbirtar tölur Hagstofu um landsframleiðslu samsvöruðu
eignir lífeyrissjóðanna í janúarlok 125% af vergri landsfram-
leiðslu síðasta árs. Íslenska lífeyrissjóðakerfið er því enn
með þeim öflugustu á heimsvísu á þennan mælikvarða, þótt
verulega hafi gefið á bátinn undanfarin misseri. Raunávöxtun
sjóðanna hefur þó verið talsvert minni en ofangreindar tölur
gefa til kynna. Þessum tölum verður að taka með fyrirvara,
segir Greining Íslandsbanka, enda eru öll kurl ekki komin til
grafar varðandi endanlegt verðmæti tiltekinna eignaflokka í
kjölfar bankahrunsins. -jh
össur sækir lán til þriggja
stórbanka
Össur hefur undirritað fimm ára lánasamning
við þrjá alþjóðlega banka, ING Bank, Nordea
og SEB upp á 231 milljón dollara. lánið skiptist í
120 milljóna dollara lán með jöfnum afborgunum
og 111 milljóna dollara lánalínu fyrir rekstur og
möguleg fyrirtækjakaup. lánasamningurinn mun lækka
vaxtakostnað félagsins miðað við núverandi skuldahlutföll.
Áætla má að árlegur vaxtasparnaður gæti numið um tveimur
milljónum dollara en nettó vaxtaberandi skuldir félagsins
námu um 133 milljónum dollara um síðustu áramót. Kjörin
í lánasamningnum teljast góð, að mati Greiningar Íslands-
banka. með endurfjármögnuninni hefur Össur tryggt sér
alþjóðlegan aðgang að lánsfé sem styrkir samkeppnishæfni
og vaxtarmöguleika. Samhliða þessu greiðir Össur upp lán sín
gagnvart Arion banka. -jh
runólfur segir biðtíma eftir líffærum hafa styst eftir að komið var á nýju samstarfi við sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg.
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i
4 fréttir Helgin 11.-13. mars 2011