Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 12
A ð eiga föður sem fæddur var árið 1838, fyrir rúmum 173 árum, og afa sem fæddist á
átjándu öld er sérstakt, ef ekki ein-
stakt. Þetta átti við um Ástu Þór-
björgu Beck Þorvarðsson sem lést
22. febrúar síðastliðinn og var jarð-
sett á föstudaginn.
„Einhver fann það út á netinu að
þetta væri Íslandsmet,“ segir Ríkharð
Brynjólfsson, sonur Ástu Þórbjargar
og Brynjólfs Þorvarðssonar. Brynj-
ólfur lést 1974. Oddur Helgason ætt-
fræðingur man ekki dæmi þess að
lengra hafi liðið frá fæðingu föður og
andláts barns hans. Það sem næst
kemst þessu, að því er vitað er, eru
Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri
og athafnamaður, og María tann-
smiður, dóttir hans. Tryggvi fæddist
18. október 1835 en lést 21. október
1917. María fæddist tæpum mánuði
eftir andlát Tryggva en hún andaðist
28. apríl 2007. Frá fæðingu Tryggva
til andláts Maríu leið því um 171 og
hálft ár.
Ásta Þórbjörg fæddist 14. septem-
ber 1913 og var því á 98. aldursári er
hún lést. Faðir hennar, Hans Jakob
Beck, fæddist 16. janúar 1838 og lést
29. nóvember 1920. Frá fæðingu hans
til andláts hennar liðu því rúmlega
173 ár. Afi Ástu Þórbjargar, Christen
Nielsen Beck, fæddist árið 1797. Það
má því halda því fram að þessi leggur
hafi gengið hægt fram en Ásta átti
þrettán hálfsystkin að föðurnum
en alsystkin hennar voru sjö.
Hún var frá fjögurra ára
aldri alin upp af hálfsystur
sinni og manni hennar.
„Í Íslendingabók
Ara fróða er talað um
fólk sem man langt
aftur og það má segja
í þessu samhengi
að það geti alveg
verið,“ segir Rík-
harð en móðir hans
var andlega ern fram
undir það síðasta. „Það
var haft eftir bróður
hennar, sem sjálfsagt
hefur haft það eftir ömmu,
að faðir hennar og afi minn
hafi munað eftir Jónasi Hall-
grímssyni þegar hann kom á
Eskifjörð eftir hina miklu ferð sína
um Austurland. Afi hefur verið um
það bil fjögurra ára þá. Trúlega hafa
menn tekið eftir því á Eskifirði, sem
þá var lítið pláss, þegar svo þekktur
maður kom þangað. Þetta var honum
í barnsminni.“
Ríkharð getur lífshlaups Hans
Jakobs, afa síns, í minningargrein um
móður sína í Morgunblaðinu síðast-
liðinn föstudag, segir það í senn hafa
verið langt og viðburðaríkt. Hann
hafi átt þrettán börn með fyrri konu
sinni en árið 1906 hafi hann beygt um
þvert og gifst 23 ára vinnukonu. „Þá
hafði hann látið búið í hendur sonar
síns og sjálfsagt verið gert ráð fyrir
að hann ætti náðuga elli í skjóli hans.
Trúlega hefur margt verið sagt og
enn fleira hugsað um þetta ráðslag,
sem á hvoruga hlið var að frænda
ráði,“ segir Ríkharð m.a. í minningar-
greininni.
Það breytir því hins vegar ekki
að afa hans og ömmu varð tíu barna
auðið á árabilinu 1907 til 1919 en
átta þeirra lifðu. Öll eru þau látin og
síðust úr þeirra hópi móðir Ríkharðs,
Ásta Þórbjörg, sem átti föður sem var
á fermingaraldri þegar Jón Sigurðs-
son fór fyrir öðrum á Þjóðfundinum
1851 og 36 ára þegar Kristján IX.
Danakonungur afhenti Íslendingum
stjórnarskrána, það sæla ár 1874.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Kynslóðir ÁstA Þórbjörg becK ÞorvArðsson vAr jArðsett í liðinni viKu
Faðir hennar mundi
eftir heimsókn Jón-
asar Hallgrímssonar
Hún átti föður sem var á fermingaraldri þegar Jón Sigurðsson fór fyrir öðrum á Þjóðfundinum 1851
og vel á fertugsaldri þegar Kristján IX. afhenti Íslendingum stjórnarskrá árið 1874.
Í Íslend-
ingabók
Ara fróða
er talað
um fólk
sem man
langt aftur
og það má
segja í þessu
samhengi
að það geti
alveg verið.
Ásta Þórbjörg Beck
Þorvarðsson lést 22.
febrúar síðastliðinn,
á 98. aldursári. Faðir
hennar fæddist árið
1838. Ekki er vitað
til þess að lengri tími
hafi liðið frá fæðingu
föður til andláts
barns hans, eða rúm
173 ár.
Heimsókn Jón-
asar Hallgríms-
sonar til Eskifjarðar var
föður Ástu Þórbjargar í barnsminni.
Kaupi DVD-myndir
og söfn.Upplýsingar í síma
8690345
Fylgstu með stærsta og fjölmennasta Reykjavíkurskákmótinu frá
upphafi. Á mótinu keppa um 30 stórmeistarar og eru þar á meðal
margir af þekktustu og sterkustu skákmönnum heims. Teflt er í
Ráðhúsinu og hefjast skákirnar kl. 16:30.
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í Reykjavík
MP Reykjavíkur-
skákmótið 2011
Í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9.-16. mars
Taktu þátt í skemmtilegri getraun á staðnum. Þú gætir unnið
gjafakort frá MP banka.
12 fréttir Helgin 11.-13. mars 2011