Fréttatíminn - 11.03.2011, Síða 25
Öll fargjöld miðast við fl ug báðar leiðir, skattar og gjöld innifalin. Verð miðast við 9. febrúar 2011 og framboð er takmarkað af lægstu fargjöldum. Ferðatímabil til Stokkhólms, Kaupmannahafnar, Stafangurs og Tromsø,
gegnum Ósló, er 26. apríl – 9. desember 2011. Ferðatímabil til Bangkok, gegnum Kaupmannahöfn, er 26. apríl – 16. júní eða 1. september – 9. desember 2011. Framboð getur verið takmarkað á almennum frídögum.
* Borgarkort fylgja ef keypt er fl ug í mars, báðar leiðir, til Kaupmannahafnar eða Stokkhólms, ferðatímabil 1. apríl til 31. maí, og eru háð takmörkunum.
fl ysas.is
Ávallt með SAS
Engin dulin gjöld
23 kg farangur án endurgjalds
Frí vefi nnritun
EuroBonus punktar
25% barnaafsláttur
Reykjavík Báðar leiðir frá
Kaupmannahöfn Kr.
Stokkhólmur Kr.
Ósló Kr.
FJÖLDI LÁGRA FARGJALDA Á SVEIMI.
Bókið fyrir 21. mars 2011.
Reykjavík Báðar leiðir frá
Stafangur Kr.
Tromsø Kr.
Bangkok Kr.
FRÍTT 24
tíma
Kaupman
nahafnar-
eða
Stokkhólm
sborgarko
rt*
fl ysas.is/c
itycard
aðstæður flóttamanna. „Við fórum
inn í borg þar sem voru mikil átök
og okkur var sagt að væru margir
flóttamenn. Við skynjuðum strax
að eitthvað lá í loftinu. Á hótel-
inu okkar fengum við þau fyrir-
mæli að halda okkur innandyra
og senda bara einn og einn mann
út að kanna aðstæður. Við tókum
ekki mark á því og ferðuðumst um
til að fá glögga mynd af aðstæðum.
Á sjúkrahúsi sem við heimsótt-
um fengum við þau skilaboð frá
yfirlækni að það væri hættulegt
fyrir okkur að vera á staðnum. Við
héldum samt áfram ótrauð þar til
við fengum símtal frá manni sem
kynnti sig sem ofursta í pakist-
anska hernum. Hann sagðist ekki
vera með fyrirmæli heldur skipun
til okkar um að yfirgefa borg-
ina. Heyrst hafði í gegnum fjar-
skiptabúnað að talibanar væru að
undirbúa árás á okkur. Við vissum
ekkert hvað til væri í þessu en við
gátum auðvitað ekki annað en flúið
samstundis.“
Áslaug komst í burtu heil á húfi
en segir sjokkið hafa komið eftir á.
„Ég gat ekki sagt fjölskyldu minni
frá þessu fyrr en eftir að ég kom
heim. Þetta var verulega óþægilegt
og við fengum það staðfest síðar
að það var raunverulega skipulögð
árás á okkur. Þetta hafði ég ekki
upplifað áður og oft held ég að
sendifulltrúar Rauða krossins séu
í meiri hættu en þá grunar.“
thora@frettatiminn.is
óþægilegt. Þeir nutu þess augljós-
lega að geta lokað þessar kerlingar
inni í smá stund.“
Börn viðskila við foreldra sína
Á meðan Áslaug dvaldi í Írak var
óskað eftir því að hún flytti sig
til Suður-Líbanons til að meta að-
stæður á svæði sem þúsundir Ísra-
ela höfðu yfirgefið á svipstundu.
Ísraelar höfðu skilið sjúkrahús á
svæðinu eftir algjörlega mannlaus
og þeim þurfti að koma í gagnið
að nýju með heimamönnum. Síðar
vann Áslaug í flóttamannabúðum
Palestínumanna í Líbanon og lagði
mat á hvernig skynsamlegast yrði
að haga aðstoð Rauða krossins á
svæðinu. Eftir að Ísraelsmenn fóru
út úr landinu opnuðust landamæri
Líbanons upp á gátt og önnur
hjálparsamtök tóku að streyma
að. „Þá dró Rauði krossinn sig út
eftir að hafa verið með starfsemi
á svæðinu í 22 ár. Það var frábær
tilfinning að yfirgefa staðinn og
vita að þarna væri ekki þörf fyrir
okkur lengur.“
Áslaug hefur einnig farið víða
um Afríku, meðal annars til
Úganda og Eþíópíu eftir stríðið
við Erítreu. Í Eþíópíu vann hún
við að sameina fjölskyldur sem
höfðu splundrast í stríðinu og fór
reglulega að landamærum Erítreu
til að sækja börn sem höfðu orðið
viðskila við foreldra sína. „Í öllum
átökum verður mikill glundroði og
fólk tvístrast af ýmsum ástæðum.
Oftast urðu mjög tilfinninga-
þrungnir endurfundir þegar fólk
hittist á ný eftir langan aðskilnað.
Það gat líka verið mjög erfitt og
flókið fyrir börn að koma aftur til
foreldra sinna eftir að hafa verið
fjarri þeim í langan tíma. Stundum
vildu þau alls ekki fara aftur til
þeirra. Ég man sérstaklega eftir
lítilli stelpu sem hafði dvalið hjá
frænku sinni í Erítreu í langan
tíma. Hún vildi ekki fara yfir
landamærin til að hitta mömmu
sína því frænkan hafði sagt henni
að þar væri ekki til neitt kex. Ég
man hvað mamman var fegin að
sjá stelpuna sína, faðmaði hana að
sér og grét en stelpan virti móður
sína ekki viðlits. Það voru líka
dæmi um foreldra sem alls ekki
gátu tekið við börnum sínum aftur
og höfðu ekki tök á að sjá fyrir
þeim.“
Í norðurhluta Eþíópíu eru
blönduð hjónabönd algeng þar sem
fólk er af sitt hvoru þjóðerninu.
Eftir stríð Erítreu og Eþíópíu
stóðu margir foreldrar frammi
fyrir því að þurfa að velja í hvoru
landinu eða hjá hvoru foreldrinu
væri best að hafa börnin. „Yfirleitt
réð það úrslitum hvar börnin ættu
mesta möguleika á mat. Ég held
nefnilega að allar mæður heimsins
elski börn sín jafn heitt en þar sem
fátæktin er svona gríðarleg þurfa
þær að taka erfiðar ákvarðanir.“
Áslaug er þakklát fyrir að hafa
verið í starfi hér á Íslandi þar sem
tekið var tillit til þess að hún þyrfti
reglulega að rjúka út í heim þegar
kallið bærist.
„Ég á alveg frábæra fjölskyldu
sem styður mig í öllu þótt þau
hefðu frekar viljað að ég færi bara
í vinnunni á Landspítalanum.
Þar hef ég líka frábæra yfirmenn
sem hafa veitt mér svigrúm til
að ferðast. Að sama skapi vil ég
meina að við sem vinnum svona
komum með heilmikið til baka til
spítalans. Við lærum að hugsa út
fyrir boxið og við þorum það.“
Talibanar skipulögðu árás
Áslaug segist aðeins einu sinni
hafa upplifað raunverulega hættu
en það var þegar hún vann í Pak-
istan við landamæri Afganistans.
Á svæðinu voru fjölmörg talibana-
hreiður og mannskæðar sjálfs-
morðsárásir voru tíðar. Áslaug var
eini heilbrigðisstarfsmaðurinn og
jafnframt eina konan í matsteymi
sem ferðaðist um svæðið og tók út
Áslaug að störfum í Pakistan þaðan sem hún flúði eftir að talibanar skipulögðu árás
á senditrúa Rauða krossins.
viðtal 25 Helgin 11.-13. mars 2011