Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Page 36

Fréttatíminn - 11.03.2011, Page 36
6 viðhald húsa Helgin 11.-13. mars 2011 Situr þú uppi með húsfélagið? Eignaumsjón sér um innheimtu og bókhald húsfélagsins, sækir um endurgreiðslu virðisaukaskatts og veitir ráðgjöf þegar vafa- og deilumál koma upp í húsfélögum. Oft getur skipt sköpum að hafa hlut- lausan aðila sem engra hagsmuna hefur að gæta. Það stuðlar að betri og hreinskiptnari samskiptum íbúa. Við sjáum um húsfélagið þitt. » www.eignaumsjon.is N ú stendur yfir tími aðalfunda í húsfélög-um þar sem einatt eru teknar ákvarðanir um mikilvæg mál og kostnaðar- samar framkvæmdir. Sam- kvæmt fjöleignarhúsalögum gilda ákveðnar reglur um töku ákvarðana. Ákvörðun um sameiginleg málefni skal tekin á húsfundi. Mjög mikil- vægt er að fundurinn sé boð- aður og haldinn í samræmi við fyrirmæli fjöleignarhúsa- laga. Það eru mörg dæmi um húsfélög og stjórnarmenn þeirra, sem hafa orðið fyrir tjóni og skakkaföllum vegna mistaka og klúðurs við undir- búning og framkvæmd hús- funda. Skyldur stjórnar Það er stjórn húsfélags sem boðar til húsfunda og ber ábyrgð á því að fundar- boðun sé lögleg. Sú skylda hvílir á stjórninni að undir- búa aðalfundi af kostgæfni, bæði fundarboðið, tillögur, skipulag, umgjörð og stjórn fundarins. Stjórn er heimilt að fá ráðgjöf og aðstoð sér- fræðinga við aðalfundi. Oft er það nauðsynlegt til að rjúfa sjálfheldu vegna deilna í hús- félaginu. Með allt á hreinu Þótt það virðist ekki vera mikið vandaverk að halda húsfundi, sem standast laga- kröfur og eru bærir til að taka lögmætar ákvarðanir, þá reynist það oft þrautin þyngri. Þess vegna, og til að mæta brýnni þörf, setti Hús- eigendafélagið á laggirnar sérstaka og altæka þjónustu um allt sem að húsfundum lýtur. Þeim húsfélögum sem vilja hafa allt á hreinu í þessu efni og leita aðstoðar hús- fundaþjónustunnar fer ört fjölgandi. Hér er um að ræða alhliða húsfundaþjónustu, þ.e. lög- fræðilega ráðgjöf og aðstoð við fundarboð og tillögur og gagnaöflun. Lögmaður með sérþekkingu annast fundar- stjórn og ritun fundargerðar er í höndum laganema. Einn- ig er séð fyrir fundarhúsnæði enda brýnt að húsnæði sé við- unandi og henti til funda. Öryggisráðstöfun Þessi þjónusta á að tryggja lögmæta fundi og að rétt sé staðið að töku ákvarðana en á því vill oft verða mis- brestur með afdrifaríkum afleiðingum eins og mörg dæmi sanna. Þessi þjónusta er því skynsamleg öryggis- ráðstöfun fyrir alla, bæði eig- endur og viðsemjendur hús- félags, banka og verktaka. Fundur, sem er undirbúinn og haldinn af þekkingu og fagmennsku, er ávallt og að öllu leyti betri, málefnalegri, markvissari og árangursrík- ari en fundur þar sem fum og fúsk ræður. Lögmæti funda, mikið í húfi Á húsfundum, ekki síst aðal- fundum, eru gjarna teknar ákvarðanir um dýrar fram- kvæmdir og ráðstafanir, sem hafa í för með sér miklar skuldbindingar fyrir hús- félög og veruleg fjárútlát, sem oft nema hundruðum þúsunda og stundum millj- ónum fyrir hvern eiganda. Það er almennt forsenda fyrir lögmæti ákvörðunar um við- haldsframkvæmdir og fyrir greiðsluskyldu eigenda, að ákvörðunin hafi verið tekin á fundi sem er rétt og löglega boðaður og haldinn. Húsfundaþjónustan Húsfundaþjónustan felur í sér ráðgjöf og aðstoð við undirbúning og boðun hús- funda og stjórnun funda og ritun fundargerða. Frá Hús- eigendafélaginu koma að hverjum fundi fundarstjóri og fundarritari. Fundarstjóri er lögmaður, sem hefur þekk- ingu, þjálfun og reynslu í fundahöldum, ásamt þekk- ingu á sviði fjöleignarhúsa- mála. Starfsmenn og lög- fræðingar félagsins, sem eru sérfróðir í málefnum fjöl- eignarhúsa, koma einnig að málum og aðstoða við undir- búning funda, samningu fundarboða, ályktana, til- lagna og samantekt annarra fundargagna og eru ráðgef- andi um öll atriði. Þjónustan hefst með undirbúningsfundi lögfræðings félagsins með forsvarsmönnum húsfélags- ins þar sem farið er yfir fund- arefnin og málefni húsfélags- ins og línurnar lagðar. Einnig sér félagið fyrir fundaraðstöðu (fundarsal) og er greitt sérstaklega fyrir það. Hefur það náð mjög hag- stæðum samningum við Ása- trúarfélagið um afnot af fund- arsal þess að Síðumúla 15. Hófleg þóknun, félags- aðild Fyrir þessa þjónustu er tekin mjög sanngjörn þóknun sem miðast við hóflegt tímagjald og þann tíma sem í verkið fer. Hér er boðin fram sérþekk- ing, kunnátta og reynsla og er gjaldið fyrir þjónustuna lágt í ljósi þess og einnig þegar haft er í huga að hún fyrirbyggir hugsanlegt fjár- tjón. Það er því mikið hags- munamál fyrir alla; eigendur, viðsemjendur, lánastofnanir, vektaka og aðra að húsfund- ir séu rétt haldnir þannig að ákvarðanir þeirra verði ekki vefengdar síðar með þeim leiðindum og fjárhags- legu skakkaföllum sem því fylgja. Húsfundaþjónustan er öðrum þræði leiðsögn og sýnikennsla í að undirbúa og halda húsfundi og oft geta húsfélög oft verið sjálfbjarga til framtíðar í þeim efnum. Til að fá þessa þjónustu þurfa húsfélög annaðhvort að vera í Húseigendafélaginu eða að ákveðið sé að tillaga um félagsaðild verði á dag- skrá viðkomandi húsfundar. Þeim húsfélögum sem vilja hafa allt á hreinu og leita aðstoðar húsfundaþjón- ustunnar fer ört fjölgandi.  HúSfundir StjórN boðar til húSfuNda og ber ábyrgð á því að boðuN Sé lögleg Húsfundaþjónusta Húseigendafélagsins Ákvörðun um sameiginleg málefni skal taka á húsfundi. Húsfundaþjónustan felur í sér ráðgjöf og aðstoð við undirbúning og boðun húsfunda og stjórnun funda og ritun fundargerða. Á húsfundum, ekki síst aðalfundum, eru gjarna teknar ákvarðanir um dýrar framkvæmdir og ráðstafanir sem hafa í för með sér miklar skuldbindingar fyrir húsfélög og veruleg fjárútlát, sem oft nema hundruðum þúsunda og stundum milljónum fyrir hvern eiganda. Te ik ni ng /B ri an P ilk in gt on

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.