Fréttatíminn - 11.03.2011, Qupperneq 43
viðhald húsa 13Helgin 11.-13. mars 2011
Viðhald Fagmenn.is
Framsækið fyrir
tæki iðnaðarmanna
Alhliða þjónusta veitt í viðhaldi húsa.
a ðalfagmenn ehf. (fagmenn.is) er framsækið fyrirtæki
iðnaðarmanna sem leggur
áherslu á að veita viðskipta-
vinum sínum alhliða þjónustu
við viðhald húsa. Fyrirtækið
hefur verið starfrækt um
nokkurra ára skeið en innan
fyrirtækisins starfa iðnmeist-
arar og sveinar með áratuga
reynslu í viðhaldi húsa.
Fyrirtækið er með iðnaðarmenn í öllum helstu iðngreinum. Hvort
sem það eru rafvirkjar, múrarar, málarar, smiðir, píparar eða blikkarar
sem vantar, leysa Aðalfagmenn málið fyrir viðskiptavini. Hvort sem
verkið er innanhúss eða utan, eða hvort eignin er lítill eða stór, geta
Fagmenn séð um málið.
Fagmenn sjá um smíðavinnu, múrvinnu, málun og jafnvel hönnun,
ef því er að skipta. Þarna er öll þjónusta við viðhald húsa á einum stað.
Að sögn Jóhanns Einarssonar, framkvæmdastjóra Aðalfagmanna,
sparar það töluvert fé og tíma viðskiptavina að hafa alla iðnaðarmenn
á sama stað. „Viðskiptavinurinn þarf ekki að leita að iðnaðarmönnum
hér og þar og passa að verkið gangi snurðulaust fyrir sig heldur sjá
Aðalfagmenn um verkið í heild,“ segir Jóhann. „Hjá fyrirtækinu vinna
allir sem ein heild og verkið tekur styttri tíma fyrir vikið.
Við spörum sporin fyrir viðskiptavini með þessum hætti,“ bætir
hann við. Það er gríðarlegur kostnaður og tími sem fer í það að sam-
hæfa störf ólíkra iðnaðarmanna. Með því að skipta við Aðalfagmenn
er það vandamál úr sögunni.
Fagmenn gera viðskiptavinum tilboð þeim að kostnaðarlausu, það
er öll venjuleg tilboð. Þeir gera líka ástandsskoðun á eignum, meta
hversu mikil þörf er á viðgerðum og skila skýrslu eftir óskum við-
skiptavina. Það getur verið allt frá munnlegri skýrslu til ítarlegrar
úttektar.
Hjá Fagmönnum er séð um allt varðandi viðhald húsa, bæði hið
minsta og hið stærsta. Þeir skipta hvort heldur er um vask eða gera
við heilu blokkirnar.