Fréttatíminn - 11.03.2011, Side 46
16 viðhald húsa Helgin 11.-13. mars 2011
Húsfélög
eiga lögveð
í íbúð þess
sem ekki
greiðir hlut-
deild sína í
sameiginleg-
um kostnaði.
Fjármál Húsfélagið getur verið lántakandi
Fjármögnun framkvæmda
Best er og affarasælast að hver eigandi fjármagni sína hlutdeild í sameiginlegum framkvæmdum af
sjálfsdáðum og eftir atvikum með fulltingi síns viðskiptabanka.
H yggist húsfélagið taka lán til að fjármagna fram-kvæmdir verður jafnframt
að geta tillögu þar að lútandi í fund-
arboði. Slík lántaka húsfélagsins
getur verið með ýmsum útfærslum
og blæbrigðum þannig að forsvars-
menn húsfélagsins ættu að kanna
það hjá lánastofnunum hvaða
möguleikar og útfærslur eru í boði.
Húsfélagið sem slíkt getur verið
lántakandi en þá er brýnt að vel sé
að öllu staðið viðvíkjandi ákvarð-
anatökuna. Rétt er að geta þess að
slík fjármögnun er talin afbrigðileg
í þeim skilningi að enginn íbúðar-
eigandi verður knúinn til að taka
lán ef hann vill heldur greiða hlut-
deild sína beint í peningum.
Þegar sameiginleg framkvæmd
er fjármögnuð með lántöku hús-
félagsins til margra ára geta ýmsar
flækjur orðið milli núverandi og
fyrrverandi eiganda og húsfélags-
ins. Húsfélagið myndi alltaf, og
þar með taldir íbúðareigendur á
hverjum tíma, verða ábyrgt gagn-
vart lánastofnuninni. Hins vegar
er það meginregla að endanleg
ábyrgð hvílir á þeim sem voru
eigendur þegar framkvæmdin var
ákveðin og gerð.
Kaupsamningar og önnur gögn
um kaup og sölu, þ.á.m. gögn frá
húsfélaginu, geta leitt til annarrar
niðurstöðu. Þegar kaupandi kaupir
íbúð í húsi sem er nýmálað, þá tek-
ur hann það yfirleitt með í reikn-
inginn og er væntanlega reiðu-
búinn að greiða hærra verð fyrir
íbúð í nýmáluðu húsi en ef húsið
væri allt í niðurníðslu að því leyti.
Almennt má kaupandi búast við
því að búið sé að greiða fyrir þær
framkvæmdir sem lokið er nema
seljandi upplýsi hann um annað og
þeir semji um annað sín á milli.
lögveð
Húsfélög eiga lögveð í íbúð þess
sem ekki greiðir hlutdeild sína í
sameiginlegum kostnaði. Lögveðið
stendur í eitt ár. Upphafstími þess
miðist við gjalddaga greiðslna og
uppgjör á verkinu í þröngum skiln-
ingi. Lögveðið er dýrmætur réttur
sem gæta verður að og passa upp
á að glatist ekki. Það er sérstakur
réttur sem heyrir til undantekn-
inga og skýtur öðrum veðhöfum
ref fyrir rass. Það sést ekki á veð-
bókarvottorði og getur rýrt og
raskað hagsmunum bæði veðhafa
og skuldheimtumanna. Þess vegna
eru því settar þröngar skorður.
Best að hver eigandi fjármagni
sína hlutdeild
Best er og affarasælast að hver
eigandi fjármagni sína hlutdeild í
sameiginlegum framkvæmdum af
sjálfsdáðum og eftir atvikum með
fulltingi síns viðskiptabanka. Með
því verða línur einfaldar og réttar-
staða eigenda og húsfélagsins skýr
og án eftirmála. Hins vegar er það
sjálfsagt og eðlilegt að húsfélag
sem slíkt fái fyrirgreiðslu banka
til að fjármagna framkvæmdina á
sjálfum framkvæmdatímanum með
yfirdráttarheimild eða á annan
hátt. Þegar framkvæmdinni er lok-
ið og öll kurl til grafar komin er af-
farasælast að hver eigandi geri upp
við húsfélagið sem svo gerir upp
við verktakann og bankann ef því
er að skipta. Með því lyki hlutverki
húsfélagsins í fjármögnuninni og
rekstur þess og fjármál verða með
því einfaldari og öruggari en ella.
ábyrgðin út á við
Fram hjá því verður ekki litið að
ábyrgð eigenda í fjöleignarhúsi
út á við, gagnvart þriðja aðila, t.d.
banka og verktaka, er einn fyrir
alla og allir fyrir einn. Þannig get-
ur kröfuhafi, að vissum skilyrðum
uppfylltum, gengið að hverjum og
einum eiganda ef vanskil verða af
hálfu húsfélags og eða einhvers
eiganda. Það getur því skiljanlega
staðið skilvísum eiganda, sem ekki
má vamm sitt vita, fyrir svefni að
vera til margra ára spyrtur saman
í fjárhagslega skuldbindingu með
meira og minna óskilvísum sam-
eigendum og dragast nauðugur
inn í deilur í kjölfar eigendaskipta.
Hvort tveggja getur leitt til leiðinda
og fjárútláta, í bráð a.m.k.
Þegar sameiginleg fram-
kvæmd er fjármögnuð
með lántöku húsfélagsins
til margra ára
geta ýmsar flækjur
orðið milli núverandi
og fyrrverandi
eiganda og
húsfélagsins.
VSB verkfræðistofa býður fjölbreytta þjónustu fyrir
viðskiptavini af öllum tegundum og stærðum.
Yfir 20 ára samfelld þjónusta á sviði verkfræðiráðgjafar.
Þjónustunni er skipt í eftirfarandi flokka:
VSB Verkfræðistofa er fjölhæf verkfræðistofa sem sinnir verkfræðilegri
ráðgjöf. Stofan hefur starfað í Hafnarfirði síðan árið 1987.
VSB veitir viðskiptavinum verkfræðilega ráðgjöf með lausnum
sem einkennast af hagkvæmni, fagmennsku og áreiðanleika.
Eftirfarandi fagsvið eru starfrækt og lýsa fjölbreyttri þjónustu VSB.
Dæmi um verkefni má finna á heimasíðu VSB.
- Burðarvirki
- Lagna- og loftræsikerfi
- Rafkerfi
- Byggðatækni
- Framkvæmdaráðgjöf
- Verkefnastjórn
- Fasteignaþjónusta
- Mælingar
VSB er aðili að Félagi ráðgjafarverkfræðinga (FRV).
- Verkfræðihönnun
- Framkvæmdaráðgjöf
- Verkefnastjórnun
- Fasteignaþjónusta
- Sérlausnir
Bæjarhrauni 20
Sími: 585 8600
Netfang: vsb@vsb.is
220 Hafnarfjörður
Fax: 585 8610
Heimasíða: www.vsb.is
Framkvæmdastjóri: Stefán Veturliðason
Orkusparnaður fyrir köld
svæði. 4 kW fyrir 1 kW af
rafmagni.
Verð frá 189.000 kr
www.ishusid.is
S: 566 6000
Smiðjuvegi 70
200 Kópavogi
VARMADÆLUR
4 fyrir 1
Te
ik
ni
ng
/B
ri
an
P
ilk
in
gt
on