Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 46
16 viðhald húsa Helgin 11.-13. mars 2011 Húsfélög eiga lögveð í íbúð þess sem ekki greiðir hlut- deild sína í sameiginleg- um kostnaði.  Fjármál Húsfélagið getur verið lántakandi Fjármögnun framkvæmda Best er og affarasælast að hver eigandi fjármagni sína hlutdeild í sameiginlegum framkvæmdum af sjálfsdáðum og eftir atvikum með fulltingi síns viðskiptabanka. H yggist húsfélagið taka lán til að fjármagna fram-kvæmdir verður jafnframt að geta tillögu þar að lútandi í fund- arboði. Slík lántaka húsfélagsins getur verið með ýmsum útfærslum og blæbrigðum þannig að forsvars- menn húsfélagsins ættu að kanna það hjá lánastofnunum hvaða möguleikar og útfærslur eru í boði. Húsfélagið sem slíkt getur verið lántakandi en þá er brýnt að vel sé að öllu staðið viðvíkjandi ákvarð- anatökuna. Rétt er að geta þess að slík fjármögnun er talin afbrigðileg í þeim skilningi að enginn íbúðar- eigandi verður knúinn til að taka lán ef hann vill heldur greiða hlut- deild sína beint í peningum. Þegar sameiginleg framkvæmd er fjármögnuð með lántöku hús- félagsins til margra ára geta ýmsar flækjur orðið milli núverandi og fyrrverandi eiganda og húsfélags- ins. Húsfélagið myndi alltaf, og þar með taldir íbúðareigendur á hverjum tíma, verða ábyrgt gagn- vart lánastofnuninni. Hins vegar er það meginregla að endanleg ábyrgð hvílir á þeim sem voru eigendur þegar framkvæmdin var ákveðin og gerð. Kaupsamningar og önnur gögn um kaup og sölu, þ.á.m. gögn frá húsfélaginu, geta leitt til annarrar niðurstöðu. Þegar kaupandi kaupir íbúð í húsi sem er nýmálað, þá tek- ur hann það yfirleitt með í reikn- inginn og er væntanlega reiðu- búinn að greiða hærra verð fyrir íbúð í nýmáluðu húsi en ef húsið væri allt í niðurníðslu að því leyti. Almennt má kaupandi búast við því að búið sé að greiða fyrir þær framkvæmdir sem lokið er nema seljandi upplýsi hann um annað og þeir semji um annað sín á milli. lögveð Húsfélög eiga lögveð í íbúð þess sem ekki greiðir hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði. Lögveðið stendur í eitt ár. Upphafstími þess miðist við gjalddaga greiðslna og uppgjör á verkinu í þröngum skiln- ingi. Lögveðið er dýrmætur réttur sem gæta verður að og passa upp á að glatist ekki. Það er sérstakur réttur sem heyrir til undantekn- inga og skýtur öðrum veðhöfum ref fyrir rass. Það sést ekki á veð- bókarvottorði og getur rýrt og raskað hagsmunum bæði veðhafa og skuldheimtumanna. Þess vegna eru því settar þröngar skorður. Best að hver eigandi fjármagni sína hlutdeild Best er og affarasælast að hver eigandi fjármagni sína hlutdeild í sameiginlegum framkvæmdum af sjálfsdáðum og eftir atvikum með fulltingi síns viðskiptabanka. Með því verða línur einfaldar og réttar- staða eigenda og húsfélagsins skýr og án eftirmála. Hins vegar er það sjálfsagt og eðlilegt að húsfélag sem slíkt fái fyrirgreiðslu banka til að fjármagna framkvæmdina á sjálfum framkvæmdatímanum með yfirdráttarheimild eða á annan hátt. Þegar framkvæmdinni er lok- ið og öll kurl til grafar komin er af- farasælast að hver eigandi geri upp við húsfélagið sem svo gerir upp við verktakann og bankann ef því er að skipta. Með því lyki hlutverki húsfélagsins í fjármögnuninni og rekstur þess og fjármál verða með því einfaldari og öruggari en ella. ábyrgðin út á við Fram hjá því verður ekki litið að ábyrgð eigenda í fjöleignarhúsi út á við, gagnvart þriðja aðila, t.d. banka og verktaka, er einn fyrir alla og allir fyrir einn. Þannig get- ur kröfuhafi, að vissum skilyrðum uppfylltum, gengið að hverjum og einum eiganda ef vanskil verða af hálfu húsfélags og eða einhvers eiganda. Það getur því skiljanlega staðið skilvísum eiganda, sem ekki má vamm sitt vita, fyrir svefni að vera til margra ára spyrtur saman í fjárhagslega skuldbindingu með meira og minna óskilvísum sam- eigendum og dragast nauðugur inn í deilur í kjölfar eigendaskipta. Hvort tveggja getur leitt til leiðinda og fjárútláta, í bráð a.m.k. Þegar sameiginleg fram- kvæmd er fjármögnuð með lántöku húsfélagsins til margra ára geta ýmsar flækjur orðið milli núverandi og fyrrverandi eiganda og húsfélagsins. VSB verkfræðistofa býður fjölbreytta þjónustu fyrir viðskiptavini af öllum tegundum og stærðum. Yfir 20 ára samfelld þjónusta á sviði verkfræðiráðgjafar. Þjónustunni er skipt í eftirfarandi flokka: VSB Verkfræðistofa er fjölhæf verkfræðistofa sem sinnir verkfræðilegri ráðgjöf. Stofan hefur starfað í Hafnarfirði síðan árið 1987. VSB veitir viðskiptavinum verkfræðilega ráðgjöf með lausnum sem einkennast af hagkvæmni, fagmennsku og áreiðanleika. Eftirfarandi fagsvið eru starfrækt og lýsa fjölbreyttri þjónustu VSB. Dæmi um verkefni má finna á heimasíðu VSB. - Burðarvirki - Lagna- og loftræsikerfi - Rafkerfi - Byggðatækni - Framkvæmdaráðgjöf - Verkefnastjórn - Fasteignaþjónusta - Mælingar VSB er aðili að Félagi ráðgjafarverkfræðinga (FRV). - Verkfræðihönnun - Framkvæmdaráðgjöf - Verkefnastjórnun - Fasteignaþjónusta - Sérlausnir Bæjarhrauni 20 Sími: 585 8600 Netfang: vsb@vsb.is 220 Hafnarfjörður Fax: 585 8610 Heimasíða: www.vsb.is Framkvæmdastjóri: Stefán Veturliðason Orkusparnaður fyrir köld svæði. 4 kW fyrir 1 kW af rafmagni. Verð frá 189.000 kr www.ishusid.is S: 566 6000 Smiðjuvegi 70 200 Kópavogi VARMADÆLUR 4 fyrir 1 Te ik ni ng /B ri an P ilk in gt on
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.