Fréttatíminn - 11.03.2011, Page 58
Menn gera því skóna að skáldkonan
Beate Grimsrud, sem fæddist í Noregi
1963 en hefur búið í Svíþjóð frá tvítugu
og skrifar á sænsku, fái verðlaun Norður-
landaráðs í ár fyrir skáldsögu sína En
Dåre fri en bæði Svíar og Norðmenn til-
nefna hana til verðlaunanna. Hún hefur
áður verið tilnefnd en Beate starfar jöfn-
um höndum sem leikstjóri og rithöfund-
ur, skrifar bæði leiktexta, barnabækur
og skáldsögur fyrir fullorðna lesendur.
Réttur að einni sögu hennar hefur verið
keyptur hingað en ekki hefur neitt
komið út eftir hana í þýðingum hér á
landi. Þá minnast kunnugir þess ekki
að nokkurt leikverka hennar hafi verið
flutt hér. -pbb
Tvítilnefnd
Bókardómur mannlíf við Sund Þorgrímur geStSSon
Þ egar Þorgrímur Gestsson tók sam-an nokkur viðtöl við föðurbræður sína fyrir nær tveimur áratugum
vissi hann varla til hvers. Föðurfólkið
hans hafði sest að á hinu fornfræga höfuð-
bóli Laugarnesi í miðju fyrra stríði og
örlögin höguðu því svo að fólkið hans var
á árunum fram að stríði leiðtogar í hreyf-
ingu þeirra sem náðu erfðafestulandi á
skikum í landi Reykjavíkur frá Rauðará
yfir í land Nauthóls við Kópavog.
Þorgrímur smíðaði bók um þessa
sögu alla, sögu Laugarness að fornu til
þess tíma að jörðin var seld úr eigu land-
stjórnar, konungs, til félags borgara og
tómthúsmanna í Reykjavík skömmu eftir
miðja nítjándu öld, og kom hún fyrst út
1998. Nú er hún prentuð öðru sinni, ekki
í stóru upplagi og ættu allir þeir sem
þekkja vilja sögu Reykjavíkur að tryggja
sér eitt eintak af þeim sjö hundruð sem á
prent fóru.
Mannlíf við Sund – býlið, byggðin og
borgin, Laugarnes og Reykjavík – rekur
merkilega sögu. Hér er margt dregið
saman: fyrst hvernig veldi ættanna réðu
frá fornu fari öllu hér á nesinu og eyj-
unum og hvernig þessi byggð, sem hér
var af litlum býlum og kotum, var með
allt öðru sniði allt þar til Reykjarvík, eins
og hún var kölluð upphaflega, náði yfir-
höndinni, fyrst og fremst sökum þess
hvað stofan í Laugarnesi var illa byggð,
svo illa að frekar vildi Geir biskup koma
sér fyrir í litla húsinu við Aðalstræti sem
nú hýsir Kraum, en að byggja upp stofuna
í Laugarnesi. Það tók svo búrana í Reykja-
vík nokkra áratugi að rífa niður stofuna
í Laugarnesi, spýtu fyrir spýtu og stein
fyrir stein.
Þorgrímur rekur síðan höfuðdrættina
í því hvernig Reykjavík þenst út allt upp
að Elliðaám og út fyrir Mela. Grunnurinn
að þeirri útþenslu er áratuga löng vesöld
bæjarins og ósk þeirra sem fá land til
ræktunar og ábúðar uppi á heiðarlönd-
unum og byggja sér þar heilsárshús,
vitandi sem er að betra er að halda örfáar
rollur og eina kú utan við bæinn og sækja
þangað daglaunavinnu en að reyna að
fá húsnæði í bænum. Bærinn óx í þessa
átt vegna lóðaskorts: Heimarnir, Laug-
arásvegurinn, byggðin við Bústaði og í
Blesugrófinni. Menn byggðu á melum og
börðum og ræktuðu þar túnskika í túndr-
unni því bærinn bauð ekki upp á húsnæði
og örugga afkomu allt frá fyrra stríði og
fram yfir það seinna þegar braggarnir
björguðu húsnæðiseklunni. Forystumenn
Reykjavíkur skorti almennileg úrræði í
húsnæðismálum langt fram eftir síðustu
öld. Það var raunar verkalýðshreyfingin
sem bjargaði þeim frá skömminni.
Og hverjir eru það sem leiða þessa
byggðaþróun: fátækir menn með örbirgð
og andann einan að vopni, útlending-
ar, sigldir menn, konur. Landnemar í
Laugarnessögu Þorgríms eru raunar ekki
margir og víst vildi maður eftir þessa
sögu vita meira. Við fengum fyrir bragðið
Grasagarðinn, Laugarnar, Strætó, glæsi-
legar byggingar fyrir geðsjúka og lima-
sjúka, golfvellina fyrstu, íþróttasvæðin,
iðnaðarsvæðin þegar höfnin kom og
atvinnusvæðin varð að finna rými fyrir frá
Kirkjusandi að Vatnagörðum, skeiðvelli
og hesthús, gróðrarstöðvar, svínabú,
hænsnabú og hitaveitu. Það er ekki lítið.
Allt spratt þetta úr landnáminu frá Rauð-
ará að Elliðaám.
Við misstum líka margt: Saga uppbygg-
ingar rifjar upp sögu stórhýsanna sem
við létum rífa eða brenna fyrir augum
okkar: Glaumbærinn í Viðey, Holds-
veikraspítalinn sem Bretarnir brenndu
niður, gasstöðin sem var brotin niður
fyrir lögreglustöðina við Hlemm, Kveld-
úlfsskálinn og byggingar SS fyrir hinar
skelfilegu turnbyggingar við Skúlagötu.
Við megum hrósa happi að Höfði fékk að
standa. Brátt endurreisa menn salthús
Th. Thorsteinsson frá Kirkjusandi fyrir
neðan gamla vigtarhúsið sem nú hýsir
Hamborgarabúlluna. Er nokkur bygging
eftir í Reykjavík sem Geir Zoëga reisti
utan húsin á Geirstúninu sem hann gaf
dætrum sínum? Sjóbúðina tóku menn nið-
ur spýtu fyrir spýtu og keyrðu upp í Árbæ
en þau tré fóru í önnur hús og verður hún
líkast til ekki reist úr þessu öðru sinni.
Íslendingar eru barbarar og bera, þrátt
fyrir allt sögugasprið og montið um sér-
stöðu sína, ekkert skynbragð á söguleg
verðmæti í húsum og mannvirkjum: Saga
Þorgríms er skelfilegur áfellisdómur um
menningarleysið sem hrjáir okkur.
En bókin er góð.
mannlíf við
Sund – býlið,
byggðin og
borgin, laugar-
nes og reykja-
vík.
Þorgrímur Gestsson
400 bls. 2010
38 bækur Helgin 11.-13. mars 2011
HryllingSSkáldið ÞúSund Síðna SkáldSaga
Kiljuútgáfan af Ég
man þig eftir Yrsu
Sigurðardóttur stekkur í
efsta sætið á heildarlista
Eymundsson. Kiljur setja
mikinn svip á listann
þessa vikuna, raða sér í
fimm efstu sætin.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Nú er tekið að seytla út hvað verður í
boði á leiksviðum stóru leikhúsanna
á komandi hausti. Hér syðra verður
talvert af upphituðum réttum frá
þessum vetri, raunar langt síðan leik-
húsin hafa haldið jafn mikinn forða.
Faust mun koma aftur á svið og Elsku
barn, farsinn sömuleiðis og eitthvað
af þeim verkefnum sem eru óséð.
Hin nýja sýning haustsins á stóra
sviðinu verður leikgerð af vinsælli
barnasögu – fyrsta hluta hennar,
Galdrakarlinum í Oz – sem var síðar
snúið í kvikmynd með söngvum.
Reyndar lýsti gagnrýnandinn
Billington sviðsetningu hennar í
London á dögunum sem leikriti með
söngvum.
Í Þjóðleikhúsinu má gera ráð
fyrir djúkbox-leikverki Ólafs Hauks
eftir skáldsögu Ólafs Hauks sem
frumsýnd verður í vor með völdum
dægurlögum frá sjöunda áratugnum.
Þá munu Hænuungar Braga snúa
aftur. Nýtt verður á fjölunum leikrit
sem síðar varð að skáldsögu, hinni
rómuðu Hreinsun Sofi Oksanen.
Og svo kemur fjórða leikgerðin af
Heimsljósi Laxness á svið og er það
þriðja leikgerð af skáldsögu eftir
hann sem Þjóðleikhúsið setur upp á
einu og hálfu ári. Lárus Pálsson vann
á sínum tíma leikgerð úr köflum
sögunnar fyrir útvarp, Sveinn Einars-
son leikgerði Hús skáldsins snemma
á níunda áratugnum og fáum árum
síðar opnaði Borgarleikhúsið með
Ljósi heimsins og Höll sumarlandsins
í leikgerð Kjartans Ragnarssonar. Nú
ætlar Kjartan að gera eina sýningu
úr öllum sögunum fjórum fyrir
Þjóðleikhúsið en ýmsir sem til þekkja
trúa að úr verði stórsýning í tveimur
hlutum. -pbb
Fleiri leiknar skáldsögur á sviðin
King tekur á Kennedy Reykjarvíkin og nágrannar
Þorgrímur Gestsson rekur í bók sinni höfuðdrættina í því hvernig Reykjavík þenst út allt upp
að Elliðaám og út fyrir Mela. Saga hans er skelfilegur áfellisdómur um menningarleysið sem
hrjáir okkur.
Saga upp-
byggingar
rifjar upp
sögu stórhýs-
anna sem við
létum rífa eða
brenna fyrir
augum okkar:
Glaumbærinn
í Viðey,
Holdsveikra-
spítalinn sem
Bretarnir
brenndu nið-
ur, gasstöðin
sem var
brotin niður
fyrir lög-
reglustöðina
við Hlemm,
Kveldúlfs-
skálinn og
byggingar SS
fyrir hinar
skelfilegu
turnbygg-
ingar við
Skúlagötu.
kiljur í
efStu Sætum
Þorgrímur Gestsson rithöfundur.
Heitust frétta á vefsíðum
síðustu sólarhringa er
fréttatilkynning um næstu
sögu hryllingsskáldsins
mikla, Stephens King, en
á miðvikudag var tilkynnt
að í vændum væri útgáfa
nýrrar sögu eftir kappann.
11/22/63 kallast hún og
vísar til þess dags þegar
John F. Kennedy var
myrtur í Dallas í Texas.
Saga Kings er samin í anda
margra fantasíusagna:
Hetja sögunnar fer aftur í
tímann í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir morðið á
Kennedy. Þar leggst King
á sömu slóðir og margir
aðrir höfundar sem kunnir
eru af sams konar sögum
og líka í slóð þeirra sem
hafa gert sér mat úr þeim
atvikum, uppdiktuðum,
lognum eða í anda sam-
særiskenninga, sem leika
sér með morðið á Kennedy
í skáldsögum. James
Ellroy nýtti atburðinn í
American Tabloid, fyrsta
hlutann af þríleik, og þá
eru ekki allir taldir sem
hafa gert sér það að leik
að nota morðið alræmda í
skáldsagnagerð.
Og við þetta tækifæri
rifja menn upp sögur sem
gera sér mat úr breytum
í sögunni: Robert Harris
skrifaði Föðurland eins
og Þjóðverjar hefðu unnið
stríð og þaggað niður
útrýmingu gyðinga og
allrar andstöðu í Þýska-
landi; Philip Roth breytti
gangi í sögu Bandaríkjanna
á svipaðan hátt í The Plot
against America og nýlega
kom út stór ópus, Then
Everything Changed, eftir
Jeff Greenfield, kunnan
fréttamann sem leikur sér
með afbrigði af nýliðinni
sögu.
Úgefendur Kings vestan
hafs og austan eru í sjö-
unda himni með þessa
þúsund síðna skáldsögu,
og þá einkum að hún er
spennandi lestrarefni og
gædd ríkulegri vitneskju
um bandarískt þjóðlíf
á sögutímanum. Bókin
kemur í verslanir í haust og
ætti salan að ná hámarki
hinn 22. 11.11.
Beate Grimsrud Veðjað er á að hún
fái bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs.Ljósmynd/Henrik Lindal
Sofi Oksanen
Leikrit hennar,
Hreinsun, fer
á svið í Þjóð-
leikhúsinu í
haust.
Stephen King lætur hetju sögunnar fara aftur í tímann
til að freista þess að koma í veg fyrir morðið á John F.
Kennedy. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images
Kauptún 3 - Garðabær - s: 533 22 00 - www.art2b.is
Gallery Art 2b
Rýmingarsala
á málverkum