Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 20

Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 20
sínum og veldi. Hún benti Dolores með skipandi hreyfingu að fylgjast með hinum innfæddu. Svertingjarnir umkringdu stúlk- una, sem skildi ekki orð af samtal- inu og Bruce kallaði til hennar með bassarödd sinni: „Vertu ekki hrædd, vina mín. Eg hef fengið loforð um, að þér verði ekkert mein gert, og vonandi kom- umst við héðan áður en langt um líður. Vertu bara hughraust, elskan mín!“ Svar hennar sveif á vængjum hins heita sólþrungna lofts um leið og hún var leidd á brott. „Eg er ekki hrædd, Bruce.“ Með miklu fasi sneri Bruce sér að hinni kynlegu hvítu konu og sagði ákafur: „Skiljið þér það, drottning, að ef eitt hár er skert á höfði þessarar stúlku, munu guðir Lava-He senda eldingar reiði sinnar yfir yður og þér munuð þola ógurlegan dauðdaga — og allt fólk yðar.“ Hin þróttmikla rödd hans og á- hrifamikli persónuleiki heillaði hana meira en hræddi. Hinsvegar varð' hún óttaslegin af þeim orðum, sem hann mælti, því að hún var al- in upp í hjátrú frá blautu bams- beini og þekkti lítið aðra guði, en steinguði, sem voru dýrkaðir af ó- blandinni lotningu og fávíslegum ótta. í höfgum augum hennar brá fyr- ir ótta og fingur hennar krepptust um eitthvað, sem var hulið í kjól- fellingunum. Svo sagði hún, og það mátti greina ofurlitla ræmu í rödd- inni: „Eg hef lofað, og Vao drottning á Lava-He svíkur ekki loforð sín!“ Hún fór allt í einu að brosa — þessu undarlega töfrandi brosi, sem virtist vera í ósamræmi við hið ó- tamda, vilta eðli hennar, — og hún rétti fram höndina. „Komdu með mér, ókunni mað- ur“, sagði hún mildri röddu, „og segðu mér frá því, sem gerist hinu- megin við mikla hafið.“ Bruce hikaði andartak. Hann skildi í hvílíkri hættu hann og stúlkan, sem hann elskaði, voru stödd á þessari dularfullu eyju, sem sennilega var byggð mannæt- um. En brátt varð hann þess fullvís, að ekki var um margar leiðir að velja og hann tók í hönd hennar og þau leiddust upp úr fjörunni í gegn- um þungbúið skógarskrúðið í átt- ina að höll drottningarinnar. REMUR dögum síðar, lá Vao endilöng uppi í fjallshlíðinni og hafði útsýn yfir hafið. Hún horfði rannsakandi augnaráði á manninn, sem sat þar skammt frá henni. Hann var hvítur eins og hún. Hann hafði sama litarhátt og mannslíkanið á fílabeinskrossinum, sem hékk á brjósti hennar innan undir kjóln- um. Það hafði hangið þar síðan hún mundi eftir sér. Og það hafði orðið orsök í spádómnum, sem hljóðaði þannig: „Þú ert drottning og þú átt að 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.