Heimilisritið - 01.03.1943, Qupperneq 26

Heimilisritið - 01.03.1943, Qupperneq 26
En svo fekk afbrýðisemin yfir- höndina og grimmdin glóði í myrku augnaráði hennar. „Þú vilt berjast fyrir hana —“ sagði hún hægt — „deyja fyrir hana!“ „Eg vil berjast fyrir hana. — Já. Hvort eg á að deyja fyrir hana, er á valdi örlaganna!" Rödd hans var köld en örugg. Hann var eins og tígulegt ljón meðal hinna innfæddu. Hár og þrekvaxinn stóð hann fyrir framan stúlkuna, ljósið frá blysunum glitraði í augum hans svo að brún augu hans urðu eins og tveir gullmolar. Ofsaleg þrá heltók hjarta Vao; einbeitt mótstaða gegn því að missa þennan mann, vitfirringsleg trú á því valdi sem hún hefði yfir hon- um — ef þessi stúlka væri ekki til fyrirstöðu. Lítið bros lék um varir hennar, þegar hún gekk ofan úr hásætinu til hans. „Örlög þessarar stúlku eru í þín- um höndum“, sagði hún með hægð og bætti svo við, svo lágt að varla heyrðist: „Taktu við veldissprota Lava-He — og henni verður gefið líf. Hafn- x aðu honum — og hún mun deyja!“ Hún horfði fast í augu hans með samanbitnar varir, miskunnarlaus og grimmúðleg: „Hvort á það heldur að verða, Bruce Gregory? Líf — eða dauði?“ Bruce hikaði. „Það myndi aldrei verða þér til hamingju, Vao“. „Guðir Lava-He hafa ákveðið, að þú skulir stjórna", sagði hún í ákafa. „Að þverskallast við boðum guðanna þýðir það, að annað hvort ykkar verður að deyja. Eg hef á- kveðið að það skuli verða stúlkan“. Hún þagnaði og beið. Þessari drambsömu drottningu og siðlausu konu, fannst eins og blóðið væri hætt að renna um æðar sér. Bak við hinn raunverulega ótta sinn við guðina barðist ástin til þessa manns, ásamt þeirri afbrýðisemi sem þröngv aði henni til þess að kvelja hann, fremur en að láta aðra stúlku fá að njóta hans. Fyrir aftan hann hafði Make-si-ia gripið Dolores áður en varði, en sem betur fór leið yfir hana um leið. Bruce starði á Vao. Á þessu augna- bliki logaði óslökkvandi hatur í augum hans og afmyndaði fagur- myndaðan munn hans. Svo sagði hann með hægð: „Fyrst hér er ekki nema um tvennt að velja, þá á ég víst ekki annars úrkosti en að taka við völdum á Lava-He,“ sagði hann kuldalega. „En minnstu þess ávallt — ást hjarta míns á önnur stúlka um alla eilífð. Þú færð aðeins ytri skel þess manns, sem á aðeins þá einu von, að sá dagur renni upp, þegar þú hatar hann jafnmikið og hann hatar þig“. Orð hans voru hræðileg, þau komu úr djúpi sálar hans. Á þessari stund var hann hörkulegur, miskunn arlausari en hún, og orð hans brenndu hana eins og glóandi jám 24 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.