Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 32

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 32
sjálfri. Hvernig var það nú aftur? Þér komuð frá Kentucky. Ætluðuð þér ekki að vera tvífari Cori Britten í kvikmyndum?" „Jú“, svaraði Jolette“, ef það er kallað að vera tvífari filmdísar að leika hlutverk hennar í fjarlægð, detta af hestbaki, leika tennis og það sem er hættulegt fyrir hana, eða hún kann ekki. Eg vissi að þetta var ekki vegurinn til frama, heldur hið gagnstæða, og þó tókst þeim sem réði mig, að fá mig með fagurgala, til þess að langa hingað til Hollywood Hann sagði að ég væri eins og Cori, bara fallegri og yngri. Og ef hún yrði veik myndi ég verða látin leika hennar hlutverk og verða fræg. En þegar ég kom og Cori Britten sá mig, sagði hún að ég væri óhæf og neitaði að leika með mér.“ „Já, hún er svo afbrýðisöm. En hvað þetta er líkt henni!“ sagði Downing. „Það er mjög líklegt! Eg fékk vikukaup og átti hvorki peninga né hugrekki til þess að fara í mál við félagið. Þeir veittu mér líka góðar vonir um það, að ég fengi samning og að þeir skyldu láta mig fá eitt- hvert smáhlutverk til þess, að byrja með, en það voru allt svik. í vikunni sem leið reyndi ég að fá hlutverk í nýju kvikmyndinni, sem Irma Rim- aldi hefur samið. En þeir sögðu að þótt hún væri nýkomin frá Monte Carlo, þá myndu leikarar ekki verða ráðnir straks. Eg fekk ekki að tala við framkvæmdastjórann. Eg brast í grát, af því ég var að verða pen- inga- og matarlaus. Það var kjána- legt. Þá komuð þér og spurðuð mig, hvers vegna ég væri að gráta. Eg þekkti yður af myndum úr blöðum. Þér hafið verið mjög vingjarnlegur við mig.“ „Eg kannast við framhaldið," sagði Downing og brosti fleðulega. „En endirinn er ekki kominn og það er hann sem ég hef áhuga á.“ „Hvað eigið þér við?“ spurði Jo- lette. „O, þér skiljið mig. Er það ekki?- Þér eruð engu síður skynug, en fal- leg. Og það hefur sitt að þýða.“ „Eg er þó hvorki nógu falleg né skynug til þess að fá vinnu í Holly- wood,“ andvarpaði Jolette. „Sleppum nú þessu hjali um kvik- myndir," sagði Downing. „Þér vitið að konan mín er komin til Ameríku, þótt hún dvelji víst í New York enn- þá. Ætli að það sé ekki þessi mikli Englendingur, sem var samferða henni, sem tefur fyrir henni þar. Það getur verið að ég ráði svolitlu um hlutverkin í kvikmyndinni henn- ar, en það þýðir ekki að tala um það fyrr en hún kemur.“ „Aha,“ sagði Jolette. Hún vissi ekki hvað hún gat sagt. „Eg er ekkert afbrýðissamur út í Sir Jimming Belden, vinkona mín,“ hélt Downing áfram. „Eg vildi bara að Irma gæfi mér skilnaðarsök á hendur sér, þá myndi ég ekki hika við að nota mér það. Irma er skáld- kona, sem elskar titla. Nú eru þau í New York og Irma kemur ekki hingað fyrr en henni finnst tími til 30 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.