Heimilisritið - 01.03.1943, Page 34

Heimilisritið - 01.03.1943, Page 34
við hana. Hún lærði að beita öllum brögðum til þess að hún yrði ekki troðin undir í lífinu. Oft hafði hún verið hætt komin þetta síðasta ár, en aldrei eins og nú. Hún reyndi af alefli að finna eitt- hvert hugsanlegt ráð. Þessi and- styggilegi náungi var ákveðinn í því að fá svar undir eins — ekki ein- ungis svar, — nei, miklu meira! Hún vissi af reynslu, að veröldin, og eink- um Hollywood átti lítið af hjálp- semi. Og henni var líka kunnugt um að þúsundir ungra fallegra stúlkna myndu leggja allt í sölumar til þess að mega njóta þeirrar aðstoðar, sem hún gat átt í vændum frá þessum áhrifamikla manni. Þær myndu segja sem sve: „Eg var neydd til þess. Hvað átti ég líka annað að gera? Þetta er leikur, sem gefur hagnað!“ Hún varð að reyna að herða sig og kæra sig kollótta um þær dýru fórnir, sem hún þyrfti að veita til þess að ná hinu torsótta takmarki sínu. Hún gat losað sig aftur,' þegar hún á annað borð væri farin að leika í kvikmyndum, og farið væri að veita henni athygli. „Jú, eg skil, hvað þér eigið við,“ sagði hún við Downing, sem starði á hana rauðeygur. „Skynsöm stúlka," sagði hann hlæjandi. „Eg vissi það. Eigum við þá að ákveða viðskiptin?" Jolette reyndi að brosa. Downing spratt á fætur, svo snöggt, að stóll- inn valt um koll með miklum há- vaða. Hún stóð einnig upp. Heilinn bauð henni að leika leikinn á enda. En er hún fann að Downing reyndi að faðma hana að sér, þoldi hún ekki mátið. Hún hrópaði upp yfir sig, hrinnti manninum frá sér og hopaði skref aftur. „Nei — nei! Eg get það ekki“, sagði hún með and- köfum. „Getur ekki? Stríddu mér ekki, gerðu ekki gys að mér! Nú skaltu! skilurðu það?“ sagði hann hás. Hún hljóp frá honum og hann á eftir. Hún kom út í blómagarð, en þar náði Downing henni og dró hana inn í svefnherbergi. Eins og í draumi sá hún, að það var mjög fallegt. Ljósið var dauft og rauðleitt. Rúmið var útskorið og uppbúið. Á því lá morgunsloppur og á gólfinu voru inniskór. Allt hlaut að vera fyrir- fram undirbúið. Japaninn var auð- vitað meðsekur. Hún gat engrar hjálpar vænst. „Eg hata yður!“ sagði hún grát- andi. „Þér eruð andstýggilegur! Eg vildi heldur deyja úr hungri, en að láta yður snerta mig. Sleppið mér, annars æpi ég. Eg... Hann hló. Hún reyndi allt hvað aftók að losa sig úr greipum hans. Loks tókst henni það og reif kjól- inn sinn um leið. En hann náði henni straks aftur og hélt henni svo^ fast að hún hljóðaði af sársauka. „Æptu eins og þú vilt. Það heyrir enginn til þín, nema Ito, og honum stendur alveg á sama. Þó ég ætti að detta dauður' niður niður, þá sleppi ég þér ekki núna.“ Dauður! Orðið flaug um hug henn- 32 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.