Heimilisritið - 01.03.1943, Qupperneq 39
Alltaf fram á leið
Eftir F. B. Davis, jr.
forseta Bandaríska gúmmífélagsins.
EGAR ég var lítill drengur, sagði
faðir minn mér stundum sög-
ur af ferðalögum og ævintýrum í
fjarstæðukenndum framtíðarfarar-
tækjum. Ég sagði þá einu sinni:
„Pabbi! Heldurðu að menn ferð-
ist nokkurntíma í raun og veru
neðansjávar? Heldurðu að menn
fljúgi einhverntíma?“
„Já, sonur minn“, sagði hann,
„það munu þeir gera. Þú færð að
sjá neðansjávarskip. Þú munt lifa
það að sjá flugvélaflokka skyggja
himininn".
Svo sagði hann mér frá þvi, að
þegar hann hefði verið drengur,
hefði hann lesið við grútartýrur, og
hversu erfitt það hefði orðið fyrir
sig að trúa þvi á þeim tímum, ef
sér hefði verið sagt, að örfáum ár-
um síðar gæti hann lesið við raf-
magnsljós.
Hann sagði mér frá ýmsu öðru,
sem framkvæmt hefði vérið um hans
daga — símanum, grammófóninum,
járnbrautunum, skýjakljúfunum,
sæsímanum yfir Atlanzhafið, upp
götvun x-geislanna og svo fram-
vegis.
„Það er búið að finna hér um bil
allt upp núna, er það ekki?“ sagði
ég.
„Þetta segja allar kynslóðir, vinur
minn“, sagði hann brosandi og klapp-
aði á kollinn á mér. „Þegar afi minn
var ungur, skýrði einkaleyfisskrif-
stofa ríkisins þinginu frá því, að
svo virtist sem sá tími nálgaðist, er
framfarir mannkynsins hefðu náð
hámarki sínu. En vertu alveg
óhræddur drengur minn. Sérhver ný
uppgötvun leiðir alltaf af sér tvær
aðrar. Verkefnin í heiminum þrjóta
aldrei“.
Síðan hefur bifreiðin breytt fjar-
lægðarhugtökum landsins svo, að
hinir ýmsu landshlutar eru nú, sem
hreppar í sömu sýslu áður. Flugvél-
in spannar úthöfin, kvikmyndirnar
flytja skemmtun og fræðslu til yztu
annesja menningarinnar. Loftskeyt-
in tengja saman andhverf lönd
hnattarins. Útvarpið kastar varp-
ljósi á veröldina í okkar eigin heim-
kynnum. Hið nýja læknislyf, sul-
fanilamid, hefur bjargað milljónum
mannslífa — og þó erum við aðeins
að byrja að kynnast þeim efnum,
HEIMILISRITIÐ
37