Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 43

Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 43
Eg fór út á „rúnt“ og leit vel í kringum mig. Fyrir framan bóka- glugga sá ég alþýðlegan pilt. Hann var snotur að sjá og ég ákvað að reyna við hann. Eg stanzaði við hlið hans og lézt athuga bækurnar. Eg missti hanzkann minn, en hann tók ekki eftir því. Einhver ýtti við mér (mönnum er svo oft hrint á „rúnt- inum“) og ég hrökklaðist hastarlega á öxl hans. „Fyrirgefið", sagði ég og ég fann að ég roðnaði. Hann lyfti hattinum kurteislega og hélt svo áfram að horfa á bækurnar. Eg var alveg að gefast upp af blygðun. „Vitið þér hvar Verzlunarmanna- húsið er?“ spurði ég. Nei, hann vissi það ekki, en bað mig um að bíða andartak. Hann fór til lögregluþións, sem stóð á næsta götuhorni, fékk upplýsingar hjá hon- um og skýrði mér svo frá þeim. „Eg býst varla við því að ég rati samt sem áður“, sagði ég aumingja- lega. „Skiliið þér hr......“ „Mill“, bætti hann við og ég flýtti mér að rétta honum hendina og segia honum nafn mitt. Loksins skildi hann til hvers ég ætlaðist af honum, og bauð mér samfylgd. „Nú varstu heppin, stúlka mín“, hugsaði ég sigri hrósandi. Þegar við komum að húsinu tók hann ofan og fór í burtu. Eg stóð ein eftir með sárt enni. Eg fór heim og vikan leið. Á næsta fundi skýrði Anna fyrst frá sínum rannsóknum. Þegar hún hafði haldið klukkutíma fyrirlestur, færði ég þetta inn í gjörðabókina. „Er einfeldningur. Hann er lagleg- ur í andliti og heldur að allar stúlk- ur séu skotnar í sér. Það er sterk ilmvatnslykt af honum, hann litar andlitið og er eins og páfugl í klæða- burði. Gjörsneyddur öllum gáfum. Þegar hann fer inn í veitingahús, stendur hann lengi við spegilinn, frammi og greiðir sér, lagar háls- bindið og lygnir augunum. Enginn kvenmaður getur orðið jafn hégóm- legur og þessi sápukúla." Svo skýrði ég þeim frá því sem fyrir mig hafði komið. Fundarstúlk- urnar samhryggðust mér og voru á einu máli um að dæma harðlega ó- nærgætni og eigingirni karlmann- anna. Við (biðum óþreyjufullar eftir því að Maja tæki til máls. En formaður- inn okkar virtist hafa misst málið. „Jæja, Maja?“ sagði Heddy. Maja var óvenju föl. „Eg hef ekki frá neinu að segja,“ sagði hún og reyndi að bera sig borginmannlega. „Ha, náðirðu ekki í neinn?“ hróp- uðum við einum mimni. Maja viðurkenndi að það væri ó- trúlegt, en samt væri það satt. Hún hafði ekki náð neinum í gildruna. Við reyndum að hugga hana. Henni þótti þetta sýnilega leiðinlegt sjálfri. Kvöld eitt í næstu viku var ég úti á skemmtigöngu. Hverjum mæti ég þá? Maju við hlið háa mannsins! Eg óskaði að það væri þriðjudagur. Hún deplaði öðru auganu til mín. Eg var alveg að deyja úr forvitni. HEIMILISRITIÐ / 41

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.