Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 54
sem mér hefur verið unnt að veita.
Eg hef sefað söknuð hans og eytt
einstæðingsskap hans. Á þennan
hátt hef ég sjálf aflað hamingju
minnar.
Joel kom í gær á fæðingarstofn-
unina, til þes að sjá son sinn, fjögra
daga gamlan. Hann sat við rúm mitt,
hélt í hendina á mér og sagði:
— Susy! Eg hélt að ég gæti aldrei
orðið eins hamingjusamur og ég er
í dag. Karla, — hann leitaði að orð-
um. Eg elskaði Körlu, en sú ást var
eins og kertaljós, sem svo kveikti
kyndil í hjarta mínu, ástareldinn,
sem eilíft brennur og yljar heimili
mitt og lýsir upp líf mitt með yndi
og unaði.
Hann beygði sig yfir mig og kyssti
mig. Kossinn lýsti eins og hvítur
logi, logi, sem brennur í helgidómi
hjarta míns.
FEGURÐARGYÐJAN
TSLENDINGAR eru ein af þeim
menningarþjóðum, sem aldrei hafa
valið sérfegurðardrottningu. Aðvisu
hefur farið hér fram fegurðarsam-
keppni eftir ljósmyndum, en þótt
árangurinn hafi verið vonum betri,
er naumast hægt að tala um fegurð-
arsamkeppni þar sem einungis er
farið eftir andlitsfalli keppenda.
Sannleikurinn er sá, eins og flest-
um er raunar kunnugt, að þegar
velja skal fegurðardrottningu, er
ekki síður dæmt eftir líkamsvexti
en fríðleika andlitsins. Slík sam-
keppni þarf að fara hér fram sem
fyrst.
Ameríkumenn efndu eitt sinn til
keppni um það, hvaða stúlka væri
líkust Venus frá Milanó. Venus er,
eins og við vitum, líkneski frá forn-
öld, sem fannst handleggjalaust, en
talið hefur verið líkneski af fegurð-
argyðju fornaldarinnar. IHernig
Ameríkumenn fóru að vita um ná-
kvæmt sentimetramál handleggja
líkneskisins, skal ósagt látið. En sú
sem bar sigur úr býtum hét Betty
Blythe. Fer hér á eftir sentimetra-
mál hennar og líkneskisins:
Venus Betty
frá Milanó Blythe
Hæð 162.5 sm. 163 sm
Úlnliður 16.6 — 16.5 —
Framhandleggur 26.7 — 25.5 —
Upphandleggur 30.5 — 29 3 —
Brjóst 88.3 — 86.3 —
Ökli 21.6 — 21.6 —
Fótleggur 34.3 — 33 —
Hné 34.3 — 33 —
Læri 49.5 — 50 8 —
Mjaðmir 91.5 — 91.5 —
Mitti 72.4 — 71.2 —
Háls 30.8 — 30.8 —
Til gamans geta hinar fallegu ís-
lenzku stúlkur, sem lesa Heimilis-
ritið, mælt sig hátt og lágt og borið
vöxt sinn saman við Venus og
Blythe.
52
HEIMILISRITIÐ