Heimilisritið - 01.03.1943, Page 57

Heimilisritið - 01.03.1943, Page 57
um augum og gjörbreyttist á svip- stundu. — Þú hefur vitað að ferð mín til Tourcuing var uppspuni. Þú lézt njósna um mig. Þú hefur lætt þess- um lappa í jakkavasann minn og beðið mín hérna, til þess að hefna þín. Eg skil ekkert í mér að þekkja ekki rithöndina þína. Hann rétti konu sinni litla istar- bréfið og hún greip það með áfergju og las það. Svo reif hún það í ótal agnir. — Þú getur ekki farið á bak við mig með neitt, Sígismond. Já, þetta hef ég allt gert, sagði hún hörkulega. Svo hélt hún áfram reiðilestri sín- um: — Já, ég hef gert þetta allt, og nú veit ég, hverju ég má búast við af þér. Skammastu þín! Svona kem- ur þú fram gagnvart mér! Þú svall- ar með lauslætiskonum og kvenna- bósum. En það skaltu vita góði minn, að til eru dómstólar, sem geta hegnt eiginmönnum, sem fremja hjúskap- arbrot. Eg ætla að tala við lögfræð- ing þegar í stað. Eg ætla að skilja við þig eins fljótt og hægt er. Eg vil hneyksli. Þú ert óhræsi, kvik- indislegur ræfill og óguðlegur þorp- ari, að þú skulir svíkja mig svona í tryggðum. Hún varð fegurri og gimilegri með hverju orði sem hún sagði' í sinni réttlátu reiði. Aldrei hafði barón- inum fundist hún eins töfrandi og einmitt nú. Hann féll til fóta hennar og bað um vægð. Hann varð mælskur í auð- mýkt sinni og fyrirgefmingarbænum. Hann varð blíður og ástsjúkur. Og það er ekki að spyrja að veiklyndi konunnar. Hvað getur hún ekki fyr- irgefið? T_I JÓNIN gengu heim til sín eins A og tvær turtildúfur. Fortíðin leit til þeirra öfundarsjúkum aug- um. — Herra barón, sagði þjónninn, þetta bréf var sent hingað um tvö- leytið, og sendandinn er víst óþol- inmóður eftir svari, því að hann hef- ur hringt hingað 5—6 sinnum síðan og spurt eftir yður. Baróninn reif upp bréfið og las: — Kæri Sígismonde! Þú hlýtur að hafa farið í frakk- ann minn, því að ég er með þinn. Þetta þjónssvín hefur misgripið sig í morgun. Sendu mér frakkann minn strax. Það eru áríðandi skjöl í vös- um hans, sem þú hefur væntanlega ekki lesið (ég þekki þig að þag- mælsku), en ég þarf á þeim að halda án tafar. Þinn Clodomir. Baróninn varð grænn í framan eins og pera og sleppti handlegg konu sinnar. Hann hljóp að næstu ljósakrónu og hrópaði æstur: — Það er enginn efi! Hann skoðaði frakk- ann í krók og kring. Hann átti ekki frakkann. Stefnumótið hafði ekki verið ætlað honum, heldur vini hans — og konunnar hans. En þegar alls var gætt þá gerði þetta ekki svo mikið til, því að hann hafði þrátt fyrir allt leikið á svínið hann Clodomir. HEIMILISRITIÐ 55

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.