Heimilisritið - 01.03.1943, Side 60
pakka): Heldurðu að þú megir þá
ekki smakka á þessu?“
Rúna: „Ó, vertu nú ekki að taka
út úr bankanum mín vegna.“
Keli: „Blessuð taktu nú ekki mót-
læti þínu eins prýðilega, eins og
kona sem ég þekkti. Hún lét það allt
bitna á manninum sínum.“
Rúna: „Nei, ég veit að þú hefur
efni á að lifa yfir efni fram.“
Keli: „Heyrðu Kobbi! Hvað mynd-
irðu gera fyrir svona vinkonu, ef
þú stæðir í mínum sporum?“
Kobbi (glápir á fætur Kela):
„Bursta skóna mína.“
Keli: „Rúna! Eg veit sveimér ekki
nema ég eigi að þegja, þegar svona
gáfaðir menn eru í kringum mig.“
Rúna: „Það er miklu betra að þú
hugsir um það hvers vegna þú þegir
heldur en að þú hugsir um, hvers
vegna þú ert að tala.“
Keli: „Ódýr þessi. — Hefurðu
nokkuð að lesa?“
Rúna: „Já, Hvort ég hef! Sérðu
ekki að ég bíð með öndina í hal;-
inum eftir að þið farið. Eg er með
Heimilisritið í hendinni.“
Leyndardómurinn mikli.
Ef hægt er að tala um leyndar-
dóm velgengninnar, þá er hann fólg-
inn í því að geta sett sig í fótspor
hins og líta á hlutina jafnt í því
ljósi, sem hann sér þá og því, sem
maður sjálfur sér þá.
Henry Ford.
ENGAN LANGAR TIL
ÞESS AÐ HEYRA:
Nákvæma lýsingu á heilsufari þínu.
Um allt það, sem þú þarfnast, nauð-
synlega, en getur ekki veitt þér.
Um livaða fæðutegundir þér þykir
vondar.
Sögur um fólk, sem þú þekkir vel,
en áheyrendurnir þekkja ekki.
Hversu mikilla vinsælda þú nýtur og
hversu öfundsverð þú ert af kunn-
ingjum þínum.
Að þú getur alls ekki fitnað, þó þú
alir þig á fitandi mat.
Nákvæma lýsingu á skapgerð þinni.
Hversu vel þú innir verk þín af
hendi.
Um heimiliserfiðleika þína af völd-
um ómyndarlegrar vinnukonu.
Hversu hamingjusömu lífi þú átt að
fagna, og hversu undrandi þú ert
á því, að fólk skuli vera með á-
hyggjur og kvíða að ástæðulitlu.
Álit þitt á öllu.
Buff, rommbúðingur og kaffi fyr-
ir 65 aura — það er ódýrt — ha?
— Já — hvar fær maður það?
— Hvergi — en það er samt ódýrt.
Hún: Eg veit að ég hef mína galla,
Alfreð.
Hann: Já, auðvitað.
Hún (reið): Viltu gjöra svo vel
og segja mér hverjir þeir eru.
58
HEIMILISRITIÐ