Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 65
VIKMYNDASTJÖRNURNAR
hafa ekki legið á liði sínu, þeg-
ar um fjársöfnun til styrjaldarþarfa
hefur verið að ræða. Nefna má það
til dæmis, að JANETTE MACDON-
ALD hefur haldið 12 konserta til á-
góða fyrir ameríska herinn. Ágóðinn
hefur numið 95.000 dollurum, þar af
15 þúsund sem greiðsla fyrir endur-
tekin lög og eiginhandarnafn hennar.
JOAN FONTAIN og OLIVIA DE
HAVAILLAND eru systur — í
raun og veru. Það er talið sennilegt
að þær verði valdar til þess að leika
sem systur í kvikmynd, sem taka á
bráðlega og heitir „Devotion.“
TTEDY LAMARR leikur á móti
WILLIAM POWELLíkvikmynd
sem nýlega hefur verið tekin og
nefnd er „Krossgötur". Það er sagt
að hún eigi framvegis að vera kona
Powells í kvikmyndum í stað
MYRNA LOY. Hér eru leiðbeining-
ar, sem Myrna Loy skrifaði Hedy
Lamarr, áður en byrjað var á kvik-
myndatökunni.
„Kæra Hedy. — Gættu þess að
svara William ekki einu orði, ef
hann er önugur. Og ef hann hefur
HEIMILISRITIÐ
ekki haft tíma til þess að borða
morgunverð, þá skaltu forðast a?.
láta hann sjá þig. En hann leyfir
þér alltaf að láta á þér bera og dreg-
ur sig jafnvel í skuggann þín vegna,
fyrir framan myndavélina Honum
er illa við hávaða að ástæðulausu.
Hann hlær- bara ef þú brýtur eitt-
hvað út af boðorðum kvikmynda-
stjórans og hjálpar þér jafnvel. En
hlæðu ekki, ef slíkt kemur fyrir
hann. Þú skalt látast vera mjög
særð yfir því. Hann er bezta skinn,
ef maður kann lagið á honum. —
Með hamingjuóskum — frá „fyrri
konunni“ hans.“
\ /ERIÐ er að kvikmynda sögu
v Hemmingways „For Whom the
Bell Tolls.“ (Hverjum klukkan glym-
ur). GARY COOPER leikur Robert
Jordan, en INGRID BERGMAN leik-
ur Maríu.
pvIANA BARRYMORE, dóttir hins
^ heimsfræga nýlátna leikara,
John Barrymore, er að byrja leik-
feril sinn. Hún leikur eitt aðalhlut-
verkið í kvikmynd, sem nefnist „Arn-
ar-riddaramir“, og nýlega hefur ver-
ið tekin.
FJETTY GRABLE, sú sem lék í
Miami-myndinni sem var sýnd
á Nýja Bíó fyrir nokkru, er
fædd 18. desember 1916. Hún er
ljóshærð og vegur 56 kíló. Hún er
hreinskilin, góður félagi, dansar dá-
samlega og er ógift.
63 ,
/