Heimilisritið - 01.07.1946, Page 4

Heimilisritið - 01.07.1946, Page 4
M O SMÁSAGA EFTIR KARL ÍSFELD FÓLKIÐ var farið að þyrpast niður á bryggjuna, þótt ekki væri von á skipinu fyrri en eftir klukku- tíma. En það stóð Ií'ka dálítið sér- staklega á. Skipið var að koma frá útlöndum, og einn farþeganna var ekki skráður á farþegalistann held- ur farmskrána. Þetta var nýút- skrifaður læknisfræðingur, ættaður úr næstu sveit, sem hafði orðið þjóðkunnur fyrir rúmum mánuði vegna þess, að hann hafði orðið ósáttur við unnustu sína, sem hann hafði kynnzt fyrir sunnan, rokið til úblanda og skotið sig þar. Efni- legur læknisfræðingur að tarna, sem ekki gat einu sinni læknað of- urlítinn kveisusting í sjálfum sér. Hann hafði sennilega gengið með of spennta fjöður í sigurverki sál- arinnar. Slíkir menn þola engar misjöfnur á veginum, þá slitnar fjöðrin og þeir grípa til örþrifaráða. En menn, sem ganga með mátu- lega slaka fjöður í sigurverki sál- arinnar þola allt. Skrýtið uppá- tæki samt að þjóta til útlanda til að gera það, sem hægt var að gera heima. En, sem sagt, maðurinn hafði gert hreint fyrir sínum dyr- um, það hafði ekki þurft um að ‘binda, og nú var hann að sigla heim sína síðustu ferð — á lest- arfarrými. Ég hafði fylgzt með mannfjöld- anum niður að höfn og var að rálfa þar um, einmana í miðri ös- inni, þegar stúlka, sem ég þekkti lítilsháttar, gekk í veg fyrir mig og sagði: — Vertu nú vænn piltur og gerðu mér svolítinn greiða. Náðu í eina flösku og komdu með mér heim til vinstúlku minnar, sem leiðist. Hún er gestkomandi í bæn- um og þekkir engan. — Það verður að bíða betri tíma, sagði ég. — Ég hef öðrum hnöppum að hneppa þessa stund- ina. — En mér væri mikil þægð í, ef þú gerðir þetta, sagði hún. — Og hver veit, nema ég geti ein- hvern tíma gert þér greiða í stað- inn. — "Það breytir engu, sagði ég. 2 HEJJÆILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.