Heimilisritið - 01.07.1946, Blaðsíða 42
fr*inMýss*t*
VOÐI á ferðum
effir ffignon 0. fóerMf
FORSÖGUÁGRIP:
IVAN GODDEN hefur fundist myrtur
í íbúð sinni, skömmu eftir að hann er
kominn heim af sjúkrahúsi, en þar liafði
BLAKIE, læknir og vinur fjölskyldunnar,
hrifið liann úr greipum dauðans. Kona
Ivans, MARCIA, hefur verið mjög óham-
ingjusöm þau þrjú ár, sem hún hefur
verið gift Ivan, því að hann og BEAT-
RICE syslir hans hafa kúgað hana og
kvalið andlega.
Nágrannar þeirra og vinir, VERITY
og ROB sonur hennar, hafa boðið þeim
í veizlu kvöldið sem morðið er framið.
Rob og Marica liafa tjáð hvoru öðru
ást sina fyrr um daginn, en hún hefur
ekki einurð í sér til að fara frá Ivan,
þótt Rob hafi lagt hart að henni að
gera það.
Lögreglan er ^omin á morðstaðinn og
farin að hefja rannsókn sína.
Rob hikaði, því að þótt hann
væri viss um réttmæti andmæla
sinna, var hann ekki vis um,
hver orsök væri fyrir þeim. Da-.
vies hélt áfram hastur: „Ég
hygg, að við höfum yðar sögu,
Robert Copley. Þér fóruð fram
hjá húsinu á að gizka tíu mín-
útur fyrir sjö — rétt á eftir
að Marcia Godden fór frá
manni sínúm einum í herbe'rgi.
Þér töluðuð fáein orð við
hana, genguð úti um stund og
og komuð heim nálægt því tíu
mínútur yfir sjö. Hafið þér
nokkru við að bæta?“
„Nei“.
„Þér hafið náttúrlega ekki
mætt neinum, sem þér þekktuð
á göngu yðar, var það?“
Rob hikaði, beit á vör og
sagði svo snöggt: „Nei“.
Gally sat letilega á stól með
fljótandi augu og dró andann
ótt og títt, eins og hann var
vanur, þegar mikið var um að
vera. Lögreglumaðurinn leit á
hann og dró fram skrifaða
pappírsörk og sagði: „Já, rétt,
Galway Trench. Fór að heiman
klukkan hálfsjö. Bíllinn bilaði
hjá Harlem við 59. götu. Kom
hingað klukkan átta. Þá höfum
við yðar sögu* líka. Viljið þér
bæta einhverju við þessa sögu?“
40
HEIMILISRITIÐ