Heimilisritið - 01.07.1946, Síða 13

Heimilisritið - 01.07.1946, Síða 13
hennar var ástæðulaus, kjánalegur. Allan elskaði hana. Að sjálfsögðu á sinn hrjúfa hátt, en samt af djúpri einlægri tilfinningu. Hún hafði tekið eftir því, hvernig hann gerði sér ávallt far uni að þóknast henni, og einnig hversu hin minnsta snerting hennar hafði glatt hann. Og hafði hann ekki einnig vakað yfir henni alla nótt- ina og sýnt henni hina mestu um- hyggju. Hvers vegna skyldi hún þá óttast hann, þegai' liann til- heyrði henni raunverulega og það var hún, sem gat eyðilagt iíf hans með einni setningu. Kvalirnar, sem heltóku hinn unga líkama hennar, milduðu ó- beit hennar á Allan. Sem snöggv- ast fékk hún samvizkubit, sem hvarf þó jafn^kjótt a'ftur. En and- artak sá hún í nýju ljósi þetta and- lit, sem hún skildi nú, að hún elskaði ekki lengur. Allt í einu sneri hún höfðinu að honum. Hún grét hljóðlega. Hún skildi nú ljóslega, að dauð- inn nálgaðist — var þarna í her- berginu. Hún fann það greinilega á öllu, og maður liennar var jafn- framt ekki í neinum vafa um að svo væri. Þegar Allan tók eftir því, að hún vissi hvernig komið var, sneri hann sér undan án þess að íiiæla orð. í fjarlægð gljáði á nakta líkama verkamannanna í sterkri morgun- sólinni. Ilmurinn, sem barst með blænum varð æ sterkari og úthaf- ið var orðið dimnvblárra en áður. Aldrei hafði Edith fundið til jafn- hræðilegrar einveru eins og á þessu örlagaríku augnabliki. Hún fann brýna löngun til að faðma að sér eina manninn, sem nú var nálægt henni, þrátt fyrir allt og allt. En til þess að samband þeirra yrði byggt á vinsemd og fullkominni hreinskilni, þá var hún neydd til að segja honum allt af létta. „Allan“, sagði liún með lágri rödd, sem bar öll einkenni þess, að dauðinn væri ekki langt undan. „Ég get ekki farið héðan án þess, að skýra þér frá svolitlu, sem þú verður að fyrirgefa mér“. Hún þagnaði og dró djúpt and- ann. „Ég hef ekki verið þér trú. Fyr- ir þremur dögum lét enskt skip héðan úr höfn. A þessu skipi var — yfirmaður“ — Hún liafði notað síðustu kraft- ana, til að ségja þetta og lá nú þögul. Allan virti hana lengi fyrir sér þar sem hún lá með höfuðið á koddanum þjáð og föl. En því næst mælti hann kaldri, rólegri röddu. „Ég þarfnast líka fyrirgefningar, Edith. Ég vissi það allt saman^ Þessvegna gaf ég þér inn eitur í gær, frá innfædda fólkinu hérna“. E N D I R HEIMILISRITIÐ 11

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.