Heimilisritið - 01.07.1946, Page 28

Heimilisritið - 01.07.1946, Page 28
og tígrisdýr. Það langar mig að sjá. Og þá skal ég hlæja. Þú ert kvenmaður, sagði afi minn. Ef maður les í bók, sem er upp á fleiri hundruð smáletursíður, að konan sé í sannleika dásamleg vera, þá hefur höfundurinn snúið augliti sínu frá eiginkonu sinni og dreymir. Við skulum láta hann fara. Það er Ijóst, að þú ert ekki ungur lengur, sagði amma mín. Þess- vegna læturðu svona. Þegiðu, sagði afi minn. Eða ég skal kenna þér það. Afi minn litaðist um í stofunni, þar sem börn hans og barnabörn höfðu 'safnazt saman, Ég segi að hann eigi að fara til Hanford á reiðhjólinu sínu. Hvað segið þið? Enginn sagði neitt. Þá er það útkljáð mál, sagði afi minn. Hverju af hinum úrkynjuðu afkvæmum ættar vorrar eigum við að refsa með því að senda það til Hanford með Jorga? Ef maður les í bók, að ferð í annan kaúpstað sé skemmtilegt nokkuð, þá er höf- undurinn að líkindum áttræður eða níræður öldungur, sem ein- hverntíma í bernsku hefur ekið hálfa mílu frá heimili sínu. Hverj- um eigum við að refsa? Vaski? Eigum við að refsa Vaski? Komdu hingað, drengur. Vaskur frændi minn reis upp af gólfinu og gekk fram fyrir gamla manninn, sem horfði ygldur niður til hans, sneri upp á hina voldugu kampa sína, ræskti sig og lagði höndina yfir andlit drengsins. Hönd hans huldi næstum höfuðið allt. Ætlar þú að fara með Jorga frænda þínum til Hanford? sagði afi minn. Ég skal fara, ef afi minn vill það, sagði Vaskur. Það mátti sjá af andliti gamla mannsins, að hann var tekinn að íhuga málið af alvöru. Gefið mér svolítinn umhugsun- arfrest, sagði hann. Jorgi er einn af fáráðlingum ættarinnar. Það ert þú líka. Er skynsamlegt að láta tvo fáráðlinga fylgjast að? Hann sneri máli sínu til hinna. Látið mig heyra skoðanir ykk- ar um þetta mál, sagði hann. Er skynsamlegt að láta fullvaxinn og hálfvaxinn fáráðling af sömu ætt fylgjast að? Er það nokkrum til gagns. Talið þið hátt, svo ég geti hugsað málið. Mín skoðun er sú, að það væri eðlilegt, sagði Zorab frændi minn. Fáráðlingur og fáráðlingur. Sá fullorðni til að vinna, drengurinn til að hirða húsið og búa til mat. Kanski, sagði afi minn. Látum oss hugsa málið. Fáráðlingur og fáráðlingur, annar til að vinna, hinn til að hirða húsið og búa til mat. Geturðu búið til mat, dreng- ur? 26 HEIMILISRITH)

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.