Heimilisritið - 01.05.1951, Blaðsíða 53
var fyrsta vopnaða andstöðu-
hreyfingin, „Illfar Frakklands“,
stofnuð í jiilí, 1940, undir for-
ystu hinna látnu ættjarðarvina
Lange, þekktum undir nafninu
Alycon, og Salve, þekktum undir
nafninu Jean de Sylves“. Fyrir
neðan var minni tafla: ,,TJlfar
Frakklands — fvrir óteljandi
dáðir“.
LTm jólin í fyrra komst það
upp, að þessir tveir ættjarðar-
vinir voru rejmdar í fangelsi að'
afplána dóm fvrir svik, og það
leiddi til þess, að ellefu „Úlfar“
voru handteknir í viðbót. Og
hvaða dáðir höfðu þeir drýgt?
Jú, þeir höfðu krafsað saman
meira en 300.000 sterlingspund
á fullum fimm árum með því að
selja fyrir okurverð fölsuð skil-
ríki handa fólki, sem unnið hafði
með Þjóðýerjum.
ÞAÐ átti innan skamms að
reyna nýja gerð af franska Cit-
röenbílnum, og það hafði síazt
út, að í vélinni væri nýjung, sem
myndi kveða alla keppinauta í
kútinn. Bófaflokkur ásetti sér
því að komast að leyndarmál-
inu og selja það. Þeir földu sig
beggja megin vegarins, þar sem
reynslubíllinn átti að fara um,
snemma morguns. Þeir stöðvuðu
bílinn með skammbyssum,
bundu mennina tvo, sem í hon-
um voru og lyftu siðan vélinni
upp úr legunni og höfð'u hana á
brott með sér!
Nú á dögum er ekkert lieilagt!
Ekki einu sinni vélar. Kirkjur
eru það vissulega ekki. Þjófnað-
ir á dýrgripum og helgum mun-
um eru tíðir. Fyrir skömmu var
stolið þriggja feta háu, gylltu
keri úr Notre Dame.
Frá Italíu berast fréttir um
þjófnað á ellefu gömlum film-
um, sem söngvarinn Gigli tók.
Nú eru þær metnar á 12.000
sterlingspund, en voru fyrst
seldar á 80 pund og seinna fyrir
eitthvert lítilræði sem rusl.
Með þjóðnýtingu opnast ný
tækifæri fyrir einstaklinga, sem
ryðjast inn á heimili manna og
látast vera starfsmenn ríkisins.
Tveir menn og ein kona komu
til málverkasala eins og þóttust
vera umboðsmenn Rafmagnsfé-
lags Frakklands. Þeim tókst að
hafa á brott tólf málverk — þar
á meðal eftir Fragonard — og
seytján veggteppi.
ENDIR
Eftirsótt stúlka
Ég tilbiS hana Jónu! Ég sagSi henni
i gcer, að ég skyldi skjóta hvern þann,
sem cetlaði aS daSra viS hana. Veiztu
hvcrju hún svaraSi?
— Nei?
— Hún ráSlagSi mér aS útvega mér
hríSskotabyssu!
HEIMILISRITIÐ
51